Fréttablaðið - 08.12.2012, Page 8
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
„Við höfum verið að velta þessum málum fyrir okkur alveg frá
því að Sorpa var flutt úr hverfinu, því hér eru tvær sorpvinnslu-
stöðvar en íbúar þurfa að fara út úr hverfinu með úrgang. Sorp-
ið er svo flutt aftur inn í hverfið til að vinna það og svo aftur
út,“ segir Elísabet Gísladóttir, for-
maður íbúasamtaka Grafarvogs.
Á síðustu misserum hafa ýmiss
konar þjónustustofnanir lokað
útibúum sínum í Grafarvogi. Þar
er nú engin Sorpa, enginn banki,
engin lögreglustöð, engin vínbúð
og ekkert pósthús. Grafarvogur er
næstfjölmennasta hverfi borgar-
innar á eftir Breiðholti, en þar
búa rúmlega átján þúsund manns. „Ég tók þetta fyrir á fundi
hverfaráðs og spurði hvað borgin sæi sér fært að gera til að þró-
unin verði ekki þessi í stóru hverfum borgarinnar, að þau séu
bara svefnhverfi. Þegar verið er að skipuleggja þessi hverfi er
gert ráð fyrir þessari þjónustu.“ Elísabet segir íbúa hafa verið
mjög undrandi yfir þessari þróun í hverfinu. Margir sem búi í
Grafarvogi hafi flust þangað einmitt vegna þess að þar eru lítil
hverfi og nærþjónusta. „Borgin segist ekkert geta gert í þessu.
Það er spurning hvort það þurfi ekki að endurskipuleggja borgir
og hverfi.“
Hún bendir einnig á að borgaryfirvöld vilji draga úr umferð.
„En þetta þýðir hins vegar að maður þarf að fara úr hverfinu
til að sækja alla þjónustu.“ Að auki óttast hún að minni þjónusta
þessara stofnana og fyrirtækja muni hafa þær afleiðingar að
fleiri fari úr hverfinu. Þegar fólk þurfi að sækja ákveðna þjón-
ustu út úr hverfinu nýti það tímann og sinni öðrum erindum á
sama stað. thorunn@frettabladid.is
Þegar verið
er að skipuleggja
þessi hverfi er gert
ráð fyrir þessari
þjónustu.
Elísabet Gísladóttir, formaður
íbúasamtaka Grafarvogs.
Engin Sorpa,
banki, vínbúð
eða póstur
Síðustu misseri hefur ýmsum þjónustustofn-
unum og fyrirtækjum verið lokað í Grafarvogi.
Íbúar óttast að fleiri gætu fylgt í kjölfarið.
PÓSTURINN OG BANKARNIR Pósthúsið í Grafarvogi var það síðasta af þessum fyrirtækjum
til þess að flytja sig burt. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
LÖGREGLUSTÖÐ
Hverfisstöð lögregl-
unnar á höfuðborgar-
svæðinu var áður í
þessu húsi.
LANDSBANKINN Bankarnir hafa flutt sig um set einn af öðrum.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VÍNBÚÐ Í þessu húsnæði var Vínbúðin þar til henni var lokað árið 2009. Þá stóð til
að finna nýtt og stærra húsnæði fyrir Vínbúðina í hverfinu, en af því hefur ekki orðið.
ARION BANKI Bankinn var sá síðasti af bönkunum til þess að loka útibúi sínu í Grafarvogi, en
það var gert í mars í fyrra.
DÓMSTÓLAR Hæstiréttur hækkaði á fimmtudag á
ný sekt sem Símanum hafði verið gert að greiða
fyrir brot á samkeppnislögum úr 30 milljónum
króna í 50 milljónir.
Málið má rekja aftur til ársloka 2009 þegar
Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að
Síminn hefði gerst brotlegur við skilyrði sem sam-
keppnisráð setti fyrirtækinu árið 2005. Var Sím-
inn þá sektaður um 150 milljónir.
Síminn kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins
til áfrýjunarnefndar samkeppnismála, sem í mars
2010 staðfesti að Síminn hefði brotið alvarlega af
sér. Sektin var hins vegar lækkuð í 50 milljónir
króna, meðal annars vegna versnandi afkomu
Símans. Þessari ákvörðun skaut Síminn til dóm-
stóla.
Í byrjun þessa árs komst Héraðsdómur Reykja-
víkur að því að Síminn hefði brotið gegn banni við
að tvinna saman fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu.
Brotið væri þó ekki jafn umfangsmikið og áfrýj-
unarnefnd ætlaði og sektin var lækkuð í 30 millj-
ónir. Þennan dóm hefur Hæstiréttur nú staðfest,
utan að sektargreiðslan var hækkuð á ný. - óká
Hæstiréttur staðfestir að Síminn hafi gerst sekur um samkeppnisbrot:
Sektin hækkuð um 20 milljónir
Í ákvörðun samkeppnisráðs nr. 10/2005 var lagt bann
við því að Síminn tvinnaði saman sölu á fjarskipta- og
sjónvarpsþjónustu. Var þetta liður í því að tryggja
að keppinautar Símans í internetþjónustu gætu á
jafnréttisgrundvelli boðið viðskiptavinum sínum
upp á eftirsóknarvert sjónvarpsefni því ella gæti
það leitt til alvarlegra samkeppnishamla fyrir minni
keppinauta. Síminn braut gegn þessu banni með því
að láta sjónvarpsefni Íslenska sjónvarpsfélagsins,
flutning þess og dreifingu fylgja frítt með
í verði ADSL-tenginga Símans vegna
internetþjónustu og raskaði þar með
samkeppni.
Úr umfjöllun
Samkeppniseftirlitsins