Fréttablaðið - 12.10.2012, Blaðsíða 30
8 • LÍFIÐ 12. OKTÓBER 2012
KORPUOUTLET, KORPUTORGI • Opið mánudag til laugardags frá 11 til 18 • Sunnudaga frá 12 til 18 • S. 578 9400
Nike • Adidas • Didrikson • Champion • Roxy • Speedo • Seafolly • Arena
Zara • Levis • Lee • Wrangler • Boswell • Lindbergh • Shine • Sixmix • Imac
Bullboxer • Kaffe • Veto • B young • Oasis • All saints • Fransa • … og fl.
STÆRSTA OUTLET LANDSINS!
HVAR ANNARS STAÐAR FÆRÐU ALLT AÐ
80% AFSLÁTT FRÁ UPPHAFLEGU VERÐI!
Fjöldi þekktra vörumerkja:
Rá
ða
nd
i -
a
ug
lý
si
ng
as
to
fa
e
hf
.
Fylgstu með okkur á Facebook!
ALL A D A G A
• T
ÖK
UM
UP
P NÝJAR VÖRUR •
ATH!
sólahringsins, hvernig gengur þér að halda
þér í líkamlegu og andlegu jafnvægi? Ég
spila mikið seint á kvöldin og mínir vinnutímar
eru vægast sagt óreglulegir. Það er því auðvelt
að ofkeyra sig ef maður passar sig ekki, en ég
hugsa vel um sjálfa mig og veit mín takmörk.
Getur líka samið þegar henni líður vel
Tónlistin þín er „feel good“ tónlist, líður þér
eins og þú syngur? Ég á það til að semja
mest af tónlist þegar mér líður illa, þá er eins
og skáldagyðjan banki upp á og það er mjög
læknandi að semja um hlutina. Stundum veit
ég ekki hvaðan hugmyndirnar að lögum og
textum koma, þetta bara rennur í gegnum mann
sé maður stilltur inn á þessa tíðni. En það sem
ég hef verið að þroska mig í undanfarin ár er
að semja ekki bara þegar maður dettur í van-
líðan. Þá á listamannseðlið í manni til að bregða
fyrir mann fæti og þá er hætta á að maður fari
að skapa neikvæðar aðstæður í lífi sínu til þess
að semja sig svo út úr. Ég hef unnið hörðum
höndum við að temja þetta eðli og núna get
ég líka samið þó mér líði vel og ég held að það
heyrist á nýju plötunni minni Star-crossed.
Eitthvað að lokum? Næst á dagskrá hjá mér
er að gera myndband við næsta lag af plötunni
sem heitir Electrify my heartbeat ásamt vin-
konu minni og snillingnum Þóru Hilmars dóttur
en ég er nokkuð viss um að hún eigi eftir að
öðlast heimsfrægð fyrir vinnu sína. Tökur hefj-
ast á þriðjudaginn og ég réð vinkonur mínar í
flest störf því ég á svo fáránlega hæfileikaríkar
vinkonur. Silvía Lovetank listakona sér um list-
ræna yfirsjón, Helga Lilja ( Helicopter ) og Sara
María ( Forynja ) um búninga, Harpa Kára dóttir
um make-up þannig að þó þetta verði erfiðis-
vinna ég get ég ekki beðið eftir að skapa eitt-
hvað ógleymanlegt með þessum fagra hóp.
Framhald af síðu 7
Þórunn Antonía hefur nóg að gera þessa dagana. MYNDIR/ANTON BRINK
Dagarnir mínir eru aldrei eins og rútínan
lítil vegna þess hve ólík verkefnin eru sem
ég tek að mér. Til dæmis var dagurinn í dag
svona:
11.00 Vaknaði í morgun klukkan 11 af því að ég fór mjög seint
að sofa. Ég er að koma mér fyrir í nýrri íbúð
þannig það er gott að nota næturkyrrðina til
að dúllast í að koma sér vel fyrir. Setti Elvis
Presley á fóninn meðan ég kíkti á Gmail, var
aðeins á Facebook og Instagram og hringdi
í vinkonur mínar til að hlæja mig inn í daginn
meðan ég hellti upp á kaffi.
11.30 Fór í sturtu og hoppaði í nokkrar búðir til að finna föt
fyrir myndatöku. Talaði við pabba minn í sím-
ann og lofaði að kíkja til Hveró um helgina.
13.15 Mætti í myndatökuna og for í „make up“ og pósaði svo
myndunum á Instagram á meðan ég þuldi
upp reglur í hausnum sem ég hafði heyrt
kastað fram af Tyru Banks í America´s Next
Top Model. Hökuna niður, bein í baki, brosa
með augunum og svo framvegis.
15.00 Mætti mjög uppstríluð eftir myndatökuna á Kaffivagninn
út á Granda með helling af búðarpokum sem
er pottþétt ekki algeng sjón á þessum slóð-
um. Þar fundaði ég með vinkonum mínum,
Þóru Hilmarsdóttir leikstjóra og Sylvíu Love-
tank listakonu um myndbandið mitt sem
við erum að fara að taka upp í næstu viku.
Fékk mér kaffi og fattaði að ég hafði gleymt
að borða, meikaði ekki rækjusamloku með
mæjó og fór á Vegamót og náði mér í fisk
dagsins eins og svo oft áður og hélt á vinnu-
stofu vinkonu minnar í áframhaldandi þar
sem við fórum yfir vídeóplön. Settist á stól
sem var brotinn og datt á rassinn.
18.00 Mætti í kveðjupartý á Danska barinn til Sunnu vinkonu minnar
sem er að fara í heimsreisu eftir tvo daga.
Eftir hálfan lítra af bjór var ég farin að íhuga
að skella mér bara með. Rölti svo heim í nýju
íbúðina og spjallaði við mömmu mína í sím-
ann á leiðinni.
19.00 Ætlaði að fara í hot jóga en fór ekki. Ég hugsaði um að
fara í sund en nennti ekki heldur fór heim að
klára að senda nokkur email. Kvöldið er enn
þá óráðið en ég kíki kannski í heimsókn, fer
kannski út að labba og er með nýja diskinn
með Feist í græjunum og hugsa hvað ætli
gerist á morgun.
23.30 Var þreytt og pældi í að fara að sofa en varð svöng og
sauð mér brokkolí með ostrusósu. Það er ein
af mörgum miðnætursnakksuppskriftum sem
ég hef neyðst til að blanda saman vegna
matarskorts í ísskápnum mínum.
24.00 Gaf undan nátthrafna eðlinu og kíkti á Sylvíu vinkonu á
vinnustofuna hennar, sem er tveimur húsum
frá mér, í spjall og horfði á hana mála meðan
ég kíkti á antikhúsgögn á netinu til að fá
hugmyndir fyrir nýja heimilið.
Þórunnar Antoníu