Fréttablaðið - 27.09.2012, Síða 36

Fréttablaðið - 27.09.2012, Síða 36
27. SEPTEMBER 2012 FIMMTUDAGUR2 ● Vísindavaka Aldrei hafa fleiri skráð sig til þátttöku á vísindavöku sem er nú haldin í sjöunda sinn. Dagurinn er tileinkaður evrópskum vís- indamönnum og haldinn hátíðlegur í 320 borgum víðs vegar um álfuna. Fljúgandi fiskar og furðudýr sjávar, samskiptatækni og sprengjur, jarðhiti og jöklar, kínverska og kafbátar, tónvís- indasmiðjur og tónsköpun, orkutækni, eldgos og undur al- heimsins eru meðal þess sem sjá má á Vísindavöku Rannís í Háskólabíói föstudaginn 28. september kl. 17-22. Vísinda- og fræðimenn á Íslandi eru uppfullir af hugmynd- um og eldmóði því aldrei hafa fleiri skráð sig til þátttöku á Vís- indavöku, sem nú er haldin í sjöunda sinn og dregur til sín í kringum 4.000 gesti árlega. Dagurinn er tileinkaður evrópsk- um vísindamönnum og haldinn hátíðlegur þennan dag í 320 borgum Evrópu undir heitinu Researchers‘ Night. Markmiðið með Vísindavöku er að gefa almenningi kost á að hitta þá sem stunda rannsóknir og nýsköpun, kynna fólkið á bak við rannsóknirnar og vekja athygli á fjölbreytni og mikil- vægi vísindastarfs í landinu. Á Vísindavöku mun fræðifólk frá háskólum, stofnunum og fyrirtækjum kynna viðfangsefni sín fyrir almenningi á lifandi og skemmtilegan hátt. Gestir fá að skoða og prófa margs konar tæki og tól sem notuð eru við rannsóknir, skoða ýmsar afurð- ir og spjalla við vísindafólkið sjálft um hvernig er að starfa að vísindum, rannsóknum og nýsköpun. Í ár verður lögð áhersla á lifandi vísindi og uppákomur á sviði og eru börn og ungmenni sérstaklega boðin velkomin á Vísindavöku. Sprengjugengið vinsæla mætir á sviðið, læknar sýna uppskurð, hvalir syngja og fiskar fljúga, notendur stoð- tækja koma fram og boðið verður í stjörnuskoðun og jarðhita- pælingar. Gestir geta reynt að reka Vísindavefinn á gat og fylgst með öruggum súkkulaðisendingum um internetið. Vís- indakaffið hefur verið í gangi alla vikuna um allt land og að- sókn verið einstaklega góð. Verið velkomin á Vísindavöku Rannís! Vísindin lifna við á vísindavöku AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR, SVIÐSSTJÓRI KYNNINGARMÁLA HJÁ RANNÍS OG UMSJÓNARMAÐUR VÍSINDAVÖKU, SKRIFAR: Við opnun Vísindavöku verður veitt viðurkenning Rannís fyrir vísindamiðlun. Katrín Jakobsdótt- ir mennta- og menningarmálaráð- herra afhendir viðurkenninguna fyrir hönd Rannís og fer afhend- ingin fram í aðalsal Háskólabíós kl. 17 föstudaginn 28. september. Vísindavakan er einmitt kjörinn vettvangur fyrir þá sem stunda rannsóknir og nýsköpun til að miðla þekkingu sinni og uppgötv- unum til gesta á lifandi og auð- skiljanlegan hátt, en góð vísinda- miðlun snýst oft um að gera flókna hluti einfalda og tengja þá við dag- legt líf. Viðurkenning fyrir vísinda- miðlun er veitt stofnun, fyrirtæki, einstaklingi, samtökum eða verk- efni, sem þykir hafa staðið ötul- lega að því að miðla vísindum og fræðum til almennings á áhuga- verðan hátt. Skal vísindamiðlunin hafa stuðlað að bættum skilningi almennings, barna, ungmenna og fullorðinna á vísindum og fræð- um og á mikilvægi þeirra fyrir ís- lenskt samfélag. Einnig skal vís- indamiðlunin hafa vakið athygli á starfi vísindamanna og á mikil- vægi rannsókna og nýsköpunar í íslensku samfélagi. Stjörnuskoðunarfélag Seltjarn- arness og Stjörnufræðivefurinn hlutu viðurkenningu Rannís á síð- asta ári fyrir vísindamiðlun, en þeir sem standa að Stjörnuskoð- unarfélaginu og Stjörnufræði- vefnum hafa verið mjög ötulir við að fræða almenning, og sérstak- lega börn og ungmenni um undur alheimsins. Viðurkenning verður veitt fyrir vísindamiðlun Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness hlaut viðurkenningu fyrir vísindamiðlun á Vísindavöku í fyrra. Vísindakaffið er haldið á Súfistanum á annarri hæð í bókabúð Máls og menn- ingar á Laugavegi. Markmiðið er að gefa fólki tækifæri á að heyra sagt frá nýjustu rannsóknum á óformlegan og aðgengilegan hátt um leið og drukkið er kvöldkaffi í notalegri stemningu. Á vísinda- kaffi er leitast við að taka fyrir málefni sem eru ofarlega á baugi í samfélagsumræðunni og fá til samstarfs okkar færasta fræða- fólk. Gestir fá tækifæri til að spyrja og spjalla og komast þann- ig að því hvernig störf vísinda- manna hafa áhrif á daglegt líf okkar allra. KRAFTAR OG FEGURÐ ÍSLENSKRAR NÁTTÚRU Í ár beinist efni vísindakaffikvöld- anna að kröftum íslenskrar nátt- úru og meðal annars rætt um jarð- skjálfta og jökla. Í kvöld verður náttúrufegurðin sjálf til umræðu og mun Guðbjörg Rannveig Jóhannes- dóttir, doktorsnemi í heimspeki við Háskóla Íslands, velta upp þeirri spurningu hvers vegna fagurfræði- leg gildi megi sín oft lítils þegar kemur að ákvarðanatöku um vernd og nýtingu náttúru, jafnvel þótt upp- lifun af náttúrunni og fegurð henn- ar virðist vera efst í huga almenn- ings þegar rætt er um íslenska náttúru. Hvers konar hugleiðing- ar, þekkingu, upplifun, merkingu og gildi skapar upplifun af náttúru- fegurð? Hafa viðbrögð við náttúru- fegurð einhverjar afleiðingar fyrir siðferðilegt viðhorf manna til nátt- úrunnar? Skiptir náttúrufegurð ein- hverju máli fyrir lífsgæði okkar? Er hægt að meta náttúrufegurð? Þess- um spurningum verður velt upp í vísindakaffi Rannís í kvöld, kl. 20, á Súfistanum, Laugavegi. Notaleg stemning á vísindakaffi Rannís ● Í aðdraganda Vísindavöku Rannís er hellt upp á hið sívinsæla vísindakaffi þar sem fræðimenn kynna viðfangsefni sín. Í ár er umfjöllunarefnið kraftar íslenskrar náttúru. Á vísindakaffinu er leitast við að taka fyrir málefni sem eru ofarlega á baugi í samfélagsumræðunni. ÚTGEFANDI: RANNÍS. ÁBYRGÐARMAÐUR: AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR ● RAUNTÍMATÓNSKÖPUN Á SVIÐINU Calmus Automata er rannsóknarverkefni í rauntímatónsköpun með að- stoð gervigreindar og nútíma flutningstækni. Markmið verkefnisins er að skapa nýjar leiðir til sköpunar og flutnings nýrra tónverka í rauntíma. Þetta er gert m.a. með því að hanna nýtt notendaviðmót og skapa samskiptastaðal milli flókins tónsmíðakerfis (CALMUS) og sérhannaðs notendaviðmóts. Þannig skapast möguleikar á frumlegri nálgun á þróun tónefnis til tónsköpunar ásamt því að opna nýjar leiðir til fjöl- breyttari tónsköpunar í nútímatækniumhverfi. Mörg verk hafa verið samin með CALMUS en aldrei fyrr hefur tekist að semja og flytja verk af þessari gerð í rauntíma. Myndin var tekin á Vísindavöku í fyrra.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.