Fréttablaðið - 29.08.2012, Side 8

Fréttablaðið - 29.08.2012, Side 8
29. ágúst 2012 MIÐVIKUDAGUR8 Flokksráð Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs (VG) fundaði um helgina. Fyrirfram höfðu verið skapaðar nokkrar vænt- ingar um að nú yrði látið sverfa til stáls í mál- efnum er varða umsókn að ESB. Raunin varð önnur, sam- þykkt var álykt- un um samskipti Í s l a nd s v ið þjóðir og þjóða- bandalög þar sem umræðunni um samskipti Íslands og ESB er fagnað og hvatt til þess að hún haldi áfram. S e g j a m á að þetta sé að mörgu leyti endurtekið efni. Þeir eru ófáir fundirnir í stofnunum flokksins þar sem boðuð hefur verið stefnubreyting í Evrópu- málum, enda fari aðildarumsókn gegn stefnu flokksins. Í aðdrag- anda funda hafa auglýsingar og undirskriftarlistar birst í fjöl- miðlum, en á fundunum hefur stefna flokksins ekkert breyst. Katrín Jakobsdóttir, varafor- maður flokksins, hélt ræðu við setningu fundarins. Hún vék þar að Evrópumálum og sagði flokks- menn skiptast í þrjá hópa; þá sem væru andstæðir aðild en litu á það mál sem eitt af mörgum sem vega mætti og meta, þá sem vildu að VG yrði einsmálshreyfing gegn ESB og loks fylgjendur aðildar. Síðast- taldi hópurinn væri lágvær og í minnihluta. Ef litið er til þeirra samþykkta sem stofnanir flokksins hafa gert verður ekki annað séð en að fyrsti hópurinn sé í miklum meirihluta í flokknum. Stefna hans er að vera andvígur aðild að ESB, en hags- munir af ríkisstjórnarsamstarfinu hafa á öllum fundum verið teknir fram yfir þá andstöðu. Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, gagnrýndi Katrínu mjög fyrir þessa framsetningu. Hann hefur lengi talað fyrir því að flokkurinn breyti um kúrs í Evrópumálum. Hins vegar hefur það sjónarmið ekki notið meiri- hlutafylgis á fundum stofnana flokksins. Sé horft til fundarins má ljóst vera að forystan vill beina athyglinni frá ESB og að árangri í efnahagsmálum. Mikið var lagt upp úr minna atvinnuleysi og auknum hagvexti og má þar sjá kosningaáherslur flokksins. Heimildarmenn Fréttablaðsins eru sammála um að þetta verði einmitt taktík flokksins í kosn- ingabaráttunni. Það sé honum ekki í hag að beina sjónum um of að ESB. ESB vomir yfir VG í kosningabaráttunni Dráttur á aðildarviðræðum er Vinstri grænum erfiður. Samþykktir flokksstofn- ana sýna þó styrkan meirihluta fyrir stefnu forystunnar. Af flokksráðsfundi má ráða að forystan vill beina sjónum frá ESB að árangri í efnahagsmálum. FUNDAÐ STÍFT Flokksráð VG samþykkti ályktun þar sem umræðu um samskipti Íslands og ESB er fagnað og hvatt til þess að hún haldi áfram. KATRÍN JAKOBSDÓTTIR JÓN BJARNASON Flokksráðsfundur VG samþykkti 10. maí 2009 ályktun þar sem mælt var með því að mynduð yrði ríkisstjórn með Samfylkingu „á grundvelli þeirrar samstarfsyfirlýsingar sem nú liggur fyrir“. Ályktunin var samþykkt með þorra atkvæða gegn fimm, einn sat hjá. Í samstarfsyfirlýsingunni, sem flokksráðið samþykkti á þessum fundi, segir: „Ákvörðun um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði í höndum íslensku þjóðarinnar sem mun greiða atkvæði um samning í þjóðar- atkvæðagreiðslu að loknum aðildarviðræðum. Utanríkisráðherra mun leggja fram á Alþingi tillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu á vorþingi.“ Samþykkt með þorra atkvæða gegn 5 FRÉTTASKÝRING Hver er staðan innan Vg? Póstkort frá París! Ármúla 7 | 108 Reykjavík | 5 500 600 | www.icelandexpress.is F ÍT O N / S ÍA Við ætlum að skreppa til Parísar og viljum endilega fá þig með. Eins og alltaf iðar borgin af lífi; veitingahús, listasöfn, fjölskrúðugt mannlíf – og svo þú. Bókaðu haustflug til Parísar á www.icelandexpress.is Barcelona er borgin! Þeir sem hafa ekki farið til Barcelona eiga mikið eftir. Fjölbreytt menning, einstakur arkitektúr og frábært úrval spennandi veitingahúsa. Við elskum Barcelona. Bókaðu haustflug til Barcelona á www.icelandexpress.is INNIFALIÐ:Ein taska, 20 kgHandfarangur, 10 kg 200.00 0 hótel í 165 löndum / 800.0 00 bíla r í 125 lö ndum HÓTEL OG BÍLBÓK AÐU Flogið til 23. september 2012. Engin sunnudagaregla og einfalt að breyta farseðlum. Flogið til 9. október 2012. Engin sunnudagaregla og einfalt að breyta farseðlum. Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is ÍSRAEL, AP „Ég tel þetta hafa verið slæman dag, ekki aðeins fyrir fjölskyldu okkar heldur fyrir mann- réttindi, réttarríkið og einnig fyrir Ísraelsríki,“ sagði Cindy Corrie eftir að héraðsdómur í Ísra- el hafði vísað á bug kröfu hennar og eiginmanns hennar, Craig. Þau fóru fram á táknrænar skaðabætur upp á einn Bandaríkjadal vegna láts dóttur þeirra, Rachel Corrie, sem varð undir jarðýtu ísraelska hersins þegar hún tók þátt í mótmælum gegn niður- rifi heimila Palestínumanna á Gasasvæðinu árið 2003. Dómstóllinn sagði lát hennar hafa stafað af slysi, sem hún sjálf ætti sök á. Hún hefði sjálf komið sér í þá hættu, sem kostaði hana lífið. Vitni að atvikinu hafa fullyrt að ýtustjórinn hafi vísvitandi ekið á Corrie. Foreldrar hennar töldu ýtustjórann hafa sýnt gáleysi og byggðu mál sitt gegn ísraelska ríkinu og ísraelska hernum á því. Þau hafa varið 200 þúsund dölum í málflutning- inn, eða jafnvirði nærri 25 milljóna króna. - gb Ísraelskur dómstóll telur að Rachel Corrie hafi sjálf átt sök á dauða sínum: Sögð hafa sett sig sjálf í hættu SARAH, CRAIG OG CINDY CORRIE Systir og foreldrar Rachel Corrie stuttu fyrir dómsuppkvaðningu. NORDICPHOTOS/AFP DANMÖRK Nítján ára piltur var í gær úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald vegna gruns um aðild að óspektum á bráðamót- töku sjúkrahússins í Óðinsvéum fyrir rúmri viku. Um sextíu manns ruddust þar inn í leit að manni sem hafði særst í átökum tveggja hópa. Þar unnu þeir margs konar spjöll og ógnuðu starfsfólki. Jafnaldri piltsins situr þegar í varðhaldi vegna ólátanna. Þrír aðrir menn eru í haldi vegna árásarinnar fyrr um kvöldið. - þj Óspektir í Óðinsvéum: Bráðamóttöku- bulla í varðhald FRAKKLAND Frönsk dómsmálayfir- völd rannsaka nú fráfall Jassers Arafats, fyrrum leiðtoga Palestínu, til að fá úr því skorið hvort hann hafi verið myrtur. Arafat lést á hersjúkrahúsi í París árið 2004 en þangað leitaði hann lækninga við veikindum sem höfðu hrjáð hann um nokkurt skeið. Niðurstöður rannsóknar á persónu- legum eigum Arafats sýndu tölu- vert magn af póloni í sýnum sem tekin voru. Pólon er geislavirkt frumefni sem meðal annars dró rússneska njósnarann Alexander Litvinenko til dauða. Lík Arafats var ekki krufið á sínum tíma en stjórnvöld í Pal- estínu hafa gefið leyfi til þess að grafa upp jarð- neskar leifar leiðtogans. Eftir lát hans vaknaði strax grunur um að Arafat hefði verið byrlað eitur en málið komst aftur í hámæli eftir rannsókn sjón- varpsstöðvarinnar Al-Jazeera. - shá Yfirvöld í Frakklandi rannsaka lát Jassers Arafats: Morðrannsókn hafin JASSER ARAFAT

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.