Fréttablaðið - 27.09.2012, Side 64
27. september 2012 FIMMTUDAGUR52
N1-deild kvenna:
Stjarnan-ÍBV 21-26
Stjarnan-kvenna - Mörk (skot): Hanna Guðrún
Stefánsdóttir 9/2 (19/4), Sandra Sif Sigurjóns-
dóttir 3 (3), Ágústa Edda Björnsdóttir 3 (10), Arna
Dýrfjörð 2 (3), Helena Rut Örvarsdóttir 2 (7),
Þórhildur Gunnarsdóttir 1 (1), Aida Dorovic 1 (4),
Indíana Nanna Jóhannsdóttir (6),
Varin skot: Sunneva Einarsdóttir 14 (40, 35%),
Hraðaupphlaup: 10 (Hanna 5, Sandra 2, Arna 2,
Þórhildur )
Fiskuð víti: 4 (Hanna, Sandra 2, Ágústa)
Utan vallar: 6 mínútur.
ÍBV-kvenna - Mörk (skot): Georgeta Grigore 7
(15), Simona Vintila 6 (12), Drífa Þorvaldsdóttir
4 (7), Guðbjörg Guðmannsdóttir 3 (3), Ivana
Mladenovic 3 (4), Sóley Haraldsdóttir 2 (7),
Guðdís Jónatansdóttir 1 (1), Arna Þyrí Ólafsdóttir
(1), Sandra Dís Sigurðardóttir (1),
Varin skot: Florentina Stanciu 22/1 (43/3, 51%),
Hraðaupphlaup: 2 ( Drífa, Guðdís )
Fiskuð víti: 0
Utan vallar: 0 mínútur.
Enski deildarbikarinn:
Arsenal-Coventry 6-1
Theo Walcott 2, Olivier Giroud, Alex Oxlade-
Chamberlain, Andrey Arshavin, Ignasi Miguel
- Callumm Ball.
Carlisle-Tottenham 0-3
- Jan Vertonghen, Andros Townsend, Gylfi Sig.
Man. Utd-Newcastle 2-1
Anderson, Tom Cleverley - Papiss Cisse
QPR-Reading 2-3
David Hoilett, Djibril Cisse - Kaspars Gorkss,
Nickey Shorey, Pavel Pogrebnyak.
WBA-Liverpool 1-2
Gabriel Tamas - Nuri Sahin 2.
Norwich City-Doncaster 1-0
ÚRSLIT
HANDBOLTI Stjörnukonur eru stiga-
lausar eftir fyrstu tvær umferð-
ir N1-deildar kvenna eftir fimm
marka tap á heimavelli, 21-26, á
móti ÍBV í Mýrinni í gær. Eyjakon-
ur byrjuðu báða hálfleiki mjög vel
en hleyptu Stjörnuliðinu aftur inn
í leikinn í fyrri hálfleik. Í seinni
hálfleiknum var sigurinn hins
vegar aldrei í hættu.
Ágústa Edda Björnsdóttir, ein af
nýjum leikmönnum Stjörnuliðsins,
vill samt líta á jákvæðu hliðarnar
enda mikið eftir að gerast í vetur.
„Við verðum að taka jákvæðu
kaflana út úr þessu sem er nátt-
úrulega það að vörnin stendur
vel á köflum og við eigum ágætis
sóknartilþrif inn á milli. Við þurf-
um að byggja á því og halda áfram
að reyna að bæta okkur. Þetta er
mjög erfitt sóknarlega og það er
það sem við þurfum að vinna í á
næstunni. Við erum eins og allir
vita með meidda leikmenn en við
þurfum samt að spila á þessu liði
þangað til að þær koma inn,“ sagði
Ágústa Edda eftir leik en það er
nóg af leikmönnum fyrir utan
liðið. „Rakel (Dögg Bragadóttir),
Jóna (Margrét Ragnarsdóttir),
Kristín Clausen og Ester (Ragn-
arsdóttir) eiga eftir að koma inn í
þetta. Við eigum inni nokkra leik-
menn sem geta verið í byrjunarlið-
inu hjá okkur og þetta verður því
vonandi bara á uppleið hjá okkur,“
sagði Ágústa Edda.
Þetta var fyrsti sigur Eyjaliðs-
ins í sumar því þær gerðu jafntefli
við Gróttu á heimavelli í fyrstu
umferðinni. Guðbjörg Guðmanns-
dóttir var sátt í leikslok. „Þetta
var frekar ljúft. Við vorum frek-
ar óánægðar eftir fyrsta leikinn
því við vissum að við áttum meira
inni,“ sagði Guðbjörg. ÍBV-liðið
átti slæman kafla um miðjan fyrri
hálfleik þegar Stjarnan breytti
stöðunni úr 8-3 í 10-9.
„Um leið og þær fóru að keyra
á okkur og fá hraðaupphlaupin þá
komust þær yfir. Við lokuðum á
það og þá fór allt að ganga upp. Við
fórum að keyra til baka og drífa
okkur heim. Þá áttu þær ekki svar
við okkar leik,“ segir Guðbjörg.
„Ég bjóst við að þær myndu
hanga meira í okkur því Stjarnan
er þekkt fyrir að vera með bar-
áttulið. Þær eru líka að glíma við
meiðsli og það eru stórir leikmenn
sem voru ekki í þeirra liði núna.
Það er alltaf erfitt. Þetta var samt
annar leikur og það var byrjenda-
bragur á báðum liðum. Það var
því gott fyrir sálina að fá tvö stig
í hús,“ sagði Guðbjörg.
- óój
Stjörnukonur enn stigalausar eftir sannfærandi Eyjasigur í Mýrinni í gær:
Þetta er mjög erfitt sóknarlega
STRJÖRNUSÓKNIN Í VANDRÆÐUM Sandra Sif Sigurjónsdóttir reynir að troða sér í
gegnum Eyjavörnina. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Stjarnan náði markalausu
jafntefli í fyrsta Evrópuleik sínum
á Samsung -vellinum í Garðabæ í
gær gegn rússneska liðinu FC
Zorkiy. Stjarnan var einum færri
frá 37. mínútu þegar Gunnhildur
Yrsa Jónsdóttir fékk að líta rauða
spjaldið.
Það var ljóst strax í upphafi að
Stjarnan var meðvituð um styrk-
leika rússneska liðsins. Stjarn-
an lék þéttan varnarleik og gaf
fá færi á sér og freistaði þess að
sækja hratt. Það gekk vel til að
byrja með og var Stjarnan í tví-
gang nálægt því að skora snemma
leiks.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir átti
skot í stöngina strax á þriðju mín-
útu en ellefu mínútum síðar fékk
hún að líta gula spjaldið fyrir full
glæfralega tæklingu á miðjum
vellinum. Gunnhildur bauð upp
á aðra glórulausa tæklingu á
miðjum vellinum á 37. mínútu og
seinna gula spjaldið óhjákvæmi-
lega á loft og Stjarnan því einum
færri í hátt í klukkustund.
Gunnhildur Yrsa á að vera nógu
reynslumikil til að henda sér ekki í
svona tæklingu á miðjum vellinum
með gult spjald á bakinu. Spennu-
stigið var mögulega of hátt enda
Stjarnan að leika sinn fyrsta Evr-
ópuleik.
Zorkiy sótti án afláts fram að
hálfleik og fékk fín færi en náðu
ekki að ónáða Söndru Sigurðar-
dóttur í marki Stjörnunnar að
neinu ráði.
Zorkiy pressaði Stjörnuna hátt
strax í upphafi seinni hálfleiks og
var greinilega skipun þjálfarans
að reyna að skora strax. Stjarnan
stóð pressuna vel af sér með því
að liggja aftarlega á vellinum og
freista þess að nýta hraða fram-
herja sinna þegar færi á skyndi-
sóknum gáfust.
Þó Stjarnan næði að standa af
sér þungar sóknir rússneska liðs-
ins héldu Rússarnir ró sinni og
héldu áfram að sækja með því
að láta boltann ganga vel á milli
manna. Leikurinn breyttist í
keppni í þolinmæði.
Zorkiy fékk dauðafæri á 83. mín-
útu þegar ítalski framherji liðs-
ins, Pamela Conti, skaut í stöng
af markteig ein gegn Söndru.
Fjórum mínútum síðar átti Zor-
kiy annað skot í stöngina. Heppn-
in með Stjörnunni sem er vel inni
í einvíginu fyrir seinni leikinn í
Rússlandi.
Enn fékk rússneska liðið dauða-
færi á 90. mínútu en lukku dísirn-
ar voru á bandi Stjörnunnar því
boltinn fór rétt framhjá og Stjarn-
an náði að halda út.
Virkilega vel af sér vikið hjá
Stjörnunni sem á þó virkilega erf-
iðan leik eftir í Rússlandi. Haldi
allir leikmenn liðsins sér inni á
vellinum án þess að láta reka sig
útaf er aldrei að vita nema liðið
vinni sér inn rétt til að mæta stór-
liði Lyon í 16 liða úrslitum. - gmi
Náðu jafntefli manni færri
Stjarnan frá Garðabæ lét það ekki á sig fá að spila rúmlega hálfan Evrópuleik
manni færri. Liðið varðist fimlega og hélt hreinu gegn sterku rússnesku liði.
BARÁTTA Stjörnustúlkur gáfu ekki tommu eftir á heimavelli sínum í gær þó svo þær væru aðeins tíu stóran hluta af leiknum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM