Fréttablaðið - 27.09.2012, Side 1

Fréttablaðið - 27.09.2012, Side 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur skoðun 22 SÉRBLAÐ í Fréttablaðinu Fólk 27. september 2012 227. tölublað 12. árgangur LITIR Í SNYRTIBUDDUNA Nú þegar sumarferskleikinn er á undanhaldi er um að gera að bæta það upp með því að auka við litaúrvalið í snyrti-buddunni. Nú má nota vel af sólarpúðri og kinnalit, smella á sig rauðum varalit og jafnvel litríkum augnskugga. Margir eru fastir í sama farinu vaxi svo það verði i úf ð EINFALT OG KLASSÍSKTAUÐVELD GREIÐSLA Oft er auðveldara en það lítur út fyrir að gera fallega greiðslu. Undirbúningur skiptir miklu máli og mikilvægt að nota réttu efnin. Teg MEGAN - vel fylltur push up í A,B,C,D á kr. 8.680,- buxur í stíl á kr. 3.550,- FANTAFLOTTUR ! Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Þú mætir - við mælum og aðstoðum www.misty.is Opið frá 10-18 virka daga. 10-14 laugardaga -gæsla og öryggi Opið kl. 9 -18 laugardaga kl. 11 - 16 Stórhöfða 25 569 3100 eirberg.is íktu heim - til öryggisK ryggismyndavélarö NÁTTÚRA Rétt er að líta svo á að kanínur hafi unnið sér þegnrétt sem villt tegund í fánu Íslands, að mati sérfræðings hjá Náttúru- fræðistofnun. Talið er líklegt, í ljósi hlýnandi veðurfars hér á landi og mikillar aðlögunarhæfni teg- undarinnar, að hún auki útbreiðslu sína og fjölgi hratt að óbreyttu. Margir líta á kanínu sem meindýr og að henni beri að halda í skefjum. Ævar Petersen, sérfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, telur rétt að líta á kanínuna sem villtan stofn í fánu Íslands og bendir á að sögu hennar á Íslandi megi rekja allt aftur á 19. öld. Stofninn hafi náð sér á strik og dáið út í mörg skipti frá þeim tíma, en núverandi stofn sé tilkominn vegna sleppinga fólks á gæludýrum sínum sem verði að teljast ámælisvert. Spurður um stofnstærð segir Ævar erfitt að fullyrða nokkuð þar um. „Ég held að rétt sé að segja að stofnstærðin sé mörg hundruð eða fá þúsund dýr,“ segir Ævar. Í maí 2010 sótti umhverfis- og Kanínan orðin hluti af villtri fánu Íslands Útbreiðsla kanínu á Íslandi gefur tilefni til að líta á tegundina sem villta í ís- lenskri náttúru. Stofninn telur mörg hundruð eða fá þúsund dýr, að mati sér- fræðings. Umhverfisyfirvöld telja að útrýma beri kanínu úr íslenskri náttúru. Ekkert gerist í Ameríku Hrollvekjuleikstjórinn Dario Argento, heiðursgestur RIFF í ár, er spenntur fyrir Íslandsförinni. bíó 46 Loksins á íslensku Jón Örn Marinósson þýddi barnabókina Þyt í laufi. tímamót 32 POPP „Serían er nokkurs konar Dallas þeirra Brasilíubúa, full af dramatík og látum. Það má því segja að við eigum Dallas-stefið í Brasilíu sem er ekki slæmt,“ segir tónlistar- maðurinn Einar Tönsberg í Feldberg. Lag sveitarinnar, You and Me, hljómar í upp- hafi hinnar vinsælu brasil- ísku sápuóperu Morde e Assopras og fer aðdá- endahópur Feldberg því stækk- andi þar í landi. Aðdáendur þáttanna hafa gert yfir sextíu myndbönd með lagi Feldberg á Youtube og hefur vin- sælasta myndbandið, þar sem lagið hljómar undir brotum úr þáttunum og með portúgölskum texta, verið skoðað nærri milljón sinnum á síðunni. - áp / sjá síðu 58 Aðdáendahópurinn stækkar: Feldberg í brasil- ískri sápuóperu EINAR TÖNSBERG Ótrúleg byrjun Valsarinn Indriði Áki Þorláksson hefur slegið í gegn í Pepsi-deildinni. sport 50 STÍFUR VINDUR Í dag verða norðaustan 8-15 m/s S- og V-til en hægari NA-lands. Rigning syðra en úrkomulaust að mestu N-lands. Hiti 3-10 stig, mildast syðst. VEÐUR 4 6 5 3 4 7 Helstu útbreiðslusvæði kanínu á Íslandi samgöngusvið Reykjavíkur til umhverfisráðuneytisins um und- anþágu frá lögum til að fækka kanínum í borginni vegna tjóns sem þær yllu og þá helst á gróðri. Undanþága var veitt til veiða árið 2010 og jafnframt farið fram á að útbreiðsla kanína innan borg- arlandsins yrði könnuð frekar, umfang vandamála af þeirra völd- um metið og að gerðar yrðu til- lögur að því hvernig tekið yrði á málum til frambúðar. Niðurstað- an liggur fyrir en verkfræðistofan Verkís annaðist úttektina. Óverulegur fjöldi dýra fannst á átta talningarreitum í borgar- landinu þá daga sem talið var, en rannsóknin var gerð í mars 2012, eða á þeim tíma sem stofninn er í lágmarki. Langmest var af dýrinu í Elliðaárdal við Mjódd (85%) þar sem fólk hefur fóðrað kanínurnar yfir veturinn. Í skýrslunni segir jafnframt að í svari umhverfisráðuneytisins frá 8. júní 2010 við erindi borgarinnar komi fram að Náttúrufræðistofn- un Íslands hafi lýst yfir að útrýma bæri kanínum úr íslenskri náttúru og að Umhverfisstofnun hafi tekið undir það sjónarmið. - shá Helstu staðir þar sem kanínur halda til eru Öskju- hlíðin, Elliðaárdalur, við Rauðavatn og Elliðavatn. Hana má einnig finna í landi Kópavogs, Garða- bæjar og Mosfellsbæjar auk þess sem hún er þekkt í Kjarnaskógi, svæði Skógræktarfélags Eyfirðinga og í Grímsnesi í Árnessýslu. Eins náði hún sér vel á strik í Vestmannaeyjum um árabil. EVRÓPUMÁL Samninganefnd Íslands í aðildarviðræðunum við Evrópusambandið (ESB) fer fram á fimm ára aðlögunartíma að regluverki sambandsins um áfengisinnflutning ferðamanna. Þetta kemur fram í samnings- afstöðu nefndarinnar í skatta- málum. Samkvæmt reglum ESB mega ferðamenn flytja með sér marg- falt meira áfengi og tóbak á milli landa en heimilt er hér á landi. Evrópskar reglur segja til um að á milli landa megi flytja tíu lítra af sterku áfengi, 20 lítra af styrktu víni, 90 af léttvíni og 110 lítra af bjór – eða samtals 230 lítra af áfengi. Samninganefndin segir að breyting í þá veru muni „augljóslega leiða til verulegs tekjutaps ríkissjóðs“, og því þurfi að innleiða reglurnar í áföngum á fimm árum. - sh / sjá síðu 4 Íslendingar vilja í aðlögun: Búist við flóði áfengis úr ESB YFIRVALDIÐ KUBBAR Hreiðar Sigtryggsson, skólastjóri í Langholtsskóla, brá á leik með nokkrum nemendum skólans í gær og verður ekki betur séð en framtíðarhúsnæði skólans sé þarna í mótun. Langholtsskóli á um þessar mundir 60 ára afmæli og fagnar áfanganum með veglegum hætti með opnu húsi á laugardag þar sem fjölbreyttir viðburðir verða um allt hús; nemendur stíga fram og skemmta ungum sem gömlum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.