Fréttablaðið - 08.12.2012, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 08.12.2012, Blaðsíða 2
8. desember 2012 LAUGARDAGURFRÉTTIR 2➜12 SKOÐUN 16➜27 HELGIN 28➜68 SPORT 102➜104 MENNING 74➜110 BRUNI Íbúar við Laugaveg 51 auk eiganda verslunar þar segja íkveikju það eina sem komi til greina að hafi átt sér stað þegar eldur braust út í mannlausri íbúð á annarri hæð hússins upp úr hádegi í gær. Ekkert rafmagn hefur verið á íbúðinni í nokkra mánuði. Allt tiltækt slökkvilið höfuðborg- arsvæðisins var kallað til þegar vegfarendur sáu mikinn reyk stíga út um glugga húsnæðisins. Manni var bjargað við illan leik út um glugga á þriðju hæð og var hann fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Allt húsið er mikið skemmt af reyk. Verslunin Manía er á jarðhæð hússins og urðu miklar skemmdir á henni af völdum vatns og reyks. María Birta Bjarnadóttir, eigandi verslunarinnar, segist enga skýr- ingu geta fundið á eldsupptökum aðra en íkveikju. „Það er ekkert annað sem kemur til greina. Íbúðin hefur verið mann- laus í svo langan tíma. Það er ekki einu sinni rafmagn á henni,“ segir hún. Að hennar sögn eru einungis tveir sófar, borð og eitt rúm inni í íbúðinni, en hún fór þangað inn fyrir nokkrum dögum. Hún hefur enga hugmynd um hver gæti verið þar að verki. Starfsfólk Maníu var í óða önn í gær að bjarga verðmætum í gær. Stórt gat var gert í loftið til að hleypa vatni niður og mikla reykjar- lykt lagði um allt rýmið. Óvíst er hvenær verslunin verður opnuð á ný, en María er tryggð fyrir tjóninu. Friðrik Guðmundsson, íbúi á efstu hæð hússins, er sammála Maríu um að ekkert annað komi til greina en að kveikt hafi verið í. „Þetta var íkveikja. Það er ekk- ert rafmagn á íbúðinni og fólk hefur verið að valsa þarna út og inn í langan tíma. Alls konar fólk og margir með lykla,“ segir hann. „Ég er búinn að berjast gegn því frá árinu 2005 að það sé búið í þessu skrifstofuhúsnæði sem uppfyllir engin lagaleg skilyrði um slíkt. Ég hef verið í samskiptum við bygg- ingafulltrúa borgarinnar í fjölda ára varðandi þetta, en hann hefur aldrei gert neitt í málinu. Svo endar þetta svona.“ Fleiri íbúar sem Fréttablaðið ræddi við voru á sömu skoðun og Friðrik og María. Slökkviliðsmenn á svæðinu vildu þó ekki taka undir grunsemdir íbúanna, en sögðu málið fara í rannsókn til lögreglu sem myndi skera úr um elds upptök. sunna@frettabladid.is „ Það ætti að loka þessum verksmiðjum en það er ekki auðvelt verk.“ 12 Kalpona Akter um fataverksmiðjur í Bangladess ENGIN SORPA, BANKI, VÍNBÚÐ EÐA PÓSTUR Í GRAFARVOGI LENGUR 8 SÖNNUNARBYRÐIN ER KOMUFARÞEGANNA 6 LJÓSAKRÓNA VERÐ 49.900,- TILBOÐ 34.900,- Pfaff // Grensásvegi 13 // Sími 414 0400 Opið í dag, laugardag kl. 11-16. 30% kíktu inn á www.pfaff.is AÐEINS Í DAG! Íbúar sannfærðir um að kveikt hafi verið í Íbúar við Laugaveg 51 eru sannfærðir um að kveikt hafi verið í húsnæðinu í gær. Manni var bjargað út um glugga á þriðju hæð. Allt húsið mikið skemmt af reyk. Mikið tjón í versluninni Maníu. Íbúi hefur farið fram á endurbætur síðan 2005. BJARGAÐ Slökkviliðsmenn reistu stiga við húsið svo að maðurinn, sem var í íbúð á þriðju hæð, gat komist út um glugga og niður. FRÉTTABLAÐIÐ/KRISTJÁN Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisfl okksins, bar vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í svokölluðu Vafningsmáli sérstaks sak- sóknara. Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, hefur í vikunni staðið í orðasennu við Gunn- ar Birgisson, bæjar fulltrúa Sjálfstæðisfl okksins, um samskiptahefðina í bæjarstjórn Kópavogs. Jón F. Bjartmarz, yfi rlög- regluþjónn hjá Ríkislögreglu- stjóra, ræddi í vikunni um hryðjuverkaógn á Íslandi, sem hann telur umtalsverða. Jón Ólafs- son athafna- maður var í vikunni dæmdur í Héraðs dómi Reykja- víkur til að greiða Landsbankanum 455 millj- ónir króna, auk dráttarvaxta. FIMM Í FRÉTTUM HRYÐJUVERKAÓGN OG HANDBOLTI TÚRANDI ÆTTARMÓT 28 FM Belfast komin á kreik eft ir barneignarleyfi . BÆKUR Í BÍÓ 38 Tugir íslenskra skáldsagna bíða þess að vera kvikmyndaðir. BABB Í BJÖRGUNARBÁTINN 42 Björgunarskip Landsbjargar þarfnast endur- bóta. HÚSIN Á EYRINNI 46 Arkitektúr 19. aldar nýtur sín á Ísafi rði. UMSLÖG ÁRSINS 50 Plötuumslög ársins tekin til kostanna. KRAKKASÍÐA 66 KROSSGÁTA 68 SAGA UM SÖGU 76 Ritdómur um Fjarveru Braga Ólafssonar. BLÍÐA AÐ BJÓÐA 82 Lilja Nótt Þórarinsdóttir fl ytur einleik um vændi. SKREYTUM HÚS … 96 Saga jólatrjánna rakin. UPPGJÖR Á ÁRAMÓTUM 110 Áramótabomba Mið-Íslands og Önnu Svövu til höfuðs Skaupinu. JÓLAMYNDIR HARÐHAUSANNA 56 Bíómyndir fyrir fullorðin jólabörn. ➜ Hrafnhildur Skúladóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik, hefur haft í nógu að snúast vegna Evrópumeistaramótsins í Serbíu sem stendur yfi r þessa dagana. Gengi liðsins hefur ekki verið eins gott og vonir stóðu til. Þetta var íkveikja. Það er ekkert rafmagn á íbúð- inni og fólk hefur verið að valsa þarna út og inn í langan tíma. Alls konar fólk og margir með lykla. Friðrik Guðmundsson Íbúi á efstu hæð FJÁRLÖG OG VERÐBÓLGA 16 Þorsteinn Pálsson um fj árlögin. ÚTRÝMUM KYNBUNDNU OFBELDI 18 Þögnin hefur verið rofi n, skrifar Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. MIKILVÆGI HLUTABRÉFASKRÁNINGA 22 Páll Harðarson um hlutabréfamarkaðinn. DÝRASTA BÓKIN UM LAX SELD Á EBAY 4 RÚSSAR ENN MEÐ FAST TAK 102 Íslenska kvennalandsliðið úr leik á Evrópumótinu í handbolta eft ir tap gegn Rússlandi. MANCHESTER MUN NÖTRA 104 Stórslagur ársins í enska boltanum á morgun þegar Manchester United og Manchester City mætast.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.