Fréttablaðið - 27.09.2012, Page 62
27. september 2012 FIMMTUDAGUR50
sport@frettabladid.is
STOÐSENDING
29 mín
ÖNNUR UMFERÐ N1-DEILDAR KARLA hefst í kvöld með þremur leikjum. Klukkan 18 tekur
Fram á móti Akureyri en klukkan 19.15 hefjast tveir aðrir leikir. Þá sækir Afturelding meistara HK heim í
Digranesið á meðan Valur tekur á móti FH. Allir leikir verða í beinni á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins.
Byrjun Indriða Áka Þorlákssonar í Pepsi-deildinni
139
MÍNÚTUR
SPILAÐAR
4
MÖRK
MARK 3 mín
1 mín
4 mín
MARK 5 mín
MARK 116 mín
MARK 120 mín
STOÐSENDING
80 mín
5 mín
23 mín
26 mín
80 mín
2
STOÐ-
SENDINGAR
SJÓÐHEITUR Indriði Áki hefur byrjað feril sinn í efstu deild á hreint ótrúlegan hátt.
MYND/HAFLIÐI
Indriði Áki Þorláksson hefur spilað bæði sem miðjumaður og framherji og
Kristján Guðmundsson, þjálfari Valsliðsins, sér hann fyrir sér í stöðu sóknar-
tengiliðs í framtíðinni.
„Hann er eiginlega tía eins og við köllum það. Það er hans besta staða því
hann er mjög duglegur að koma mönnum inn í leiki og finna svæði til að
senda í. Ef þú horfir á hann spila þá sérðu oft hvað hann hinkrar eða bíður
með sendinguna þangað til hann sér rétta hlaupið. Margir aðrir væru búnir
að senda hann á röngum tímapunkti en hann velur tímapunktinn mjög
skemmtilega,“ segir Kristján.
FÓTBOLTI Fáir leikmenn hafa
stimplað sig inn í Pepsi-deild
karla með jafn miklum krafti og
hinn 17 ára gamli Valsmaður Indr-
iði Áki Þorláksson. Indriði Áki var
búinn að skora fyrsta markið sitt
eftir aðeins nokkrar mínútur inn á
vellinum, fyrsta tvennan var full-
komnuð tveimur mínútum síðar
og þá skoraði hann tvö mörk og
lagði upp það þriðja í fyrsta leik
sínum í byrjunarliðinu. Indr-
iði Áki er þegar farinn að vekja
mikinn áhuga erlendra liða og er
meðal annars á leiðinni til Liver-
pool í október þar sem hann fær að
reyna sig í akademíu þessa heims-
fræga félags. Kristján Guðmunds-
son, þjálfari Valsmanna, sá strax í
vetur hvað bjó í stráknum.
„Það eru ekki margir þjálfarar
í úrvalsdeildarliði sem segja við
16 ára strák í desember að hann
sé að fara að æfa með meistara-
flokki. Við sögðum honum að við
myndum byggja hann upp hægt og
rólega þangað til að hann kæmi við
sögu hjá liðinu undir lok mótsins
eins og gekk upp og er að gerast,“
segir Kristján og bætir við: „Leik-
skilningur hans og þroski er gríð-
arlegur.“
Indriði Áki fékk fyrsta tæki-
færið á móti Breiðabliki 8. ágúst
eða aðeins sex dögum eftir að
hann hélt upp á 17 ára afmælið.
Hann kom þá inn á 89. mínútu.
Það liðu 19 dagar þar til Kristján
sendi Indriða næst inn á völlinn
en þá fóru hlutirnir heldur betur
að gerast. Indriði kom inn á undir
lokin í Keflavík og skoraði tvisvar.
„Þetta er alltaf spurning um
tímasetningu. Hann hefur æft
eingöngu með meistaraflokki frá
áramótum, spilaði aðeins með
okkur í Reykjavíkurmótinu og
skoraði þar. Við höfum verið að
venja hann við álagið sem breyt-
ist svo mikið við það að vera í 3.
flokki og fara beint upp í meist-
araflokk. Þetta er mjög vandmeð-
farið,“ segir Kristján.
„Aukaæfingarnar hans í ár
hafa ekki verið með bolta heldur í
styrktarþjálfun. Hann hefur haft
gríðarlega gott af því en hann er
ekki búinn að klára þá þjálfun og
þá styrk sem hann þarf þar. Ég
á von á því þegar hann nær því
og fer að ná hraðabreytingunum
betur að það verði mjög gaman að
sjá til hans,“ segir Kristján.
Indriði Áki fékk fyrsta tæki-
færið í byrjunarliðinu á móti
Grindavík á sunnudaginn. Indr-
iði Áki svaraði kallinu með því
að skora tvö mörk í seinni hálf-
leik en áður hafði hann átt mik-
inn þátt í fyrstu tveimur mörkum
Valsliðsins, fyrst með því að gefa
stoðsendingu á Hauk Pál Sigurðs-
Fagna mest þegar strákurinn skorar
Indriði Áki Þorláksson er bara 17 ára gamall en hefur vakið mikla athygli á fyrstu mínútum sínum í efstu
deild. Strákurinn skoraði fjögur mörk og gaf tvær stoðsendingar á fyrstu tveimur klukkutímunum.
son og svo með því taka frábært
hlaup á nærstöng og opna fyrir
Matthías Guðmundsson sem skor-
aði annað mark Valsliðsins.
„Hann skynjar leikinn og hvert
hann á að hlaupa bæði til að skora
sjálfur og líka hlaupin til að opna
fyrir aðra,“ segir Kristján. Indr-
iði Áki er því kominn með fjög-
ur mörk og tvær stoðsendingar á
139 mínútum í Pepsi-deild karla
í sumar og hefur því komið að
marki á 23,2 mínútna fresti.
„Það er búið að vera gríðar-
lega gaman að vera með hann og
þau mörk sem ég fagna mest er
þegar strákurinn skorar. Það er
ofboðslega gaman að sjá það,“
segir Kristján.
Kristján ætlar að passa upp á
strákinn en það var að heyra á
þjálfaranum að fyrirspurnir um
Indriða Áka hafi komið úr mörg-
um áttum. Áður en hann heldur í
æfingabúðir Liverpool fær Indr-
iði þó að reyna sig á móti besta
liði landsins, FH, í lokaumferð
Pepsi-deildarinnar sem fer fram
á laugardaginn. ooj@frettabladid.is
„Tían“ er hans besta staða
FÓTBOLTI Ragnar Gíslason var
rekinn sem þjálfari 2. deildarliðs
HK á þriðjudag og hann er ekki
par sáttur. HK var ekki langt frá
því að komast upp í 1. deildina en
Ragnar sagði ýmislegt misjafnt
í rökstuðningi meistaraflokks-
ráðs félagsins fyrir brottvikningu
sinni.
„Ein ástæðan fyrir því að mér
var sagt upp var að við fórum
ekki upp um deild. En þessir sömu
menn sögðu fyrir mót að liðið væri
ekki með mannskap til að fara upp
og að það þyrfti eitthvað mikið að
breytast til að það væri mögulegt,“
sagði Ragnar í samtali við Hjört
Hjartarson í Boltanum á X-inu.
„Það eru alls konar pappakass-
ar sem fást í þessi störf – hvort
sem það heitir HK eða eitthvað
annað,“ bætti hann við og átti þá
við þá sem ráða málefnum meist-
araflokks innan félagsins.
„Þetta er bara veruleikinn sem
við búum við. Ef maður ætlar að
vera í þessum pakka þá verður
maður að kyngja því.“
Ragnar segir einnig að pabba-
pólitík sé við lýði í félaginu.
„Ég er auðvitað hundfúll með
að fá sparkið en þetta er niður-
staðan og lítið sem ég get gert
við því. Ég fékk hringingu í gær
þar sem mér var tilkynnt þetta
en þetta var farið að kvisast út á
laugardagskvöldið frá einhverj-
um pabbastráknum. Ég fékk þá
spurnir af þessu. Það er pabba-
pólitík hér eins og annars staðar.
Það vita allir.“
- esá
Ragnar Gíslason afar ósáttur við að vera rekinn:
Pappakassar í stjórninni
HUNDFÚLL Ragnar er ekki að spara stóru orðin. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA Landsmönnum
gefst um helgina kostur á að
snæða með fulltrúum Íslands á
nýafstöðnu Ólympíumóti fatlaðra
í London. Um er að ræða styrkt-
arsamkomu í þágu Íþróttasam-
bands fatlaðra en öll innkoma
rennur til sambandsins.
Um er að ræða hádegismat að
hætti matreiðslumeistara Bláa
Lónsins og hefjast herlegheitin á
laugardaginn klukkan 12. Verð er
3.900 krónur fyrir fullorðna og
1.950 krónur fyrir 7-12 ára börn.
Frítt fyrir 6 ára og yngri. Boðs-
kort í Bláa Lónið er innifalið í
verði fyrir þá sem bóka fyrir kl.
16 föstudaginn 28. september.
Bláa Lónið og Íþróttasamband
fatlaðra gerðu með sér sam-
starfssamning fyrir Ólympíumót
fatlaðra í London í sumar. Samn-
ingurinn er til fjögurra ára og
gildir fram yfir Ólympíumót fatl-
aðra í Ríó 2016.
Helgi Sveinsson, Matthildur
Ylfa Þorsteinsdóttir, Kolbrún
Alda Stefánsdóttir og gullverð-
launahafinn Jón Margeir Sverris-
son, fulltrúar Íslands á Ólympíu-
mótinu í sumar, hafa þegar sett
stefnuna á Ríó eftir fjögur ár.
Bókanir eru í síma 420 8800
eða sales@bluelagoon.is. Bóka
þarf fyrir klukkan 16 á föstudag
til að fá boðskort í Bláa Lónið.
- ktd
Fjáröflun hjá ÍF:
Stefnumót með
Jóni Margeiri
JÓN MARGEIR Vann hug og hjörtu
þjóðarinnar á ÓL í London. MYND/JÓN BJÖRN
FÓTBOLTI Chelsea hefur staðfest að
munum hafi verið rænt úr bún-
ingsklefa leikmanna á æfinga-
svæði félagsins í síðasta mánuði.
Veskjum, símum og úrum var
meðal annars stolið.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
brotist er inn á æfingasvæði
Chelsea sem er staðsett í Cob-
ham. Málið er nú í rannsókn hjá
lögreglunni og segir félagið að
enginn innan þess sé grunaður
um verknaðinn.
Þennan sama dag mun hafa
verið brotist inn á fleiri stöðum
í nágrenninu og er talið líklegt
að það tengist þjófnaðinum á
æfingasvæði Chelsea.
Samkvæmt frétt The Telegr-
aph munu það fyrst og fremst
hafa verið leikmenn unglinga- og
varaliðs Chelsea sem urðu fyrir
barðinu á þjófunum. - esá
Uppákoma hjá Chelsea:
Stolið frá
leikmönnum
ÓHRESSIR Hazard og Torres fögnuðu
ekki þegar búið var að stela af þeim.
NORDICPHOTOS/GETTY