Fréttablaðið - 08.12.2012, Page 6

Fréttablaðið - 08.12.2012, Page 6
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6 TOLLAMÁL Sönnunarbyrði vegna uppruna þeirra hluta sem far- þegar koma með til landsins ligg- ur hjá þeim sjálfum, en ekki toll- gæslunni. Tollstjóri segir að í grunninn sé um að ræða kröfu farþega um tollfrelsi og því heyri það upp á þá að sýna fram á að þeir eigi rétt á því. Talsmaður neytenda segir hæpið að ganga svo gegn hagsmunum neytenda. Tollgæslan beinir þeim til- mælum til þeirra sem fara utan með verðmæti, sem eru tollskyld að þau taki með sér kvittun eða annars konar sönnun um að greitt hafi verið tilheyrandi aðflutnings- gjöld af við- komandi hlut. Snorri Olsen tollstjóri játar því að í raun sé ekki hægt að skylda fólk til þess að taka kvittanir með sér til að sanna uppruna vöru. Málið þurfi þó að skoða á rétt- um forsendum. „Almenna reglan er sú að al lt sem þú tekur með þér til lands- ins er tollskylt. Undan þágan, samkvæmt lögum, er að ferðamenn njóta tollfrelsis upp að ákveðnu marki. Ef verðmæti vörunnar er umfram það, þarf viðkomandi að sýna fram á að búið sé að greiða af henni. Ef því væri farið á hinn veginn væri útilokað að við gætum stoppað nokkurn einasta mann í svona málum.“ Snorri segir þó að ef ferða- maður er stöðvaður með vöru, til dæmis myndavél, sem er augljós- lega ekki nýkeypt, geti það verið trúverðugt og ekkert væri þá gert í málinu. Tollverðir taki afstöðu til hvers tilfellis og ef svo vill til að vafi leikur á um fullyrðingu ferðamanns, er varan tekin af viðkomandi, tímabundið. Þá fær hann tækifæri til að finna kvittun eða aðra sönnun fyrir því að sann- arlega sé búið að greiða aðflutn- ingsgjöld af vörunni og fær hana þá aftur. „Geti viðkomandi alls ekki sýnt fram á með nokkrum hætti að búið sé að greiða af hlutnum, þá ber hann því miður hallann af því og ég skil vel að menn geti orðið sárir yfir því.“ Fyrir nokkrum árum var hægt að skrá hluti hjá tollinum áður en haldið var utan, en Snorri segir að jafnvel það hafi ekki falið í sér sönnun um að gjöld hafi verið greidd og því standi slíkt ekki lengur til boða. Gísli Tryggvason, tals maður neytenda, segir aðspurður að almennt finnist honum ekki þess háttar fyrirkomulag réttlátt. „Það er hæpið að snúa alveg við sönnunarbyrðinni fyrir því að neytandi hafi keypt vöru áður en hann fór úr landi. Alla vega ekki án þess að bjóða upp á einfalda málskotleið til óháðs aðila. Hags- munir einstaklinga fyrir því að fá að kaupa og fara með hluti úr landi og aftur heim hljóta að vega þyngra en skattheimtuhagsmunir ríkisins.“ thorgils@frettabladid.is Geti viðkomandi alls ekki sýnt fram á með nokkrum hætti að búið sé að greiða af hlutnum, þá ber hann því miður hall- ann af því og ég skil vel að menn geti orðið sárir yfir því. Snorri Olsen tollstjóri Jólatilboð Sönnunarbyrðin er á komufarþegunum Þó ekki sé hægt að skylda farþega til að hafa kvittanir með öllum hlutum sem þeir tóku með sér að utan er það þeirra að sanna við heimkomu að þegar hafi verið greidd af þeim gjöld. Tollstjóri segir alla hluti í raun vera tollskylda við komuna. GÍSLI TRYGGVASON SNORRI OLSEN Í TOLLINUM Þó að ekki sé hægt að skylda farþega við komuna til landsins til þess að framvísa kvittunum fyrir vöru sem þegar hafa verið greidd af aðflutningsgjöld er það þeirra að sanna að svo hafi verið gert. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG SJÁVARÚTVEGUR Ákveðið hefur verið að bæta 300 tonnum við heimildir til síldveiða með reknet í Breiða- firði og telst það loka úthlutun þessa fiskveiðiárs. Heildar magnið er þá orðið 900 tonn. Undanfarin tvö fiskveiðiár hafa verið stundaðar veiðar á síld í rek- net á Breiðafirði að haustlagi og fyrri part vetrar. Síldveiðar bæði stórra og smárra báta á Breiða- firði nú í haust hafa gengið vel, og þá virðist sýking í síldinni heldur á undanhaldi. Bæjarstjórn Stykkishólms hafði fyrr í vikunni skorað á ráðherra að auka síldarkvóta til netaveiða á Breiðafirði. Í áskorun bæjarstjórn- ar segir að öll rök séu fyrir að hag- kvæmt og rétt sé að heimila síld- veiðar smábáta í net í mun meira magni en gert er. „Netaveiðarnar eru umhverfis- vænar og koma sjómenn með gæðahráefni til vinnslu. […] Þegar fyrirkomulag veiða og vinnslu er með þessum hætti er verðmæta- og atvinnusköpunin eins og best verður á kosið,“ segir í bréfi bæjar- stjórnar. - shá Orðið við óskum um auknar heimildir til netaveiða á síld á Breiðafirði: Bætt við 300 tonnum í netin SLYS Kona á níræðisaldri lá í gær- kvöldi þungt haldin á gjörgæslu- deild Landspítalans eftir að hafa orðið fyrir strætisvagni í Kópavogi um níuleytið í gærmorgun. Konan slasaðist mikið og hlaut töluverða áverka. Franz Gunnarsson var farþegi í strætisvagninum þegar slysið varð. „Bílstjórinn snögghemlaði og við fundum högg þegar hann keyrði á konuna. Hann greinilega sá hana ekki, hún var klædd í dökk föt og það var dimmt,“ segir hann. „Ég hringdi á sjúkrabíl og hlúði að kon- unni þar til hún komst til meðvit- undar og þeir mættu á staðinn, en það blæddi annaðhvort úr höfðinu á henni eða munni. Hún hefur fengið högg við að lenda á jörðinni.“ Að sögn Franz var bílstjóranum verulega brugðið, sem og öllum þeim fáu farþegum sem í vagnin- um voru. „Hann var ekki á mikilli ferð, en náði ekki að hemla alveg niður. Þetta hefði þó getað farið verr. Krökkunum í vagninum var verulega brugðið og ég reyndi að útskýra fyrir þeim hvað sjúkra- flutningamennirnir voru að gera,“ segir hann. „Bílstjórinn var í miklu uppnámi. Maður heyrði ópin í honum áður en bíllinn skall á henni, þegar hann var að hemla sá hann í hvað stefndi.“ Konan var að ganga yfir götu við Engihjalla, en þar var ekki gangbraut. Að sögn Franz var mikil umferð á svæðinu og konan hefur greinilega ekki tekið eftir vagninum. Ekki fengust upplýsingar um líðan konunnar í gærkvöldi. - sv Farþegi hlúði að konu eftir að hún varð fyrir strætisvagni í Kópavogi í gærmorgun: Kona á níræðisaldri þungt haldin á spítala Í HÖFN Mikill áhugi er á síldveiðum í net á Breiðafirði, sem kristallast í ákvörðun um aukinn kvóta. KEYRT Á KONU Kona á níræðisaldri varð fyrir strætisvagni og slasaðist alvarlega í Kópavogi í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI SAMFÉLAGSMÁL Hjónin Bjarn- hildur Hrönn Níelsdóttir og Frið- rik Kristinsson eru komin heim til Íslands með dætur sínar tvær, sem þau ættleiddu frá Kólumbíu. Fjölskyldan hafði verið föst í Kólumbíu í tæpt ár vegna hremminga fyrir dómstólum. „Við erum svo glöð að vera komin heim með dætur okkar. Okkur finnst við vera svo óendanlega rík og erum svo þakklát fyrir yndislegu stelpurnar okkar.“ skrifuðu hjónin í fyrrakvöld. - þeb Búin að vera föst í tæpt ár: Komin heim frá Kólumbíu STÆRSTI HÚSNÆÐISVEFUR LANDSINS Fasteignir.is er stærsti og ítarlegasti húsnæðisvefur á Íslandi, með yfir 12.000 eignir á skrá. Eini vefurinn með allar sölueignir á skrá Lifandi og uppfærður leiguvefur Fjölbreyttar upplýsingar í boði fyrir kaupendur, seljendur og leigjendur Opin hús, myndasýningar og þjónustusíður fyrir húseigendur Þú færð góð ráð um fasteignaviðskipti og aðstoð við leigu á íbúð. Þú finnur draumaeignina þína á fasteignir.is.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.