Fréttablaðið - 08.12.2012, Blaðsíða 10
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
Mashaal til Gasa
2PALESTÍNA Khaled
Mashal, leiðtogi
Hamas-samtak-
anna, kom í fyrstu
heimsókn sína
til Gasasvæðisins
í gær. Þar hitti
hann Ismail
Haniyeh, leiðtoga
samtakanna á
Gasa, og aðra forystumenn samtakanna þar. Mashal
fór á barnsaldri frá Vesturbakkanum. Hann hefur verið
leiðtogi Hamas síðan 1996, en höfuðstöðvar hans voru
fyrst í Jórdaníu, síðar í Sýrlandi og nú síðast í Katar.
Jarðskjálfti og flóð
1JAPAN Jarðskjálfti, sem mældist 7,3 stig,
reið yfir út af austurströnd
Japans í gær. Í kjölfarið
fylgdi allt að eins metra há
flóðbylgja, sem olli nokkru
tjóni á sömu slóðum og
flóðbylgjan mikla á síðasta
ári. Skjálftinn fannst víða
í norðaustanverðu Japan.
Meðal annars hristust
háhýsi í Tókíó í nokkrar
mínútur. Enduruppbygging
á hamfarasvæðunum frá í
fyrra er varla komin af stað.
Chavez úr meðferð
3VENESÚELA Hugo Chavez, forseti
Venesúela, er kominn aftur
heim eftir tíu daga súr-
efnismeðferð á sjúkrahúsi
á Kúbu. Hann hefur átt í
baráttu við krabbamein í
hálft annað ár, en sagðist
fyrir nokkrum mánuðum
vera laus við það mein.
„Eins og þið sjáið er ég
mjög ánægður með að
vera kominn hingað aftur,“
sagði Chavez við heimkom-
una, og virtist stálsleginn.
Opið til kl. 16 laugardag
Með því að kaupa
FRIÐARLJÓSIÐ
styrkir þú hjálparstarf
og um leið verndaðan
vinnustað.
P
IP
A
R
\T
B
W
A
-
1
02
97
5
LÁTUM
FRIÐARLJÓSIÐ
LÝSA UPP AÐVENTUNA
Nú er hægt er að fá Iceland gjafakort
í verslunum okkar í Engihjalla og Granda.
Fáðu allar nánari upplýsingar
í verslunum okkar.
Opið frá 11 - 20 alla daga
HAFNARFJÖRÐUR Bæjarstjórn
Hafnar fjarðar ítrekar við sér-
stakan saksóknara að hann rann-
saki eftirmál greiðsluþrots Byrs
með tilliti til hagsmuna bæjarins.
Nú liggur fyrir að Hafnar-
fjarðar bær þarf að taka á sig 1.700
milljóna króna skuldbindingu
vegna lífeyris fyrirverandi starfs-
manna Sparisjóðs Hafnarfjarðar
(SPH). Starfsmennirnir greiddu
frá árinu 1973 í Eftirlaunasjóð
Hafnarfjarðar. Sparisjóðurinn
gekk inn í Byr á árinu 2008. Byr
varð gjaldþrota í kjölfar hrunsins.
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir,
bæjarstjóri Hafnarfirði, segir það
hafa verið sjónarmið bæjarins að
lífeyriskröfur starfsmanna SPH
ættu forgang í þrotabú BYRS, líkt
og launakröfur. Nýlegur dómur
Hæstaréttar í sambærilegu máli
þýði hins vegar að bærinn verði
að taka ábyrgð á lífeyrisgreiðslun-
um. Sú skuldbinding nemi nú áður-
greindum 1,7 milljörðum króna.
Í bókun á bæjarstjórnarfundi á
miðvikudag lýsti minnihluti sjálf-
stæðismanna áhyggjum af skuld-
bindingunni og minnti á að bæjar-
ráðið hefði 12. maí 2010 óskað
eftir skoðun sérstaks saksóknara
á greiðsluþroti Byrs. Ekkert virð-
ist hafa komið út úr því. Þeir lögðu
til að aftur yrði þess óskað að sér-
stakur saksóknari skoðaði hvað
leiddi til fyrrgreindrar niðurstöðu
og hverjir bæru ábyrgð.
Rósa Guðbjartsdóttir bæjar-
fulltrúi segir sjálfstæðismenn
vilja að í leiðinni sé skoðað hvað
bæjaryfirvöld gerðu til að reyna
að afstýra því að bærinn sæti uppi
með ábyrgð á eftirlaunaskuldinni.
Hafnarfjörður sé væntanlega eina
bæjarfélag landsins sem þurfi að
ábyrgjast eftirlaunagreiðslur hóps
bankastarfsmanna.
„Þetta er liður í því að fá
allt upp á borð og ætti að vera
fagnaðarefni fyrir meirihluta
Samfylkingar innar og Vinstri
grænna, en fulltrúar þeirra
hafa ítrekað rætt um mikilvægi
„gagnsæi“ og „öxlun ábyrgðar“
í bæjarstórn Hafnarfjarðar og
víðar,“ segir Rósa.
Meirihluti Samfylkingar og VG
í bæjarstjórn kvaðst taka undir
áhyggjur af skuldbindingum og
áhyggjur af dræmum viðbrögð-
um sérstaks saksóknara. Guðrún
bæjar stjóri vísar því hins vegar
alfarið á bug að bæjaryfirvöld hafi
ekki staðið nægilega vel að málum.
„Ég sé ekki með hvaða hætti
bæjaryfirvöld hefðu getað komið
í veg fyrir hæstaréttardóminn og
þá forsendubreytingu sem hefur
orðið. Það er dæmt samkvæmt því
að viðkomandi fyrirtæki fari á
hausinn. Og ekki gátum við komið
í veg fyrir að Byr yrði gjaldþrota,“
segir Guðrún.
Aðspurð segir Guðrún menn
meðal annars vilja láta skoða
7.920 milljóna króna arð-
greiðslu hjá Byr á árinu 2008
og 1.800 milljón króna lán til
Exeter Holding það sama ár.
gar@frettabladid.is
Vilja rannsókn vegna
lífeyrisskuldbindinga
Hafnarfjarðarbær ber 1,7 milljarða króna kostnað vegna lífeyris fyrrverandi starfs-
manna Sparisjóðs Hafnarfjarðar. Bærinn vill að sérstakur sakóknari rannsaki mál
tengd sparisjóðnum. Minnihlutinn í bæjarstjórn spyr um ábyrgð meirihlutans.
GUÐRÚN ÁGÚSTA GUÐ-
MUNDSDÓTTIR Bæjar-
stjórinn í Hafnarfirði vísar
því á bug að bæjaryfirvöld
hafi getað varist því að
taka yfir 1.700 milljóna
króna skuldbindingu
vegna lífeyris fyrrver-
andi starfsmanna Spari-
sjóðs Hafnarfjarðar.
RÓSA GUÐ-
BJARTSDÓTTIR
Bæjarfulltrúi
Sjálfstæðis-
flokks telur að
meirihlutinn
í Hafnarfirði
hljóti að fagna
skoðun á þætti
bæjaryfirvalda.
HEIMURINN
12
3