Fréttablaðið - 08.12.2012, Qupperneq 18
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 18
Skoðun visir.is
3.270
MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER
Berir leggir og upphafning
fávísinnar
Sif Sigmarsdóttir pistlahöfundur
770
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER
Opið bréf til þingmanna
Kristófer Sigurðsson, unglæknir á Norður-
landi
647
ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER
Réttu upp hönd ef…
Hjálmar Sigmarsson, MA-nemi í kynjafræði
589
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER
Það eru barnréttindi
Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur
435
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER
Spennufíklar í sæstrengsspreng
Jón Helgi og Rúnar Þórarinssynir
405
MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER
Galdrafár á Grímsstöðum
Tryggvi Harðarson, fv. bæjarfulltrúi og
varaþingmaður
315
MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER
Mín innri bóndakona
Charlotte Böving
264
ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER
Að sýna náunganum væntum-
þykju
Guðný Ósk Laxdal, nemi í 4-H í MA
Einn allra stærsti áfang-
inn í sögu jafnréttisbarátt-
unnar á síðustu áratugum
felst óneitanlega í að þögn-
in um kynbundið ofbeldi
hefur verið rofin og jafn-
framt hefur baráttan gegn
því verið sett á dagskrá
grasrótarsamtaka, stjórn-
málanna og samfélagsins
alls. Við vitum að á meðan
kynbundið ofbeldi er við
lýði eru mannréttindi og
velferð, líf og heilsa fótum
troðin. Í hvert einasta skipti sem
fórnarlömb stíga fram og greina frá
ofbeldinu og ná eyrum samfélagsins
höfum við færst nær mark miðum
okkar um samfélag án ofbeldis,
samfélag virðingar fyrir mannrétt-
indum allra og reisn og almennrar
velferðar.
Áfangasigrar
Ríkisstjórn mín hefur gripið til
margvíslegra úrræða til að stemma
stigu við kynbundnu ofbeldi og til að
fjölga þeim úrræðum sem við getum
beitt gegn því. Austurríska leiðin
svokallaða um að fjarlægja beri
ofbeldismenn af heimilum fremur
en fórnarlömbin hefur verið lögfest.
Sömuleiðis hefur bann við kaupum
á vændi verið leitt í lög. Ísland full-
gilti samning Sameinuðu
þjóðanna um aðgerðir gegn
skipulagðri glæpastarf-
semi ásamt bókun um man-
sal á síðasta ári og í júní á
þessu ári samning Evrópu-
ráðsins gegn mansali. Þar
með hefur Ísland tekið á
sig skuldbindingar um for-
varnir gegn mansali, vernd-
un fórnarlamba og hertar
aðferðir við rannsókn og
saksókn slíkra mála. Nú
er unnið að endur skoðun
fyrstu aðgerðaáætlunar Íslands
gegn mansali, en hún var samþykkt
í mars 2009. Okkur er í fersku minni
stofnun Kristínarhúss á síðasta ári,
fyrir fórnarlömb mansals og vændis
en ríkisstjórnin hefur stutt við
rekstur Kristínarhúss og Kvenna-
athvarfsins með fjárframlögum.
Sitjum ekki auðum höndum
Umræðan um meðferð kynferðis-
brota í réttarkerfinu hefur hald-
ið áfram af fullum krafti á síð-
ustu misserum og er skemmst
að minnast ráðstefnu um málið
sem innanríkis ráðuneytið, laga-
deild HÍ og Rannsókna stofnun
Ármanns Snævarrs um fjölskyldu-
málefni stóðu fyrir í ársbyrjun. Þar
lögðu fulltrúar alls staðar að úr
kerfinu saman á ráðin um hvernig
tryggja megi betur en nú er gert
að lögum verði komið yfir gerend-
ur kynferðis brota. Þá hafa nokk-
ur ráðuneyti einnig staðið fyrir
ráðstefnu og aukinni umræðu um
klámvæðinguna út frá lagalegu og
samfélagslegu sjónarhorni og leit-
ast við að svara hvaða hlutverk lög-
gjafinn og stjórnvöld geta gegnt til
að stemma stigu við henni. Jafn-
framt hefur tækifæri verið nýtt
á vettvangi Jafnréttissjóðs til að
styrkja veglega fræðilega rann-
sókn af afdrifum kynferðisbrota í
réttarkerfinu, en þess er vænst að
með henni verði skapaður traustur
þekkingargrundvöllur fyrir frekari
lagaleg úrræði á þessu sviði.
Vekjum vitund!
Í apríl síðastliðnum var undirritað
samkomulag milli velferðar ráðu-
neytisins, innanríkisráðuneytis-
ins og mennta- og menningarmála -
ráðuneytisins um þriggja ára
verkefni sem ber heitið Vitundar-
vakning um kynferðislegt ofbeldi
gegn börnum. Samþykkt var að
verja til þess 25 mkr. á árinu 2012,
16 mkr. á árinu 2013 og aftur 16 mkr.
árið 2014. Vitundar vakningin er
liður í aðgerðum stjórnvalda vegna
fullgildingar sáttmála Evrópu-
ráðsins um varnir gegn kynferðis-
legri misnotkun og kynferðislegri
misneytingu gegn börnum sem var
samþykktur í Lanzarote í október
2007. Ísland hefur verið aðili að sátt-
málanum frá því í febrúar 2008, en
hann var fullgiltur fyrr á þessu ári.
Einnig má minna á að unnið hefur
verið að gerð nýrrar aðgerðaáætlun-
ar gegn kynbundnu ofbeldi á vegum
velferðar ráðuneytisins um nokkra
hríð og eru vonir bundnar við að
hún líti dagsins ljós innan skamms.
Mikilvæg skref hafa því verið
stigin í baráttunni gegn kynbundnu
ofbeldi á liðnum árum og þau hafa
sannarlega skilað árangri. En meira
þarf til og ég heiti á okkur öll að
leggja baráttunni lið með ráðum
og dáð. Baráttan gegn kynbundnu
ofbeldi er mannréttindabarátta sem
skiptir okkur öll miklu máli.
Útrýmum kynbundnu ofbeldi!
SAMFÉLAGS-
MÁL
Jóhanna
Sigurðardóttir
forsætisráðherra
➜ Í hvert einasta skipti sem
fórnarlömb stíga fram og
greina frá ofbeldinu og ná
eyrum samfélagsins höfum
við færst nær markmiðum
okkar um samfélag án
ofbeldis.
Þrjátíu þúsund
Getur hugur okkar rúmað það að jafn margir
einstaklingar lendi í kynferðisofbeldi fyrir 18 ára
aldur og allur íbúafjöldi Kópavogs? Við verðum oft ónæm
fyrir einhverjum tölum og prósentum því slík tölfræði
virðist gefa okkur takmarkaða og oft firrta mynd af veru-
leikanum. Hvað værum við t.d. lengi að lesa upp fullt
nafn allra þeirra þrjátíu þúsund einstaklinga sem hafa
lent í kynferðisofbeldi?
Anna Bentína Hermansen og Þóra Björt
Sveinsdóttir í Fréttablaðinu 5. desember
Hvað gerði ég vitlaust?
„Hvað gerði ég vitlaust?“, „Hvað get ég gert til
að sjá til þess að þetta komi ekki fyrir aftur?“
eru hræðilegar jöfnur en þær geta verið mun erfiðari:
„Hvernig tryggi ég að hann fari ekki í börnin?“,
„Hvernig tryggi ég að enginn sjái hvernig mér tókst að
klúðra málunum?“, „Mun hann stoppa núna?“ Enginn
getur fullkomlega sett sig í spor þolanda kynbundins
ofbeldis án þess að þurfa að þola það á eigin skinni.
Guðni Rúnar Jónasson í Fréttablaðinu 6. desember
Brotnar niður skipulega
Þær eiga það sammerkt konurnar að
það er kerfisbundið búið að brjóta
þær niður. Þær telja að þetta sé þeim að
kenna og að þær geti ekki á nokkurn hátt
leitað réttar síns af því að maðurinn sé
miklu klárari en þær […] Þær telja að þær
geti ekki náð fram sannleikanum í raun.
Margrét Steinarsdóttir í þættinum
Okkar á milli á RÚV 4. desember.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
2
-2
5
9
6
Verslaðu heima
– og fáðu í skóinn
Allir sem versla í vefverslun Advania í desember eiga möguleika á að fá
jólaglaðning í skóinn. Frá og með 11. desember drögum við úr nöfnum
þeirra sem nýta sér vefverslunina og birtum á Facebook síðu okkar.
Þeir sem vilja standa upp úr sófanum eru velkomnir í verslanir okkar
á Tryggvabraut 10, Akureyri eða Grensásvegi 10, Reykjavík.
Opið virka daga frá 10 til 18 og laugardaga 11 til 16.
advania.is/jol
Tilboðið gildir á meðan birgðir endast.
iPad mini
Wi-Fi 16 GB
verð: 58.990
Nettir ferðahátalarar
með mögnuðum hljóm
verð: 3.950
Dell Inspiron
14z Ultrabook
verð: 159.990
Fartölvuumslag
í mörgum litum
verð: 3.990
áður: 6.190
Dell 27“ LED skjár
verð: 59.900
áður: 69.900
Samsung Galaxy SIII
verð: 109.900