Fréttablaðið - 12.10.2012, Blaðsíða 4
12. október 2012 FÖSTUDAGUR4
GENGIÐ 11.10.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,9192
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
122,55 123,13
196,47 197,43
158,17 159,05
21,202 21,326
21,415 21,541
18,277 18,385
1,5646 1,5738
188,45 189,57
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SAFNAMÁL Starfshópur á vegum
mennta- og menningarráðuneyt-
isins og Reykjavíkurborgar telur
mögulegt að setja upp náttúru-
minjasýningu Náttúruminjasafns
Íslands í Perlunni. Slík sýning
útheimtir hins vegar breytingar
á húsnæðinu, að mati hópsins. Nú
verða teknar upp viðræður til að
kanna betur fjárhagslegan grund-
völl hugmynda starfshópsins en
Perlan hentar ekki sem framtíðar-
húsnæði fyrir safnið að óbreyttu.
Þetta kom fram í svari Katrínar
Jakobsdóttur mennta- og menn-
ingarmálaráðherra á mánudag við
fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur,
þingmanns Framsóknarflokks-
ins, um stöðu Náttúruminjasafns
Íslands (NMÍ).
Fyrirspurn Sivjar helgast af
þeirri stöðu að safnið er húsnæðis-
laust frá og með áramótum, eins
og Fréttablaðið fjallaði um 29.
september. Benti Siv á að staða
safnsins væri með öllu ótæk í ljósi
þess að um eitt af þremur höfuð-
söfnum þjóðarinnar væri að ræða.
Mennta- og menningarráðu-
neytið og Reykjavíkurborg
skipuðu í ágúst starfshóp til að
skoða möguleika á því að koma upp
náttúruminjasafni eða sýningu á
vegum NMÍ í Perlunni. Hópurinn
hefur lokið störfum og sett fram
hugmynd um að þar verði sett upp
náttúruminjasýning.
Ráðherra gat þess að hópurinn
teldi það miklu skipta hvaða hlutar
Perlunnar yrðu ætlaðir fyrir sýn-
ingu, ef af henni yrði. Nauðsyn-
legt væri að smíða millihæð í hluta
hins opna rýmis til að hug myndin
gengi upp. Frágangur mann-
virkisins og smíði millihæðar væri
því forsenda þess að húsið hentaði
fyrir grunnsýningu höfuðsafns um
náttúruminjar.
Hópurinn telur jafnframt nauð-
synlegt að einn eða fleiri tankar
verði hluti sýningar rýmis til
lengri tíma eigi hugmyndin að
vera raunhæf. Hvað framtíð
safnsins áhrærir þá er Perlan ekki
talin henta til lengri tíma án við-
bygginga.
Nú verða teknar upp viðræður
ríkis og borgar til að kanna betur
fjárhagslegan grundvöll þeirra
hugmynda sem starfshópurinn
setti fram.
Í lok umræðna tók Álfheiður
Ingadóttir, þingmaður Vinstri
grænna, til máls. Þar greindi hún
frá því að á næstu dögum myndi
hún leggja fram þingsályktunar-
tillögu um að hafinn yrði að nýju
undirbúningur að byggingu nátt-
úruhúss í Vatnsmýri, eins og lengi
var stefnt að. svavar@frettabladid.is
Grænt ljós á Perluna
fyrir náttúrusýningu
Starfshópur telur mögulegt að setja upp sýningu náttúruminja í Perlunni. Ef
það á að verða að veruleika þarf að breyta húsnæðinu nokkuð. Kanna á fjár-
hagslegan grundvöll. Perlan hentar ekki sem framtíðarhúsnæði að óbreyttu.
FRAMTÍÐ SAFNS Á næstunni verður lögð fram tillaga á Alþingi um að náttúruhús rísi
í Vatnsmýrinni, eins og margir telja besta kostinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
RÚSSLAND, AP Dómararnir þrír,
sem í vikunni staðfestu tveggja
ára fangelsisdóm yfir tveimur af
þremur konum í pönksveitinni
Pussy Riot, gripu til þess óvenju-
lega ráðs í gær að verja gerðir
sínar opinberlega. Dómi þriðju
konunnar var breytt í skilorðs-
bundið fangelsi.
Dómararnir fullyrða að ákvörð-
un þeirra hafi ekki verið tekin
vegna þrýstings að ofan, heldur
hafi þeir aðeins skoðað efnisatriði
málsins. „Það hefur aldrei verið
neinn þrýstingur á okkur í þessu
máli,“ sagði Larisa Poljakova,
einn dómaranna þriggja. - gb
Málaferli Pussy Riot:
Dómarar segj-
ast sjálfstæðir
TVEIR DÓMARANNA Júrí Pasjúnín og
Larisa Poljakova á blaðamannafundi.
NORDICPHOTOS/AFP
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
25°
18°
12°
11°
14°
14°
11°
11°
26°
14°
24°
15°
28°
9°
16°
17°
8°Á MORGUN
Strekkingur með S-
ströndinni og allra vest-
ast annars hægri.
SUNNUDAGUR
Strekkingur með S-
ströndinni annars
hægri.
7 7
6
6
5
8 8
8 7
7
8
8
9
8
7
6
76
6
7
2
6
5
3
2 2
3
3
4
3
2
9
SKIN OG SKÚRIR
verða á landinu
um helgina. Eftir
bjartan dag vestan-
lands fer að rigna
í kvöld og verður
rigning suð vestan
til á morgun en
annars víða lítils-
háttar skúrir. Á
Norðurlandi verður
þó líklega bjart.
Sunnudagurinn
verður svo nokkuð
bjartur víðast hvar.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
TÆKNI Eitt af hverjum hundrað
íslenskum fyrirtækjum með tíu
starfsmenn eða fleiri var ekki
með tölvur og nettengingu á síð-
asta ári, að því er fram kemur í
könnun Hagstofunnar.
Þar segir jafnframt að 86%
fyrirtækja með tíu starfsmenn
eða fleiri séu með eigin vef síður,
sem er fjölgun frá fyrra ári. 30%
fyrirtækja af þeirri stærð hafa
starfandi sérfræðing í upplýs-
ingatækni og 67% nettengdra
fyrirtækja veita starfsfólki þráð-
laus tæki til að tengjast neti utan
vinnustaða. - þj
Tækninotkun fyrirtækja:
Um 99% með
tölvur og net
DÓMSTÓLAR Fótboltamaðurinn
Mark Doninger, sem lék með
úrvalsdeildarliði ÍA og síðar með
Stjörnunni í Garðabæ, hlaut í
gær 45 daga fangelsisdóm fyrir
að ráðast í tvígang á þáverandi
kærustu sína.
Dómurinn, sem kveðinn var
upp í Héraðsdómi Reykjavíkur,
er skilorðsbundinn í þrjú ár og
kemur til hegningarauka við fjög-
urra mánaða líkamsárásardóm
sem Doninger hlaut í apríl í fyrra.
Árásirnar sem Doninger er nú
dæmdur fyrir áttu sér stað 22.
maí og 30. október í fyrra. - óká
Mark Doninger á skilorði:
Dæmdur í 45
daga fangelsi
DÓMSTÓLAR 31 árs Reykvíkingur
var í gær dæmdur í Héraðsdómi
Reykjavíkur til þriggja mánaða
fangelsisvistar fyrir að ganga í
skrokk á fyrrverandi sambýlis-
konu og barnsmóður sinni, auk
fíkniefnabrota. Konunni voru
dæmdar 200.000 krónur í bætur
og 125.000 í málskostnað.
Maðurinn réðist á konuna á
heimili sínu í Reykjavík í septem-
ber í fyrra eftir að hún kom þar
að, gerði athugasemd við „partí-
stand“ og ætlaði að hafa börn
þeirra með sér á braut.
Í bíl og á heimili mannsins fann
lögregla svo í byrjun þessa árs
marijúana og amfetamín. - óká
Fékk dóm fyrir árás og dóp:
Rifrildi leiddi
til líkamsárásar
STJÓRNMÁL Róbert Marshall velti
því fyrir sér að bjóða sig ekki fram
til þings á ný áður en hann ákvað
að ganga til liðs við Bjarta framtíð.
Hann ræddi þau áform sín við Guð-
mund Steingrímsson, forsvarsmann
Bjartrar framtíðar, fyrir nokkrum
vikum og í kjölfarið hóf hann að
skoða málefnastarf flokksins.
„Það er það sem ræður ákvörð-
uninni fyrst og fremst. Mér finnst
mjög jákvæðir hlutir þarna á ferð-
inni sem ég vil taka þátt í. Það er
verið að vinna að hlutunum allt
öðruvísi og hugmyndin er að vinna
síðan inni á þinginu með allt öðru-
vísi hætti en þessir gömlu flokkar
gera. Hafandi reynt það get ég borið
virðingu fyrir þeim sem vilja gera
það áfram, en ég vil það ekki fyrir
mitt leyti. Ég vil reyna að nálgast
þetta með öðrum hætti, ég held að
það sé hægt að gera þetta betur,“
segir Róbert.
Hann greindi Jóhönnu Sigurðar-
dóttur og Magnúsi Orra Schram,
formanni og þingflokksformanni
Samfylkingarinnar, frá ákvörðun
sinni í gærmorgun. Að því loknu
tilkynnti hann ákvörðunina fyrir
þinginu. Hann hyggst styðja ríkis-
stjórnina út kjörtímabilið. - þeb
Róbert Marshall tilkynnti í gær um að hann myndi bjóða sig fram fyrir Bjarta framtíð:
Velti því fyrir sér að hætta þingmennsku
Birgitta Jónsdóttir .................................Úr Borgarahreyfingu í Hreyfingu
Margrét Tryggvadóttir..........................Úr Borgarahreyfingu í Hreyfingu
Þór Saari ..................................................Úr Borgarahreyfingu í Hreyfingu
Þráinn Bertelsson .................................Úr Borgarahreyfingu í VG
Guðmundur Steingrímsson ...............Úr Framsóknarflokknum í Bjarta framtíð
Atli Gíslason ............................................Úr VG og er utan flokka
Ásmundur Einar Daðason .................Úr VG í Framsóknarflokkinn
Lilja Mósesdóttir ...................................Úr VG í Samstöðu
Aðrir sem hafa skipt á kjörtímabilinu
Tekist um Keilugrandakaup
Meirihluti borgarráðs hafnaði að
fresta afgreiðslu kaupsamnings um
Keilugranda 1. Sjálfstæðismenn
sögðu KR-inga telja lóðina geta leyst
þörf fyrir íþróttaæfingasvæði. For-
maður borgarráðs sagði fund verða
með KR fyrir afgreiðslu í borgarstjórn.
REYKJAVÍKURBORG