Fréttablaðið - 27.09.2012, Page 29

Fréttablaðið - 27.09.2012, Page 29
FIMMTUDAGUR 27. september 2012 29 Andleg og líkamleg vanlíðan nemenda sem lagðir eru í ein- elti hefur verið umfjöllunarefni fjölmiðla á Íslandi að undanförnu. Sama hefur verið uppi á teningn- um á Nýja-Sjálandi, en þar hefur mál móður sem greip inn í þegar ráðist var á dóttur hennar sér- staklega verið til umræðu. Móðir- in á nú yfir höfði sér ákæru vegna þessa máls. Hin sálrænu mein sem hljótast af slíkum atburðum rista djúpt og geta varað allt lífið. Ný lög í Nýja-Sjálandi gegn árás- um á netinu munu hjálpa til við að sporna gegn einelti en einnig er þrýstingur á skólayfirvöld að þau taki fastar á þessum málum. Nokkur átaksverkefni gegn ein- elti eru í gangi sem fjalla um að hjálpa fórnarlambinu að ná bata, um jafningjaaðstoð og um kyn- ferðislega áreitni en best þekktu verkefnin fyrir skóla koma frá nýsjálensku Friðarstofnuninni (Peace Foundation) og kallast „Svalir skólar“ (e. Cool Schools). Verkefni stofnunarinnar hafa verið notuð við fjölmarga grunn- og framhaldsskóla á Nýja-Sjálandi og hafa þróast í áraraðir. „Svalir skólar“–verkefnin sem notuð eru um allt Nýja-Sjáland eru ekki kynnt sem eineltisverk- efni sérstaklega heldur stuðla þau að því að gera nemendum og kennurum kleift að átta sig á því þegar vandamál eru í uppsiglingu og kenna þeim leiðir til að takast á við þau á uppbyggilegan hátt. Þegar unnið er eftir þessum leið- um tekst smátt og smátt að senda nemendum og kennurum skýr skilaboð um að skólinn þeirra sé öruggur staður og að allir vinni saman í að hann verði það alltaf. Verkefnin stuðla að opinni og frjálsri tjáningu í skólum. Nem- endum er kennt að vera góðar fyrirmyndir, að beita sér fyrir heilbrigðum samskiptum og að beina félögum sínum til viðeig- andi fullorðins aðila ef nauðsyn krefur. Bæði nemendum og kenn- urum eru kenndar aðferðir til að takast á við deilur og ágrein- ing sem munu gagnast þeim allt lífið. Aðferðirnar kenna fólki að temja sér stillingu í aðstæðum þegar deilur eiga sér stað. Þetta er hugsað sem verkfærakista sem er full af verkfærum sem nýtast til að taka yfirvegað á málum þegar upp koma átök á milli fólks. Nem- endum og kennurum eru kenndar uppbyggilegar aðferðir við lausn deilumála. Þannig eru nemendur þjálfaðir í því að verða svokallað- ir „jafningjamálamiðlarar“. Það er leiðtogahlutverk sem veitir öðrum ákveðna þjónustu; svo sem að efla gagnkvæma virðingu fólks og einnig að auka skilning á þeirri staðreynd að fólk er mismunandi, og jafnframt að veita samnem- endum sínum aðstoð ef vandamál koma upp. Það hefur sýnt sig að nemendur sem lenda í vandræðum vilja gjarnan ræða við aðra nem- endur sem þeir treysta. En jafn- ingjamálamiðlarar geta einnig stuðlað að fleiri góðum hlutum í skólanum. „Vandamála-verkfærakistan“ nýtist foreldrum ekki síður en nemendum og kennurum. Eitt af verkefnum Friðarstofnunarinn- ar er samið sérstaklega fyrir for- eldra og kennir þeim árangursrík samskipti. Lögð er áhersla á að sannfæra einstaklinga um að þeir geti haft jákvæð áhrif á heimili sínu, í skólanum og í samfélaginu í heild og jafnvel víðar. Verkefnið „Svalir skólar“ var fyrst prófað í tólf grunnskólum í Auckland árið 1991 undir stjórn Yvonne Duncan. Verkefnið gekk svo vel að Yvonne var boðið að fá fullt starf við að stjórna verk- efninu á vegum Friðarstofnun- arinnar. Síðan þá hefur verk- efnið verið kynnt fyrir meira en helmingi allra grunn- og fram- haldsskóla á Nýja-Sjálandi. Mjög jákvæð viðbrögð hafa komið frá nemendum, kennurum, þeim sem stjórna verkefninu í skólum og einnig frá skólastjórum. Það sem flestum stjórnendum og kenn- urum finnst jákvæðast við verk- efnin er að fá að hjálpa nemendum til að aðstoða aðra nemendur við að leysa vandamál. Nemendur á öllum skólastigum segja að það sé svo frábært að geta verið í aðstöðu og með árangursríkar leiðir til að hjálpa öðrum nemendum. Það gefi þeim svo mikið sjálfstraust. Þjálfunin er oft sniðin að þörf- um skólanna. Þegar verkefnið er unnið í framhaldsskólum, kemur leiðbeinandi í skólann í fjóra og hálfan tíma á viku og vinnur með nokkrum nemendum sem hafa verið valdir til að vera „sendi- herrar réttlætisins“ eða „jafn- ingjamálamiðlarar“ ásamt kenn- urum sem eru til stuðnings við verkefnið frá skólans hálfu. Leið- beinandinn stýrir starfsmanna- fundi þar sem verkefnið er kynnt fyrir öllum starfsmönnum skól- ans og þeim er sýnt hvernig þeir geta stutt jafningjamálamiðlar- ana. Kennararnir fá þarna líka góða leiðsögn sem nýtist þeim bæði í starfinu og í einkalífinu. Í grunnskólunum hefur verið árangursríkast að hafa einn dag þar sem kennurunum eru kennd- ar allar tíu leiðirnar í verkefninu, þannig að í lok dagsins hafa kenn- ararnir lært hvernig þeir geta kennt þær nemendum sínum. Friðarstofnunin er með skrif- stofu í Auckland en það að leið- beina skólum á svæðinu er á mínum höndum. Fimm aðrir leið- beinendur stofnunarinnar sjá um aðra hluta landsins. Áhugasam- ir geta haft samband við Friðar- stofnunina beint í síma (09) 373 2379 eða kynnt sér efnið á heima- síðu stofnunarinnar: www.peace. net.nz. Ég mun leiða vinnusmiðju tengda „Svölum skólum” og mála- miðlun jafningja á Friðarþingi skáta á Íslandi. Bæði nemendum og kennurum eru kenndar aðferðir til að takast á við deilur og ágreining… Frábært að geta hjálpað öðrum Samfélagsmál Christina Barruel umsjónarmaður The Cool Schools og þjálfari í Friðarsamtökum Aotearoa

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.