Fréttablaðið - 27.09.2012, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 27.09.2012, Blaðsíða 26
26 27. september 2012 FIMMTUDAGUR Nú þegar styttist í alþingis-kosningar er ekki laust við að greina megi ákveðna örvænt- ingu meðal þeirra sem ekki fylgja Sjálfstæðisflokknum að málum. Nýlega töldu oddvitar ríkisstjórn- arinnar sig knúna til að taka það sérstaklega fram að þeim hugn- aðist ekki stefna Sjálfstæðis- flokksins. Var þeim yfirlýsingum almennt vel tekið meðal sjálfstæð- ismanna. Greina mátti svipaða örvæntingu í pistli rithöfundarins Guðmundar Andra Thorssonar í Fréttablaðinu þann 24. septem- ber sl. sem fjallaði öðrum þræði um Sjálfstæðisflokkinn undir yfirskriftinni Leiftursókn gegn fylginu. Reyndar fjallaði pistill- inn ekki um Sjálfstæðisflokk- inn heldur það sem Guðmundur Andri vill að eigi við um Sjálf- stæðisflokkinn. Það er alls ekki það sama. Guðmundur Andri er lipur penni og góður skáldsagna- höfundur. Það var því viðbúið, nú sem endranær, að skrif hans um þetta málefni ættu ekkert skylt við raunveruleikann. Það er ekki nýtt í rökræðu- keppni stjórnmálanna að þeir sem verða rökþrota dragi upp falska mynd af andstæð- ingi sínum og reyni með þeim hætti að höfða til kjósenda með hræðsluáróðri, lygum og dylgj- um. Virðing þeirra fyrir kjós- endum er oftast jafnmikil og sannleiksgildi slíks málflutn- ings. Sem betur fer dæmir slík- ur málflutningur sig iðulega sjálfur enda slík skrif oftast nær að finna meðal þeirra sem teljast virkir í athugasemdum á hinum ýmsu netmiðlum. Það óvenjulega við pistil Guðmund- ar Andra var ekki hvernig hann reyndi að ljúga upp á Sjálfstæði- flokkinn ýmsu vondu heldur hvernig hann reyndi að afbaka staðreyndir um tvo stjórnmála- flokka, hvorn í sínu landinu, og skeyta þeim svo saman í einn til þess að hæðast að öllu saman. Að búa til strámann til þess að rífa hann svo í sundur er áhrifa- mikið áróðursbragð ef vel tekst til. Slíkar barbara brellur eiga þó meira skylt við umræðuhefð í fjölmiðlum vestanhafs og er jöfn- um höndum beitt á repúblikana og demókrata. Sökum smæðar íslensks samfé- lags þýðir hins vegar sem betur fer lítið að ófrægja náungann með slíkum hætti eða leggjast í lyga- herferð gegn einum stjórnmála- flokki. Fólk einfaldlega veit betur og þarf ekki að treysta með öllu á fjölmiðla til að fræðast um hvað er rétt og rangt í þeim efnum. Ljóst er að Guðmundur Andri fylgir ekki Sjálfstæðisflokknum að málum. Að sama skapi er líka ljóst að skrif hans um ímyndaðan flokk, sem hann kallar Sjálfstæð- isflokk, hafa enga raunverulega þýðingu í þjóðmálaumræðunni. Leiftursókn frá raunveruleikanum Ýmsir hafa hnýtt í mig vegna greinar minnar um Milton Friedman sem birtist í Frétta- blaðinu fyrir stuttu. Því vil ég útskýra nánar um hvað sú grein snerist. Í greininni lýsti ég í megin dráttum hvernig Friedman greindi ráðstöfun peninga í eftir- farandi fjórar leiðir: (1) að eyða eigin peningum í sjálfan sig, (2) eigin peningum í aðra, (3) ann- arra peningum í sjálfan sig og (4) annarra peningum í aðra. Fyrir Friedman vakti aðallega að bera saman þann eðlismun sem er á leiðum (1) og (4). Kostur- inn við leið (1) að mati Friedmans er að samkvæmt henni getur þú nýtt peningana í það sem þér hentar en að auki ertu líklegri en ella til að fara vel með þá því þú aflaðir þeirra sjálfur. Í grunnat- riðum lýsir þessi leið markaðsbú- skap því helsta einkenni frjáls markaðar er jú að viðskipti eru sem minnst miðstýrð með boðum, bönnum og sköttum. Neytandinn metur sjálfur hvað er mikilvægt og gagnlegt fyrir hann en ekki ríkið. Ef þú vilt kaupa þér kók, þá kaupir þú þér kók en ekki bók þótt einhverjir aðrir telji að bók geri þér meira gagn en kók. Leið (4) taldi Friedman hins vegar einkenna ríkisbúskap því undir slíku kerfi fá pólitíkusar pening frá öðrum, þ.e. skattgreið- endum, og ráðstafa þeim svo til baka í formi ýmissa verkefna sem í mörgum tilfellum nýtast bara sumum, illa öðrum og enn öðrum ekki neitt. Samt borga allir. Friedman taldi engu að síður að í sumum tilfellum þyrfti, a.m.k. að hluta, að fara leið (4) til að halda uppi nauðsynlegri þjónustu þar sem markaðsbrest- ur verður, t.d. á vissum sviðum samgangna (erfitt að rukka fyrir notkun á hverjum vegarspotta), grunnmenntunar (erfitt að reka þjóðfélag nema fólk kunni að lesa, skrifa og reikna) og velferð- araðstoðar (öryggisnet fyrir fólk sem getur ekki séð fyrir sér). Þá taldi Friedman að óhjákvæmi- legt væri að ríkið sæi að mestu leyti um réttarkerfið, löggæslu og landvarnir (Friedman var þó eindreginn andstæðingur her- skyldu). Hvað önnur svið varðar átti frjáls markaður að mestu leyti að sjá um þau að mati Fried- mans. Því nefndi ég í grein minni Ríkis sjónvarpið því enginn getur haldið því fram með rökum að sú þjónusta hafi á nokkurn hátt með grunnþarfir þjóðfélags eða nauð- synlega samhjálp að gera. Þvert á móti, fólk með litlar tekjur myndi líklega frekar vilja verja fé sínu í annað og mikilvægara heldur en ríkisdrifið sjónvarpsgláp, t.d. til að kaupa hollari mat handa börn- um sínum eða styrkja Kvenna- athvarfið. Nefna má ótal dæmi um fyrir- tæki og stofnanir á vegum ríkis- ins sem fólk er nauðbeygt til að greiða fyrir í gegnum skatta. Áður hef ég nefnt leikhús (hví eru leikhús niðurgreidd en ekki bíó?) en í sömu andrá má nefna ríkis- rekna hljómsveit (hví er sinfóníu- hljómsveit niðurgreidd en ekki t.d. einhver rokkhljómsveit?) að ógleymdri Hörpunni, einhverju grátlegasta dæmi um misnotk- un á almannafé sem Íslandssag- an hefur að geyma. Einnig má nefna sendiráðin í þessu sam- hengi. Þurfum við öll þessi sendi- ráð? Og í sambandi við kókina og bókina má spyrja hvort eðlilegt sé að niðurgreiða allar þessar bókaleigur sem kallast bókasöfn frekar en aðrar leigur, t.d. mynd- bandaleigur eða verkfæraleigur. Nánast í hverjum mánuði er stofnað til nýrra útgjalda á vegum ríkis eða sveitarfélaga. Gildir þá einu hvort einhverj- ir peningar séu til í sjóðum eða ekki. Nýjasta dæmið um bruðl hins opinbera á almannafé er innrás Strætó bs. á ferðamanna- markaðinn. Skyndilega ákveður þetta opinbera fyrirtæki að fara í samkeppni við rútufyrirtæki á frjálsum markaði og bjóða nið- urgreiddar ferðir á milli lands- hluta, t.d. á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Er nema von að fólk spyrji eins og Vefþjóðvilj- inn gerði á dögunum, þ.e. hvort „einhver skattgreiðandi í land- inu [hafi] heyrt þó ekki væri nema einn sveitarstjórnarmann efast um að rétt sé að skattleggja vinnandi fólk í landinu til þess að halda uppi strætisvagnaferðum fimm hundruð kílómetra leið út úr bænum?” Í anda Friedmans vil ég taka undir með Vefþjóðviljanum og bæta við að stjórnmálamenn, sem haga sér með þeim hætti sem dæmið um Strætó bs. sýnir, kunna ekki að fara með peninga, sér í lagi annarra manna pen- inga. Því endurtek ég efnislega lokaorð mín úr síðustu grein, að brýnt sé að slíkir stjórnmála- menn fái ekki brautargengi í næstu kosningum. Friedman og niðurgreiðslur Fjármál Guðmundur Edgarsson málmenntafræðingur Stjórnmál Teitur Björn Einarsson lögmaður islandsbanki.is | Sími 440 4000 Við bjóðum góða þjónustu Fáðu allt að 4,7% vexti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.