Fréttablaðið - 27.09.2012, Síða 70

Fréttablaðið - 27.09.2012, Síða 70
27. september 2012 FIMMTUDAGUR58 „Serían er nokkurs konar Dallas þeirra Brasilíubúa, full af drama- tík og látum. Það má því segja að við eigum Dallas-stefið í Brasil- íu sem er ekki slæmt,“ segir tón- listarmaðurinn Einar Tönsberg í Feldberg, en sveitin á upphafsstef brasilísku sápuóperunnar Morde e Assopras. Um er að ræða lagið You and Me sem kom út á plötunni Don‘t Be A Stranger árið 2009. Það var í gegnum umboðsskrifstofu sveit- arinnar í Bretlandi sem framleið- endur þáttana keyptu lagið. Lagið hljómar í upphafi hvers þáttar sápuóperunnar. Sýningum var að ljúka á fyrstu seríunni, en hún taldi alls 179 þætti. „Þetta er mjög fyndið allt saman. Hvern hefði grunað að við yrðum vinsæl í brasilískum sápuóperuheimi?“ veltir söngkon- an Rósa Birgitta Ísfeld fyrir sér. Rósa hafði ekki leitt hugann oft að sápunni fyrr en vinkona henn- ar flutti til Brasilíu og fékk hlát- urskast er hún heyrði rödd Rósu í sjónvarpinu. „Brasilíubúar eru trylltir í sápuóperur og það er allt- af heilög stund á daginn á meðan hinar ýmsu seríur eru í sjónvarp- inu,“ segir hún. Mordas e Assopras, eða Bit og blástur á íslensku, nýtur gífur- legra vinsælda í heimalandi sínu en þættirnir hófu göngu sína á síð- asta ári. Aðdáendur þáttanna hafa gert yfir sextíu myndbönd með lagi Feldberg á Youtube og hefur vinsælasta myndbandið, þar sem lagið hljómar undir brotum úr þáttunum og með portúgölskum texta, fengið nærri milljón áhorf- um á síðunni. „Brasilíubúar eru einnig mjög duglegir á Twitter þar sem sífellt er verið að deila laginu. Það er gaman að fylgjast með því,“ útskýrir Rósa og bætir við að dúettinn hafi ekki grætt á tá og fingri á sölu lagsins í þætt- ina. Rósa og Einar ákváðu engu að síður að slá til enda heillaði hinn risavaxni brasilíski markað- ur. Brasilíski aðdáendahópurinn DRYKKURINN „Uppáhalds áfengi drykkurinn er Jägermeister í orkudrykk en annars er Kókómjólk alveg málið.“ Óli Geir Jónsson, umboðsmaður hjá Agent.is EINAR TÖNSBERG: EINS OG AÐ EIGA DALLAS-STEFIÐ Í BRASILÍU Eiga upphafslagið í vin- sælli sápuóperu í Brasilíu VINSÆL Í BRASILÍU Rósa Birgitta Ísfeld og Einar Tönsberg í sveitinni Feldberg eiga upphafsstefið í vinsælli sápuóperu í Brasilíu og hafa eignast aðdáendahóp í landinu í kjölfarið. Morde e Assopras er brasilísk sápuópera sem hóf göngu sína árið 2011. Þættirnir fjalla um steingervinga- fræðinginn Júlíu sem finnur sjaldgæfar risaeðluleifar á ferð sinni um Japan. Hún verður hins vegar fyrir andlegu áfalli er hún týnir þeim í jarðskjálfta. Sögusviðið er Tókýó. Fyrsta serían taldi 1.790 þætti Brasilíska Playboy-fyrirsætan Flavia Alessandro leikur hlutverk í þáttunum. Þættirnir unnu til ýmissa sjónvarpsverðlauna í heimalandi sínu á síðasta ári. Sápuóperur eru vinsælar í Brasilíu og innlend framleiðsla á þess konar sjónvarpsefni umfangsmikill iðnaður. Rósa Birgitta gaf nýverið út lagið Bull og vitleysa sem er ábreiða af brasil- íska laginu Más Que Nada sem Sergio Mendes gerði frægt. UMFANGSMIKILL IÐNAÐUR hefur því stækkað og stefgjöldin mjakast inn. „Þetta er svo rosalega stórt land og það er ekkert sjálf- gefið að verða þekktur í Brasilíu, enda tónlistarsmekkur þeirra oft ólíkur okkar. Brasilískir aðdáend- ur hafa líka verið að hvetja okkur til að koma og spila. Það væri nú ekki leiðinlegt.“ alfrun@frettabladid.is Fyrsta plata tónlistarmannsins Ásgeirs Trausta, Dýrð í dauðaþögn, hefur selst eins og heitar lummur að undanförnu. Samanlagt hafa um tvö þúsund ein- tök farið yfir búðarborðið á aðeins þremur vikum og situr platan í efsta sæti Tónlistans aðra vikuna í röð. „Ég er nokkuð viss um að Ásgeir fer yfir tíu þús- und eintök á árinu en það er langt umfram vænt- ingar fyrir nokkrum vikum,“ segir Eiður Arnarsson hjá útgáfufyrirtækinu Senu þegar hann er beðinn um að spá fyrir um söluna. Mugison sló öll met í fyrra með plötunni Haglél sem seldist í um þrjátíu þúsund eintökum. Er Ásgeir Trausti næsti Mugison? „Ég veit það nú ekki. Í sam- hengi við plötusölu held ég að það sé erfitt að leita að næsta Mugison. Mig grunar að Haglél sé fyrir- bæri sem verði ekki endurtekið í sölu en það þarf mikið að ganga á til að plata Ásgeirs verði ekki söluhæsta plata ársins,“ fullyrðir Eiður. Helst gæti My Head Is An Animal með Of Monsters and Men skákað Ásgeiri Trausta en hún hefur selst jafnt og þétt hér á landi síðan hún kom út fyrir ári síðan, eða í yfir sautján þúsund eintökum. - fb Spáir yfir tíu þúsund eintökum VINSÆLL Fyrsta plata Ásgeirs Trausta hefur selst í um tvö þúsund eintökum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Við finnum fyrir mikilli eftirvæntingu fyrir þessari bók,“ segir Ragnar Veigar Guðmundsson, vörustjóri erlendra bóka í Eymundsson, um nýjustu bók metsöluhöf- undarins JK Rowling, The Casual Vacancy, sem kemur út í Bretlandi í dag. The Casual Vacancy er fyrsta skáld- saga JK Rowling síðan seinasta bók Harry Potter-seríunnar kom út árið 2007. Mikill spenningur er fyrir bókinni í Bretlandi en yfir milljón eintök hafa þegar selst þar í forsölu. Búist er við góðum viðtökum hér á landi og fullyrðir Ragnar að pantað hafi verið óvenjulega mikið magn af bókinni. „Við pöntuðum fleiri hundruð eintök sem er óeðlilega mikið. Biðlistar eru þegar farn- ir að myndast í búðunum og spennan er greinilega mikil.“ Mikil leynd hefur verið yfir The Casual Vacancy og til að mynda fékk blaðamaður The Guardian að lesa bókina í læstu her- bergi með öryggisverði yfir sér áður en hann tók viðtal við Rowling. Í viðtalinu kemur fram að Rowling hafi litlar áhyggj- ur af sölutölum, en er í mun að þessi fyrsta skáldsaga hennar fyrir fullorðna falli í kramið hjá lesendum. Ragnar á von á því að bókin verði komin í verslanir um eða eftir helgi, en hún er svo væntanleg í íslenskri þýðingu í nóvember. The Casual Vacancy verður hins vegar fáanleg á rafbókarformi á vefsíðunni Eymundsson.is strax í dag. - áp Óvenju mörg eintök pöntuð af Rowling Farðu skynsamlega með þitt Fé! Fékort er nýtt fyrirframgreitt greiðslukort, sem sameinar bestu kosti þess að nota reiðufé og kredit- kort. Nýja MasterCard Fékort auðveldar þér að taka fjármálin fastari tökum og færir þér um leið ærleg afsláttarkjör hjá fjölda áhugaverðra fyrirtækja. Það er óþarfi að vera kindarlegur. Sæktu um Fékort á www.kreditkort.is. THE CASUAL VACANCY J.K. ROWLING ■ Fjallar um friðsæla smábæinn Pagford sem snýst upp í and- hverfu sína er einn bæjar- fulltrúi fellur frá og sæti hans í bæjar- ráðinu losnar.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.