Fréttablaðið - 27.09.2012, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 27.09.2012, Blaðsíða 18
27. september 2012 FIMMTUDAGUR18 Umsjón: nánar á visir.is Hagar hf. högnuðust um 1,5 millj- arða króna á fyrri hluta þessa árs. Þetta kemur fram í drögum að sex mánaða uppgjöri félagsins sem kynnt voru á stjórnarfundi þess í gær. Í tilkynningu til Kaup- hallar kemur fram að uppgjörið verði birt 25. október næstkom- andi. Afkoman er mun betri en væntingar stóðu til og eru ástæð- ur hinnar bættu afkomu sagð- ar lægra kostnaðarhlutfall, betri framlegð og lægri afskriftir. Auk þess hefur viðskiptabanki Haga, Arion banki, boðið félaginu upp á hagstæðari vaxtakjör á lánum þess. Áætlaður ávinningur Haga af þessu er um 70 milljónir króna á ári. Hagar voru skráðir á mark- að í desember 2011. Hlutabréf í Högum hækkuðu umtalsvert í gær eftir að tíðindin um bætta afkomu voru gerð opinber, eða um 1,6 pró- sent. Gengi bréfa í félaginu stóð í 19 krónum á hlut við lok viðskipta. Skráningargengi Haga var 13,5 krónur á hlut og því hefur mark- aðsvirði félagsins aukist um 28,9 prósent frá skráningu. Stærsti eigandi Haga um síð- ustu mánaðamót var Gildi Lífeyr- issjóður með 10,3 prósenta hlut. Þar á eftir komu Búvellir með 7,8 prósenta hlut og LSR með 7,4 pró- senta hlut. - þsj Virði Haga hefur hækkað um þriðjung frá skráningu: Afkoma Haga mun betri en búist var við AUKNING Hagar voru skráðir á markað í desember. Hér sjást Finnur Árnason, forstjóri Haga, og Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, við það tilefni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hagvöxtur mun verða 3,2 prósent í ár, 3,4 prósent á næsta ári og 3,2 prósent árið 2014. Þessi aukn- ing mun verða til þess að slaki í hagkerfinu hverfur. Hagvöxtur- inn verður ekki einungis drifinn áfram af aukinni einkaneyslu held- ur skipta aukin verðmæti sjávarút- vegs, aukinn ferðamannastraumur og fjárfesting í orkuframkvæmdum líka miklu máli í vextinum. Þetta eru helstu niðurstöður þjóðhags- spár Greiningar Íslandsbanka sem kynnt var á fjármálaþingi bankans í gær. Spáin nær til loka árs 2014. Í máli Ingólfs Bender, forstöðu- manns Greiningar bankans, kom meðal annars fram að vöxtur væri á flestum sviðum íslensks efna- hagslífs og að markverður árang- ur hefði náðst við að vinna á kerfis- vandamálum. Í spánni er þó tekið fram að talsverð óvissa ríki um þróun ákveðinna þátta. Neikvæð þróun alþjóðlegra efna- hagsmála myndi til að mynda hafa slæm áhrif á hagvöxt hérlend- is. Það myndu tafir eða frestun á stórum atvinnuvegafjárfestingum á borð við álver í Helguvík líka hafa. Þá ríkir óvissa um afnám gjaldeyrishafta en Ingólfur sagð- ist gera ráð fyrir því að þau myndu að minnsta kosti lifa út spátímann, eða til loka árs 2014. Í máli Ingólfs kom fram að aukin einkaneysla sé til merkis um að heimili landsins séu að komast upp úr öldudalnum. Því til stuðnings gerir spáin ráð fyrir að um 25 pró- senta vöxtur verði á fjárfestingu í íbúðahúsnæði á næsta ári. Þá er reiknað með að fjárfesting sem hlutfall af vergri landsfram- leiðslu muni hækka á ný á spátíma- bilinu. Ingólfur sagði að spáin gerði ráð fyrir um 170 milljarða króna atvinnufjárfestingu á næsta ári og þar af myndu um 50 milljarðar króna verða fjárfestir í orkutengd- um verkefnum. Þá myndu fjárfest- ingar hins opinbera vaxa að nýju á næsta ári. Gert er ráð fyrir að hækkandi ál- og fiskverð og lækkun olíuverðs á tímabilinu muni skila aukinni arð- semi af utanríkisviðskiptum. Ef gömlu bankarnir og Actavis eru undanskilin gerir spáin ráð fyrir því að viðskiptaafgangur verði á bilinu tvö til þrjú prósent á árun- um 2012-2014. Allt þetta muni skila allt að 3,4 prósenta hagvexti á tímabilinu. Í alþjóðlegum samanburði er staða Íslands, ef hún er mæld einvörð- ungu út frá hagvexti, mjög góð. Í síðustu opinberu tölum efna- hags- og framfarastofnunarinnar (OECD), sem eru frá því í maí, kom fram að einungis fimm lönd væru með meiri áætlaðan hagvöxt í ár. Ingólfur sagði að endurskoðuð spá myndi líklega sýna enn betri stöðu Íslands á þeim lista. thordur@frettabladid.is Spá hagvaxtarskeiði á árunum 2012-2014 Hagvöxtur mun verða yfir þrjú prósent á hverju ári út 2014 samkvæmt þjóð- hagsspá Íslandsbanka. Hann verður drifinn áfram af aukinni fjárfestingu, utanríkisviðskiptum og einkaneyslu. Talsverð óvissa um þróun sumra þátta. ÓVISSA Í máli Ingólfs Bender, forstöðumanns Greiningar Íslandsbanka, kom fram að neikvæð þróun alþjóðlegra efnahagsmála, tafir eða frestun á stórum atvinnuvegafjárfestingum og óvissa um afnám gjaldeyrishafta gæti haft neikvæð áhrif á spána. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Í spá Greiningar Íslandbanka segir að hlutabréfamarkaður á Íslandi sé veikburða en að hann sé á batavegi. Því til stuðnings er bent á að velta fari vaxandi þó að taka verði tillit til þess að einungis fjögur félög eru með virka verðmyndun á hlutabréfamarkaðinum á Íslandi. Líklegt þykir þó að tvö önnur, Eimskip og Vodafone, bætist við fyrir lok þessa árs og að minnsta kosti fjögur til viðbótar hafa hug á skráningu á árinu 2013. Í kynningu á spánni kom fram að miðað við stærð íslenska hagkerfisins væri eðlilegt að hlutabréfamarkaðurinn hér á landi myndi stækka umtalsvert. Hlutabréfamarkaður að braggast Hrannar Már Hafberg, lögfræð- ingur og starfandi héraðsdómari, hefur verið skipaður formaður rannsóknarnefndar Alþingis um sparisjóðakerfið eftir að Sigríður Ingvadóttir baðst lausnar í kjölfar ágreinings við hina tvo nefndar- mennina. Ásta Ragnheiður Jóhannes- dóttir, forseti Alþingis, skipaði Hrannar Má í starfið á fundi for- sætisnefndar í dag. Hrannar lauk meistaraprófi frá lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands í febrú- ar 2008. Sigríður hefur snúið aftur til sinna fyrri starfa sem héraðs- dómari við Héraðsdóm Reykja- víkur. Upphaflega átti nefndin að skila skýrslu 1. júní síðastliðinn en verk- efnið reyndist meira um sig og því var skilum á henni frestað fram á haust. Nú stendur til að skila skýrslunni fyrir áramót. Rannsóknarnefnd um sparisjóðakerfið: Hrannar Már nýr nefndarformaður SPKEF skattgreiðendur þurfa að greiða 26 milljarða króna vegna flutnings eigna sjóðsins til Landsbankans. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Meirihlutaeigendur í Ölgerðinni Agli Skalla- grímssyni hf. keyptu í júní síðastliðnum 20 prósenta hlut í fyrirtækinu af Arion banka. Þeir eru OA eignarhaldsfélag, í eigu Andra Þórs Guðmundssonar forstjóra og Októs Einarssonar stjórnarformanns, fjárfestinga- sjóður í stýringu Auðar Capital og F-13 ehf., félag í eigu fjögurra framkvæmdastjóra Ölgerðarinnar. Eftir viðskiptin á Auður fag- fjárfestasjóður 45 prósenta eignarhlut. OA ehf. 38 prósenta og F-13 ehf., 17 prósenta. Samkvæmt árshlutauppgjöri Arion banka voru greiddar 375 milljónir króna fyrir fimmtungshlutinn. Miðað við það verð er markaðsvirði Ölgerðarinnar um 1,9 millj- arðar króna. Um tvö ár eru síðan Ölgerð- in gekk í gegnum fjárhagslega endurskipu- lagningu. Í henni voru skuldir meðal annars lækkaðar úr 9,5 milljörðum króna í 7,2 millj- arða króna. Lækkunin var tilkomin ann- ars vegar vegna inngreiðslu nýs hlutafjár og skuldbreytingar Arion banka í hlutafé sem tryggði honum 20 prósenta eignar- hlut. Í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins til bankans um kaupin segir að fyrrum eig- endur hafi átt kauprétt á hlutnum. „Arion banki ætlaði sér ekki að eiga þennan hlut til lengri tíma enda ekki hluti af kjarnastarf- semi bankans að eiga hluti í félagi eins og Ölgerðinni. Fyrrum eigendur einfaldlega kusu að nýta kaupréttinn og náðist um það samkomulag við bankann.“ Aðrir eigendur Ölgerðarinnar eru í viðtali við Atvinnulífið, tímarit Íslandsbanka um fjármál og efna- hagshorfur sem gefið var út í gær. Þar segir Andri frá því að rekstur Ölgerðarinnar hafi gengið það vel að kaupin reyndust gerleg. Áætluð velta fyrirtækisins í ár er um 18 milljarðar króna. Ölgerðin fór fyrr í sumar í útboð með öll sín bankaviðskipti og flutti í kjölfarið alla fjármögnun og bankaviðskipti yfir til Íslandsbanka. Um er að ræða langtímafjár- mögnun upp á sex til sjö milljarða króna auk allrar bankaþjónustu. -þsj Meirihlutaeigendur Ölgerðarinnar keyptu hlut Arion banka í henni: Keyptu fimmtung á 375 milljónir króna FORSTJÓRI Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, er einn stærsti eigandi hennar líka. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR PRÓSENT er hlutfall skuldabréfa af íslenskri verðbréfaveltu. Hlutabréf eru 13 prósent. 87
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.