Fréttablaðið - 27.09.2012, Síða 4

Fréttablaðið - 27.09.2012, Síða 4
27. september 2012 FIMMTUDAGUR4 EVRÓPUMÁL Regluverk Evrópusam- bandsins (ESB) um það hversu mikið áfengi og tóbak fólk má flytja milli landa er mun rýmra en þær reglur sem nú eru í gildi á Íslandi. Ef það yrði tekið upp mundi það leiða til verulegs tekju- taps fyrir ríkið og meðal annars af þeim sökum fer samninganefnd Íslands við Evrópusambandið fram á fimm ára aðlögunartíma til að taka það upp. Þetta kemur fram í samningsaf- stöðu Íslands í skattamálum, sem birt hefur verið á netinu. Evrópskar reglur segja til um að á milli landa megi flytja tíu lítra af sterku áfengi, tuttugu lítra af styrktu víni, níutíu lítra af léttvíni (þar af sextíu lítra af freyðivíni), 110 lítra af bjór – sam- tals 230 lítra af áfengi – 800 síg- arettur (fjögur karton), 400 smá- vindla, 200 vindla og heilt kíló af reyktóbaki. Þetta er margfalt það magn sem Íslendingum er nú heimilt að flytja til landsins, eins og flestir þekkja sem ferðast hafa til útlanda. Í samningsafstöðu Íslands segir að vörugjald af áfengi og tóbaki sé mikilvægur tekjustofn fyrir ríkis- sjóð Íslands, og hafi verið um fjög- ur prósent af heildarskatttekjum ársins 2011. Evrópsku reglurnar mundu „augljóslega leiða til verulegs tekjutaps ríkissjóðs“, vegna minni sölu í fríhafnarverslunum og Vín- búðum ÁTVR, segir í skjalinu. Því er óskað eftir að fá að taka þetta upp í þrepum á fimm árum. Þá er sérstaklega vikið að frí- hafnarversluninni í samnings- afstöðunni, en hún er ekki í sam- ræmi við regluverk ESB. Ekki eru gerðar kröfur þar að lútandi, en þó talin ástæða til að tæpa á álita- efnum í sambandi við hana „vegna félagslegra og svæðisbundinna ástæðna“. Þar segir að félagið sem rekur fríhafnarverslanirnar hafi margt fólk í vinnu, „einkum konur, sem búa á Suðurnesjum þar sem hlutfall atvinnuleysis er hæst á Íslandi“. Afnám gjaldfrjálsrar verslunar mundi ógna rekstri félagsins og starfsöryggi fólks. Þá sé hér rík hefð fyrir gjald- frjálsri verslun við komu til lands- ins og afnámið mundi búa til hvata fyrir fólk að flytja inn hámarks- magn áfengis og tóbaks að utan. „Einnig verður að taka tillit til umhverfis- og öryggisjónarmiða þar sem aukið magn af gjald- frjálsum vörum um borð (aðallega áfengi), getur einungis aukið losun CO² og dregið úr öryggi,“ segir í skjalinu. stigur@frettabladid.is GENGIÐ 26.09.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 221,8382 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 124,26 124,86 201,17 202,15 159,77 160,67 21,426 21,552 21,605 21,733 18,809 18,919 1,5989 1,6083 191,2 192,34 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Óttast að tóbak og vín flæði til landsins eftir ESB-aðild Samninganefnd Íslands vill fá fimm ár til að laga sig að regluverkinu um heimildir ferðamanna til að flytja inn áfengi og tóbak. Tekjutap ríkissjóðs verður verulegt. Nefndin áréttar jafnframt mikilvægi fríhafna. ESB-reglur Sterkt áfengi og styrkt vín Núna Núna Núna ESB-reglur ESB-reglur 1 lítri samtals 12 lítrar 110 lítrar 3 lítrar (4 flöskur) Núna: 1 karton (200 sígarettur) ESB-reglur: 4 karton (800 sígarettur) 90 lítrar (120 flöskur) 30 lítrar samtals (10 sterk / 20 styrkt) Leyfilegt innflutningsmagn nú og ef við tökum upp ESB-reglur Tölurnar miðast við það hámarksmagn sem nú má flytja inn af hverri áfengistegund, sé ekkert annað áfengi flutt inn með því. Það er hins vegar háð samsetningunni og skerðist mjög ef fólk vill taka með sér fleiri en eina tegund. Léttvín Bjór Tóbak lítra af áfengi gætu ferða- menn samtals flutt til landsins ef regluverk ESB yrði innleitt. 230 VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 25° 22° 18° 15° 15° 19° 15° 15° 28° 16° 25° 21° 30° 14° 15° 19° 14°Á MORGUN 8-15 m/s, hvassast SA- og A-til. LAUGARDAGUR Vaxandi A-átt. 7 7 4 4 2 3 5 5 5 10 6 13 13 8 8 8 5 3 4 15 7 8 4 4 6 7 8 6 6 6 4 5 NORÐANÁTT Það gengur smám saman í norðanátt til morguns með úrkomu norð- austantil en þá léttir til um landið suðvestanvert. Víða ágætt veður fyrri part laugardags en vaxandi austanátt síðdegis og þykkn- ar upp syðra. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður ATVINNUMÁL „Okkur var sagt að það hefði komið fyrirskipun frá móður- félaginu um að grípa til aðgerða út af taprekstri,“ segir Gylfi Ingvars- son, trúnaðarmaður starfsmanna í álveri Rio Tinto Alcan í Straums- vík, þar sem þrettán starfsmönn- um var sagt upp á þriðjudag. Stöðugildum verður í heild fækk- að um 27, meðal annars af því að ekki verður ráðið í lausar stöður. Starfsfólki var fyrst greint frá málinu á þriðjudag og það sat síðan upplýsingafund um málið í gær. Ólafur Teitur Guðnason, upplýs- ingafulltrúi Alcan, segir að stöðu- gildin 27 séu um fimm prósent af heildarstöðugildum hjá fyrirtæk- inu. Hagnaður varð af rekstrinum til að byrja með á árinu, en síðan er tapið farið að nálgast milljarð. Ólafur Teitur segir að heildartap- rekstur frá áramótum sé rúmur hálfur milljarður, aðallega vegna lækkandi álverðs. Þá spili líka inn í að rafskaut og súrál hafi hækkað í verði. Ólafur Teitur segir að ekki standi til að fækka fólki frekar á næstunni. Hins vegar þurfi að grípa til annars konar aðhalds- aðgerða samhliða uppsögnunum, draga saman útgjöld, fresta því að endurnýja búnað og lækka ferða- kostnað. - sh Meira en hálfs milljarðs taprekstur á álverinu í Straumsvík í ár: Þrettán sagt upp hjá Alcan UPPSAGNIR Starfsmönnum í Straumsvík fækkar um 27. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SUÐUR-AFRÍKA, AP „Ég hef ekkert að fela,“ sagði Julius Malema, suðurafrískur stjórnmálamaður sem kom fyrir rétt í gær sak- aður um spill- ingu, skattsvik og peninga- þvætti. „Þeir eru að eyða tíma sínum,“ sagði hann. Malema var rekinn úr Afr- íska þjóðar- ráðinu fyrr á þessu ári, sakaður um að efna til illdeilna. Hann hafði þá sagt af sér sem formaður ungliðahreyfingar flokksins eftir að hann hafði látið syngja gömul baráttulög gegn hvíta minnihlut- anum, sem áður kúgaði svarta meirihlutann á tímum aðskilnað- arstefnunnar. Malema hefur verið áberandi undanfarið í tengslum við verk- föll námuverkamanna. - gb Malema fyrir rétt: Segir ákærur vera pólitískar JULIUS MAELMA ORKUMÁL Íslandsstofa og iðnað- arráðuneytið, ásamt sendiráði Íslands í Berlín, stóðu að ráð- stefnu um jarðhita í Varsjá í Pól- landi í síðustu viku. Ráðstefnan var unnin í nánu samstarfi við pólsk stjórnvöld og sýndu heima- menn málefninu mikinn áhuga. Sendiherra Íslands í Berlín, Gunnar Snorri Gunnarsson, flutti eitt af opnunarerindunum og ræddi meðal annars mikilvægi samstarfssamnings um jarðhita- mál sem gerður var milli land- anna beggja á síðasta ári. - shá Ráðstefna í Póllandi: Ræddu jarðhita og samstarf LANDBÚNAÐUR Á Íslandi er virkt eftirlit með framleiðslu kjöt- og mjólkurafurða, þó nokkra ann- marka megi finna á starfsháttum matvælafyrirtækja og opinberra eftirlitsaðila. Þetta er niðurstaða Eftirlits- stofnunar EFTA (ESA) sem birti nýlega skýrslu vegna úttektar á framkvæmd opinbers eftirlits með framleiðslu búfjárafurða (mjólkur og kjöts). Úttektin sem fór fram í maí 2012 er fyrsta úttekt ESA á þessu sviði eftir að matvælalöggjöf ESB tók gildi hér á landi. - shá Skýrsla frá ESA: Virkt eftirlit með afurðum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.