Fréttablaðið - 14.11.2012, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 14.11.2012, Blaðsíða 34
14. nóvember 2012 MIÐVIKUDAGUR30 sport@frettabladid.is 30. maí 2012 Svíþjóð 2-3 ■ Svíþjóð var þarna 114 sætum ofar á heims- listanum (17-131). ■ Svíar komust í 2-0 eftir aðeins 14 mínútur. ■ Kolbeinn Sigþórsson og Hallgrímur Jónas- son skoruðu mörkin. 27. maí Frakkland 2-3 ■ Frakkland var þarna 115 sætum ofar á heimslistanum (16-131). ■ Ísland komst í 2-0 eftir 34 mínútur. ■ Birkir Bjarnason og Kolbeinn Sigþórsson skoruðu mörkin. ■ Frakkar skoruðu þrjú mörk í seinni hálfleik á 52., 85. og 87. mínútu. 29. febrúar Svartfjallal. 1-2 ■ Svartfjallaland var þarna 52 sætum ofar á heimslistanum (51-103). ■ Alfreð Finnbogason jafnaði á 79. mínútu. ■ Svartfjallaland skoraði sigurmarkið á 87. mínútu en staðan var markalaus í hálfleik. 24. febrúar 2012 Japan 1-3 ■ Fyrsti leikurinn undir stjórn Lars Lagerbäck. ■ Japan var þarna 73 sætum ofar á heims- listanum (30-103). ■ Arnór Smárason minnkaði muninn úr víti í uppbótartíma. ■ Japan komst í 1-0 á 2. mínútu. 10. ág. 2011 Ungverjal. 0-4 ■ Ungverjaland var þarna 74 sætum ofar á heimslistanum (47-121). ■ Stærsta tapið undir stjórn Ólafs Jóhannes- sonar. ■ Eini vináttulandsleikur ársins. 7. nóv. 2010 Ísrael 2-3 ■ Ísrael var þarna 54 sætum ofar á heims- listanum (56-110). ■ Ísrael komst í 3-0 eftir 27 mínútur. ■ Kolbeinn Sigþórsson og Alfreð Finnbogason skoruðu mörkin. ÞÓR OG KR eiga bæði möguleika á því að komast í hóp fjögurra efstu liðanna í Dominos-deild karla í körfubolta þegar liðin mæt- ast í Icelandic Glacial-höllinni í Þorlákshöfn í kvöld. KR (6. sæti) og Þór (8. sæti) eru með sex stig og ná Grindavík að stigum með sigri en meistararnir sitja þessa stundina í 3. sætinu. Þetta er eini leikur kvöldsins en honum var frestað á dögunum vegna veðurs. Í kvöld fara einnig fram fjórir leikir í Dominos-deild kvenna: Grindavík-Keflavík, Haukar-Njarðvík, Fjölnir-Snæfell og KR-Valur. Stjórnin var á því að Tryggvi hentaði ekki liðinu. Af hverju ekki vil ég ekki tjá mig um. EINAR KRISTJÁN JÓNSSON FORMAÐUR KNATTSPYRNUDEILDAR BLIKA FÓTBOLTI Framarar fengu flottan liðsstyrk í gær þegar hinn 37 ára gamli varnarmaður, Ólafur Örn Bjarnason, skrifaði undir samning við félagið. Hann kemur til liðsins frá Grindavík. „Ég vildi gera þetta á fullu í tvö ár eða sleppa þessu. Þegar maður á eitt ár eftir af samningi og veit ekki hvað tekur við þá verða síð- ustu mánuðir í lausu lofti. Ég er alls ekki búinn að fá leið á fótbolta og geri seint. Ég var því klár í að taka tvö ár með trompi,“ sagði varnarmaðurinn síungi. „Þetta gerðist hratt. Ég hitti Þorvald þjálfara á föstudags- kvöldið og eftir það yngdist ég um fimm ár og var klár í allt. Hann var ekkert að velta fyrir sér hvað ég væri gamall heldur vildi hann semja við mig.“ Ólafur segir að sér lítist afar vel á Fram-liðið sem hefur ekki staðið undir væntingum síðustu ár. „Það hefur vantað einhvern herslumun hjá þeim. Það býr mikið í þessu liði og fullt af flottum fót- boltamönnum þarna. Það þarf ekki mikið til að liðið fari að ógna þeim bestu tel ég.“ Ólafur er þriðji leik maðurinn sem Fram fær til sín. Viktor Bjarki Arnarsson og Haukur Baldvins son voru áður búnir að semja við Safa- mýrarliðið. „Ég var ekki í alvöru við ræðum við nein önnur félög. Bara smá spjall. Um leið og ég var búinn að tala við Þorvald var öllu öðru ýtt til hliðar. Ég tel okkur eiga að geta teflt fram flottu liði næsta sumar. Það er flott að fá Viktor inn sem kann þetta allt.“ - hbg Ólafur Örn farinn frá Grindavík yfir í Safamýrina: Tek tvö ár með trompi SAMHERJAR Ólafur reynir hér að stöðva Steven Lennon í sumar. Þeir spila saman næsta sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Talsverð læti voru í kring- um Blika í gær eftir að Tryggvi Guðmundsson, nýjasti leikmaður Fylkis, sakaði Einar Kristján Jóns- son, formann knattspyrnudeildar Breiðabliks, um að segja ósatt. Einar Kristján sagði í samtali við vefsíðuna 433 að samkomulag hefði ekki náðst við Tryggva sem hefði æft með félaginu upp á síð- kastið. Tryggvi sagði í Boltanum á X-inu 977 að það væri hreinlega rangt. Breiðablik hefði aldrei boðið honum samning. Þurfa allir að vera sáttir þegar samið er við leikmann „Nei, ég er ekki að ljúga. Ég sagði miklu meira í þessu viðtali en það var ákveðið að hafa það ekki eftir mér,“ sagði Einar Kristján við Fréttablaðið. En hvað vantaði í áðurnefnt viðtal sem hann vildi koma á framfæri? „Það að allir þurfa að vera sáttir þegar samið er um leikmann. Það er þjálfari, stjórnin og leikmað- urinn. Ég taldi að það hefði ekki náðst samkomulag við leikmann- inn. Það er munur á því að telja það eða halda því fram. Það var ekki búið að bjóða honum samning en mér skilst að formaður meistara- flokksráðs hafi nefnt einhverjar upphæðir við hann á fundi. Ég veit ekki hvort hann hafnaði því eða ekki.“ Eftir það upphlaup sem varð á netinu í gær er Einar á því að hann hafi orðað hlutina klúðurslega? „Þetta var kannski misskilið. Ég veit ekki hvort þetta var klúðurs- lega orðað. Ég var ekki að ljúga neinu. Þegar setningar eru teknar úr samhengi þá verður stundum misskilningur.“ Ólafur þjálfari ekki sáttur Tryggvi hafði verið að æfa með Blikum og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafði þjálfari félagsins, Ólafur Kristjánsson, mikinn áhuga á því að semja við Tryggva. Sami áhugi var ekki fyrir hendi hjá stjórninni. Samkvæmt heimildum blaðsins var Ólafur ekki par sáttur við þá ákvörðun stjórnar. Hann vildi þó ekki ræða málið við Fréttablaðið í gær. „Stjórnin var á því að hann hentaði ekki liðinu. Af hverju ekki vil ég ekki tjá mig um. Bæði stjórn og þjálfari verða að vera sátt við þá leikmenn sem samið er við,“ sagði Einar Kristján. Þýðir það að Ólafur þjálfari ráði ekki leik- mannamálum félagsins? „Auðvitað stýrir hann því en það verða allir að vera sáttir. Við sköffum honum ekki leikmenn og öfugt. Hann var ekkert sérstak- lega ánægður með þessa ákvörðun okkar,“ sagði Einar en óttast hann ekkert að vera búinn að styggja Ólaf með þessu útspili? „Ég held að Ólafur sé vel hugs- andi maður og því sé svo ekki. Ég held að þetta atvik muni ekki haf áhrif á samstarf stjórnar og þjálf- ara. Við erum allir vel hugsandi og stefnum saman að okkar mark- miðum. Þetta er sama verkefnið þó svo allir hafi ekki sömu sýn og skoðun um hvaða leið eigi að fara. Við Ólafur erum búnir að ræða málið og það er enginn órói. Ég held að menn hafi gengið sáttir frá því.“ Formaðurinn vildi ekki ræða það hversu margir innan stjórn hefðu ekki viljað fá Tryggva. Vildi hann sjálfur semja við Tryggva? „Ég vil ekki tjá mig um það. Þessi ákvörðun var tekin og við stöndum við það. Meira er ekki um það að segja.“ henry@frettabladid.is Ég var ekki að ljúga neinu Einar Kristján Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, neitar því að hafa logið til um samskiptin við Tryggva Guðmundsson. Stjórn Blika tók fram fyrir hendur þjálfarans og neitaði að gera Tryggva samningstilboð. ENGINN ÓRÓI Einar Kristján segist vera búinn að ræða málið við Ólaf þjálfara og þeir hafi gengið sáttir frá borði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Íslenska karlalands liðið verður í eldlínunni í Andorra þar sem liðið leikur lokaleik sinn á árinu 2012. Um er að ræða vin- áttulandsleik á móti þjóðinni í 203. sæti á heimslistanum og liði sem hefur ekki unnið í síðustu 57 leikjum sínum. Þetta er tíundi landsleikur Íslands á fyrsta ári liðsins undir stjórn Lars Lagerbäck og allt til alls til að enda viðburðaríkt ár með því að ná í sjaldgæfan sigur í vináttulandsleik á útivelli. Íslenska landsliðið hefur tapað síðustu sex vináttulandsleikjum sínum á útivelli og ekki unnið í slíkum leik í tíu leikjum eða síðan 19. nóvember 2008. Hér fyrir neðan má sjá stutt yfirlit yfir sex síðustu vináttu- landsleiki Íslands á útivelli en í fjórum síðustu var liðið undir stjórn Lars Lagerbäck. - óój Síðustu sex vináttuleikir á útivelli hafa ekki endað vel hjá íslenska landsliðinu: Ná strákarnir í sjaldgæfan sigur? KOLBEINN SIGÞÓRSSON Skoraði tvö af fjórum mörkum Íslands í síðustu tveimur vináttuleikjum á útivelli en báðir töpuðust. NORDICPHOTOS/AFP PI PA PI PAPAPAAA PI PAAPAPA PI PA PI PAAAAAPAPAPAPAPAAPAPAPAPAPA PI PAPPPIPIPPI PIPPPPI P PIPIPIPPPPPPPP RRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRR \\\\\\\\\\\\\\\ W A A W A W A W A W A AA W AA W AA W A W AA W A TB W AA W A W AA W AA W AA W A W A W A W A WWWWWWWW TB WW TB W TB WWBTBBBT •••••••••••••••••• A AAAAA SÍ AAAAAÍAAÍAASÍ AÍAAÍAÍAAASÍ AA SÍ A SÍ A SÍ A SÍ A SÍ A SÍSÍSSSS SS SSSS •••••••••••••••••••••• 66666 23 26 66666666 12 32 6 666 32 6 6 1 23 26 666 23 26 6 1 23 26 6 1 23 26 66 23 26 66 23 26 6 12 32 6 6 12 32 6 6 32 6 6 32 6 6 32 6 6 6 6 23 26 66 23 26 6 12 32 6 66 12 32 6 6 23 26 6 23 26 6 12 32 6 6 6 6 12 32 6 6 1 23 26 6 1 23 26 6 23 26 23 26 23 2666 12 32 6 12 32 6 23 266 23 26 12 32 666 12 32 6 23 2632 6 23 266266 23 266 23 26 12 32 12 3232 12 3233 12 3323232321 Orkuhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 108 Reykjavík / S. 517 3900 / www.flexor.is Skór á alla fjölskylduna í Flexor 10.990 3.990 6.990 10.990 9.530 Stærðir 20–27 Stærð 36–41 Stærð 36–41 Stærðir 36–41 Stærðir 36–41

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.