Fréttablaðið - 29.08.2012, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 29.08.2012, Blaðsíða 42
29. ágúst 2012 MIÐVIKUDAGUR22 sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Lars Lagerbäck, þjálfari karlalandsliðs Íslands, tilkynnti í gær 22 manna hóp fyrir lands- leikina gegn Noregi og Kýpur í undankeppni heimsmeistara- mótsins í Brasilíu 2014. Fyrri leikurinn verður á Laugardalsvelli föstudagskvöldið 7. september og sá síðari ytra gegn Kýpur 11. sept- ember. Um fyrstu leiki liðsins í keppninni er að ræða. „Við erum byrjaðir að vinna leiki og sjö þúsund manns mættu á síðasta leik. Ég heyrði hjá leik- mönnunum hve ánægðir þeir voru með að spila í þessu andrúmslofti,“ sagði Lagerbäck í gær. „Við eigum góðan möguleika á þremur stigum bæði gegn Noregi og Kýpur. Við þurfum hins vegar að undirbúa okkur afar vel og leika vel. Frammistaðan þarf að vera 100 prósent í báðum leikjum.“ Íslenska liðið lagði Færeyjar í æfingaleik á dögunum 2-0 og sýndi Svíinn blaðamönnum myndbrot úr leiknum. Þá benti hann á það sem vel gekk og það sem mætti bæta. Gæði Kolbeins Sigþórssonar voru öllum ljós og tíðindi af axlar- meiðslum hans slæmar fréttir. „Væri leikurinn á morgun gæti hann ekki spilað,“ sagði Lagerbäck sem reiknar með nýjum tíðindum af meiðslum Kolbeins fljótlega. Hann viðurkennir að liðið sé ekki samt án Kolbeins sem hefur skorað átta mörk í ellefu A-landsleikjum. „Tölfræði hans talar sínu máli. Kolbeinn er stórkostlegur marka- skorari og frábær leikmaður fyrir liðið. Þetta er sambærilegt og ef Svíar væru án Zlatans. Ef hann er meiddur verða aðrir að fylla í skarðið og við verðum líklega að breyta leikskipulaginu spili hann ekki.“ Eiður Smári utan hóps Fátt kom á óvart í leikmannavali Lagerbäcks. Ekkert pláss er þó fyrir markahæsta leikmann lands- liðsins frá upphafi, Eið Smára Guðjohnsen. Eiður Smári kom inn á sem varamaður í leiknum gegn Færeyjum en hann er enn án félags. „Þrátt fyrir að hann sé frábær leikmaður og gæti hjálpað okkur hluta úr leiknum tel ég röng skila- boð að velja leikmann sem æfir ekki með liði. Við þurfum leik- menn sem geta spilað 90 mínútur enda veistu aldrei hvað gerist í leikjum,“ sagði Lagerbäck, sem valdi Grétar Rafn Steinsson sem nýverið samdi við tyrkneska félagið Kayserispor. „Leikform Grétars er spurn- ingarmerki en ég myndi halda að möguleikar hans og Birkis Más á byrjunarliðssæti í stöðu hægri bakvarðar séu jafnmiklir.“ Birkir og Bjarni bestu kostirnir Fáir leikmenn hafa hlotið meiri gagnrýni með íslenska landslið- inu en bakverðirnir Birkir Már Sævars son og Bjarni Ólafur Eiríks- son. Hvort sem gagnrýnin hefur verið réttmæt eða ekki vilja margir meina að landsliðið standi hvað verst að vígi í bakvarðarstöðunum. „Að mínu mati eru þeir bestu bakverðirnir sem við eigum,“ segir Lagerbäck sem telur íslenska liðið ekki sérstaklega veikt í um- töluðum stöðum. „Ég hef séð eldri leiki Bjarna Ólafs með lands- liðinu og miðað við leiki hans með okkur tel ég hann vera góðan bak- vörð. Hann er stór og sterkur, með góðan vinstri fót og fínan leikskilning. Hann nýtist okkur sóknar lega líka svo ég tel hann ekki eiga gagnrýni skilið,“ sagði Lagerbäck sem hafði heyrt af gagnrýninni í garð Bjarna Ólafs. „Birkir Már er mjög áhuga- verður leikmaður. Hann er líklega fljótasti leikmaðurinn í hópnum og að vera með hraða varnarmenn er mjög mikill styrkleiki. Ég tel þá báða mjög góða leikmenn,“ sagði Lagerbäck. kolbeinntumi@365.is ÞÓR/KA getur í kvöld tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn en þá fer fram heil umferð í Pepsi-deild kvenna. Sandra María Jessen (á mynd) og félagar hennar mæta ÍBV í Vestmannaeyjum og verða meistarar með sigri, ef Stjarnan tapar stigum gegn Aftureldingu í kvöld. Leikurinn í Eyjum hefst klukkan 18.00 en hinir fjórir hálftíma síðar. ÓLYMPÍUMÓT Setningarathöfn Ólympíumóts fatlaðra fer fram á Ólympíuleikvanginum í London í kvöld. Um 4300 keppendur eru mættir til Englands þar sem keppt verður í tuttugu íþróttagreinum. Frjálsíþróttakappinn Helgi Sveins- son verður fánaberi Íslands og hlakkar mikið til. „Það gerist ekki betra en að komast inn á Ólympíumótið og halda á fánanum fyrir mína þjóð. Ég trúi þessu varla enn þá,“ segir Helgi, sem er einn fjögurra full- trúa Íslands á leikunum. Jón Mar- geir Sverrisson og Kolbrún Alda Stefánsdóttir keppa í sundi og Matthildur Ylfa Þorsteins dóttir í frjálsum íþróttum. Hún stíg- ur fyrst íslensku keppendanna á sviðið á föstudagsmorgun. „Ég finn fyrir smá fiðringi í maganum. Ég held að hann eigi eftir að aukast með hverjum deginum sem líður fram að keppni,“ segir hin fimmtán ára Matthildur Ylfa. Jón Margeir og Kolbrún Alda keppa einnig á föstu- dagsmorgun í baksundi og Helgi um kvöldið í langstökki. Ólíkt Ólympíuleikunum er fjöldi keppenda á Ólympíumótunum fyrir fram ákveðinn. Að ná lág- marki er því ekki ávísun á þátt- tökurétt á mótinu. Því er ljóst að keppendur í London eru rjóminn af afreksfólki úr röðum fatlaðra um allan heim sem margir hverjir sitja heima með sárt ennið. Það er til fellið á Íslandi enda fékk Ísland aðeins eitt sæti fyrir hvort kyn í frjálsum íþróttum og sundi þó fleiri hefðu náð tilskildum lágmörkum. Reiknað er með miklu sjónar- spili á setningarathöfninni í kvöld. Í hönd fer ellefu daga veisla sem enginn íþróttaáhugamaður ætti að missa af. - ktd Fjórtánda Ólympíumót fatlaðra verður sett í kvöld: Ballinu í London hvergi nærri lokið BRÝTUR BLAÐ Matthildur Ylfa keppir fyrst íslenskra kvenna í frjálsum íþrótt- um á Ólympíumóti. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Góður möguleiki í báðum leikjum Ísland á góðan möguleika á að leggja bæði Noreg og Kýpur að velli í fyrstu landsleikjum liðsins í undan- keppni HM 2014 að mati þjálfarans Lars Lagerbäck. Óvissa ríkir um þátttöku Kolbeins Sigþórssonar. MESTU MÁTAR Það fer vel á með landsliðsþjálfaranum Lars Lagerbäck og aðstoðarmanninum Heimi Hallgrímssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Landsliðshópurinn Markverðir Gunnleifur Gunnleifsson FH Hannes Þór Halldórsson KR Haraldur Björnsson Sarpsborg Varnarmenn: Grétar Rafn Steinsson Kayserispor Ragnar Sigurðsson FC Kaupmannahöfn Sölvi Geir Ottesen FC Kaupmannahöfn Ari Freyr Skúlason Sundsvall Indriði Sigurðsson Viking Kári Árnason Rotherham Birkir Már Sævarsson Brann Bjarni Ólafur Eiríksson Stabæk Miðjumenn: Aron Einar Gunnarsson Cardiff Helgi Valur Daníelsson AIK Emil Hallfreðsson Hellas Verona Jóhann Berg Guðmundsson AZ Alkmaar Rúrik Gíslason OB Eggert Gunnþór Jónsson Wolves Gylfi Þór Sigurðsson Tottenham Sóknarmenn: Birkir Bjarnason Pescara Kolbeinn Sigþórsson Ajax Alfreð Finnbogason Helsingborg Björn Bergmann Sigurðarson Wolves Kristjana Skúladóttir leikkona flytur dægurlög nokkurra þekktra söngkvenna síðari heimsstyrjaldar- innar og segir frá afrekum þeirra. Hljómsveitina skipa Vignir Þór Stefánsson á píanó, Gunnar Hrafnsson á bassa og Matthías Hemstock á trommur. „Ef ykkur langar á skemmtilega tónleika ættuð þið að kíkja, ef þið eigið foreldra eða afa og ömmu sem voru upp á sitt besta í kringum miðja síðustu öld þá er skyldumæting með þau.“ -H.G. „Þeir missa af miklu sem sleppa þessum.“ -S.Á. FÓTBOLTI Þór frá Akureyri tók í gærkvöldi stórt skref í áttina að því að endurheimta sæti sitt í Pepsi-deild karla eftir eins árs fjarveru. Liðið vann 4-0 sigur á Tindastóli í gær og er nú með sex stiga forystu á toppi deildarinnar. Þegar fjórum umferðum er ólokið er Þór með níu stiga for- ystu á Fjölni sem er í þriðja sæti deildarinnar. Ef Þór sigrar Víking í Reykjavík á laugardag verður sætið í Pepsi-deildinni nánast gulltryggt. Orri Freyr Hjaltalín, Ármann Pétur Ævarsson, Kristinn Þór Björnsson og Jóhann Helgi Hannes son skoruðu mörk Þórs í gær en liðið hefur nú unnið sjö deildarleiki í röð. - esá 1. deild karla: Þór nálgast Pepsi-deildina FAGNAÐ Þórsarar féllu úr Pepsi-deildinni í fyrra en eru á leið upp á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Meistaradeild Evrópu FORKEPPNI, LOKAUMFERÐ Ironi Kirya Shmona - BATE Borisov 1-1 BATE Borisov vann samanlagt, 3-1. Anderlecht - AEL Limassol 2-0 Anderlecht vann samanlagt, 3-2. Maribor - Dinamo Zagreb 0-1 Dinamo Zagrab vann samanlagt, 3-1. Panathinaikos - Malaga 0-0 Malaga vann samanlagt, 2-0. Udinese - Braga 1-1 Braga vann eftir vítaspyrnukeppni, 6-5. ÚRSLIT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.