Fréttablaðið - 12.10.2012, Síða 10
Allir helstu stjórnmálaflokk-
arnir á Íslandi báru ábyrgð
á stjórnun Orkuveitunnar
á því tímabili sem skuldir
hennar ruku upp. Þeir komu
líka allir að ákvörðunum um
að greiða sér arð út úr fyrir-
tækinu. Úttektarnefnd telur
arðgreiðslur fjármagnaðar
með lántökum.
Skuldir Orkuveitu Reykja víkur (OR)
jukust úr 17,7 milljörðum króna í
224,4 milljarða króna frá árs byrjun
2002 til ársloka 2010. Á sama tíma
greiddu eigendur fyrirtækisins
sér arð upp á 16,3 milljarða króna
og ábyrgðargjald upp á rúmlega
tvo milljarða króna og færðu hlut
Landsvirkjunar til Reykjavíkur-
borgar sem seldi hlutinn síðar fyrir
á fjórða tug milljarða króna.
Þetta kemur fram í skýrslu
úttektarnefndar um starfsemi OR
á ofangreindu tímabili. Nefndin
telur að arðgreiðslurnar hafi verið
fjármagnaðar með erlendri lántöku
og að ábyrgð stjórnar og stjórnenda
á ógöngum fyrirtækisins sé mikil.
Allir helstu flokkarnir stýrðu
Reykjavík, og þar af leiðandi OR,
á þessu tímabili. Því má segja að
þverpólitísk ábyrgð sé á þeim fjár-
hagslegu ógöngum sem OR rataði í á
fyrsta áratug þessarar aldar.
Alfreð Þorsteinsson var stjórnar-
formaður OR í umboði R-listans frá
stofnun hennar í upphafi árs 1999 og
þar til eftir kosningarnar 2006. Að
R-listanum stóðu Samfylkingin, VG
og Framsóknarflokkurinn.
12. október 2012 FÖSTUDAGUR10
Þverpólitísk ábyrgð á óráðsíu OR
Eftir kosningarnar 2006 var
myndaður meirihluti Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks. Við
þau tímamót varð Guðlaugur Þór
Þórðarson stjórnarformaður OR.
Hann sat í þeim stóli þar til í júní
2007. Við tók Haukur Leósson sem
var síðan látinn hætta eftir að REI-
málið komst í hámæli í október
sama ár. Skömmu seinna var mynd-
aður nýr meirihluti Samfylkingar,
VG og Framsóknarflokks í borginni
og hann skipaði Bryndísi Hlöðvers-
dóttur í starf stjórnarformanns OR.
Sú stjórn sat í 100 daga áður en
nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og
F-lista Ólafs F. Magnússonar tók við
taumunum. Kjartan Magnússon tók
við stjórnarformennsku í OR fram
í ágúst þegar meirihlutinn sprakk
aftur. Þá tóku Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur höndum saman
og gerðu Guðlaug Þ. Sverrisson að
stjórnarformanni. Hann sat fram
yfir kosningarnar vorið 2010 þegar
nýr meirihluti Besta flokksins og
Samfylkingar skipaði Harald Flosa
Tryggvason stjórnarformann. Hann
situr enn.
Guðmundur Þóroddsson var for-
stjóri OR frá því að fyrirtækið var
sett á fót og fram á mitt ár 2008. Þá
tók Hjörleifur Kvaran, sem hafði
verið aðstoðarforstjóri, við keflinu.
Hjörleifur hafði reyndar setið í for-
stjórastólnum tímabundið áður á
meðan Guðmundur tók sér leyfi til
að stýra Reykjavík Energy Invest
(REI), útrásararmi OR, um stundar-
sakir. Hjörleifi var sagt upp störfum
í fyrra og Bjarni Bjarnason ráðinn
í hans stað.
ARÐGREIÐSLUR
1.748
milljónir
Rannsóknarskýrsla um Orkuveitu Reykjavíkur
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@fréttabladid.is
31. desember 2010224,4
milljarðar króna
1. jan
úar 2
002
17,7
millja
rðar k
róna
2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010
ARÐGREIÐSLUR
2.121
milljón
ARÐGREIÐSLUR
2.164
milljónir
ARÐGREIÐSLUR
2.204
milljónir
ARÐGREIÐSLUR
2.081
milljón
ARÐGREIÐSLUR
2.081
milljón
ARÐGREIÐSLUR
2.411
milljónir
ARÐGREIÐSLUR
821
milljón
ARÐGREIÐSLUR
800
milljónir
Arðgreiðslur, skuldir og þeir sem stjórnuðu
ALLAR TÖLUR ERU Á
VERÐLAGI 2010
Umboðsmenn
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · Hekla Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Alfreð Þorsteinsson
stjórnarformaður
Guðlaugur Þór
Þórðarson
tók við í júní Haukur Leósson frá
júní til október. Bryndís
Hlöðversdóttir var út
janúar 2008.
Kjartan Magnússon
frá febrúar til ágúst. Guð-
laugur Þ. Sverrisson
tók þá við.