Fréttablaðið - 08.12.2012, Page 22

Fréttablaðið - 08.12.2012, Page 22
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 22 Velmegun Íslands í gegn- um tíðina hefur verið nátengd því hvernig atvinnulífinu reiðir af. Örfá af stærri fyrirtækj- um landsins sem gegna stóru hlutverki sem atvinnuveitendur eru nú á hlutabréfamarkaði en þau hafa að miklu leyti fjármagnað sinn vöxt í gegnum kauphöll. Hluta- bréfamarkaðurinn er núna að glæðast, en ein- hverra hluta vegna hefur það verið útbreiddur misskilningur að einungis stór fyrirtæki eigi erindi inn á markað. Við sjáum það svo á nýskráningum og á þeim sem hafa áætlanir um að koma á markað að um er að ræða fyrir- tæki í stærri kantinum, frekar en ekki. En þetta er ekki staðreyndin þegar litið er til annarra markaða á Norðurlöndunum. Hvers vegna koma ekki fleiri smá og millistór fyrirtæki á markað hér og njóta þeirra vaxtarmöguleika sem þar er boðið upp á? Fjármögnun = vöxtur Vöxtur lítilla og meðalstórra fyrir tækja er grundvallaratriði fyrir vöxt efnahagslífsins, það er geta þeirra til að skapa ný störf og viðhalda þannig góðum gangi í efnahagslífinu. Lítil og meðal- stór fyrirtæki í dag eiga sum hver í erfiðleikum með að fá aðgang að fjármagni til að stækka. Þar fyrir utan gætu nýjar eiginfjár- reglur frá ESB, svonefndar Basel III-reglur, hækkað lántökukostn- að vegna bankalána. Við erum því sannfærð um að Kauphöllin muni og þurfi að leika lykilhlutverk í framtíðarfjármögnun fyrirtækja. Fyrir þessu eru nokkrar ástæður: • Kauphöllin býður upp á sjálf- stæða fjármögnun fyrir fyrir- tæki og þar með tækifæri fyrir þau til að þróast og vaxa á eigin forsendum. Við sjáum dæmi þessa nú þegar á þeim stóru fyrir- tækjum sem hafa vaxið á íslenskum markaði undan- farin 20 ár. • Kauphöllin býður upp á fjármögnun á breiðum grunni. Hlutafjárútboð veitir öllum sem vilja fjárfesta, bæði litlum og stórum fjárfestum, tæki- færi til að taka þátt í vexti fyrirtækis. • Kauphöllin býður upp á gagnsæi. Gagnsæi er okkar leiðarljós. Við erum sannfærð um að gagnsæi sé ekki bara gott fyrir fjárfesta, heldur einnig fyrir fyrirtæki þar sem þau þurfa stöðugt að að vera á tánum í sínum rekstri. Í bandarískri rannsókn, sem unnin var af IHS Global Insight, kom í ljós að 92 prósent af öllum störfum hjá skráðum fyrir tækjum í Bandaríkjunum höfðu orðið til eftir að þau voru skráð á hluta- bréfamarkað. Fleiri skráningar Þrátt fyrir þessa staðreynd er lítið um skráningar smærri fyrir- tækja enn sem komið er sem á sér vissulegar margar mismunandi skýringar. Okkur ber þar af leið- andi að velta við hverjum steini til að ýta úr vegi öllum óþarfa hindr- unum fyrir fyrirtæki til að vaxa og efnahagslífið að dafna. Við höfum talað fyrir laga breytingum í þá átt að veita lífeyrissjóðum svigrúm til að fjárfesta í verð- bréfum fyrirtækja á First North- markaði Kauphallarinnar. Við höfum talað fyrir breytingum á ákvæðum laga um auðlegðar- skatt til að tryggja að hluthöfum í skráðum fyrirtækjum sé ekki mismunað í samanburði við hlut- hafa í óskráðum fyrirtækjum. Við höfum eflt okkar fræðslustarf um markaðinn og Kauphöllina, til að hvetja til aukinnar umræðu um markaðinn og gagnrýna hugsun. Sé miðað við vaxtarmarkaði svipaða First North t.d. í London, þá er árlegur vöxtur lítilla og meðalstórra fyrirtækja þar 37 prósent. Tíu prósent fyrirtækja á First North-markaðnum í Sví- þjóð færa sig upp á Aðalmarkað frá First North á hverju ári, sem sýnir að First North-markaðurinn virkar sem stökkbretti fyrir frek- ari vöxt fyrirtækja. Við verðum að þora að endur- skoða og hugsa upp á nýtt og allir þeir sem hafa áhuga á að end- urvekja vöxt í efnahagslífinu þurfa að taka þátt. Kauphöllin er hluti af mikilvægu vistkerfi, þar sem ríkis stjórn og bankar, líf- eyrissjóðir, fjárfestingarsjóðir, áhættufjármagnssjóðir, fyrir- tæki, stjórnmálamenn og fjár- festar hafa allir hlutverk. Vöxtur sem byggist á blómlegu atvinnu- og efnahagslífi og stuðl- ar að góðum lífskjörum Íslend- inga hlýtur að vera eitthvað sem við viljum öll. Mikilvægi hluta- bréfaskráninga FJÁRMÁL Páll Harðarson forstjóri, NASDAQ OMX Iceland ➜ Við höfum talað fyrir lagabreytingum í þá átt að veita lífeyrissjóðum svigrúm til að fjárfesta í verðbréfum fyrirtækja á First North- markaði Kauphallar innar. Við höfum talað fyrir breytingum á ákvæðum laga um auðlegðarskatt til að tryggja að hluthöfum í skráðum fyrirtækjum sé ekki mismunað í saman- burði við hluthafa í óskráðum fyrirtækjum. „Ég hef bara mjög skýra stefnu: Ef það er leðjuslagur, þá fer ég í leðjuslaginn.“ Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi í Kópa- vogi, segist ekki saklaus þegar talað er um slæma umræðuhefð í bæjarstjórn. „Það er enginn vafi á því að peningamálastefna á Íslandi frá stofnun lýðveldisins hefur brugðist algjörlega.“ Lars Christiansen, forstöðumaður greiningardeildar Danske Bank, segir lausnina þó ekki endilega liggja í því að skipta um gjaldmiðil. „Þetta er skítaflétta.“ Orðaskipti Alexanders K. Guðmunds- sonar og Friðfinns Ragnars Sigurðs- sonar, fyrrverandi starfsmanna Glitnis, um fyrirhugað milljarða lán bankans til Vafnings/Milestone voru rifjuð upp við aðalmálferð dómsmáls gegn Lárusi Welding og Guðmundi Hjaltasyni. „Það er alveg ljóst í hvaða „krónólógíska“ samhengi þetta var; það voru margir mánuðir sem liðu frá því hún hóf störf og þar til sam- band okkar hófst.“ Stefán Einar Stefánsson, formaður VR, svarar í DV gagnrýni vegna ráðningar sambýliskonu hans til VR. UMMÆLI VIKUNNAR ORÐ VIKUNNAR 1.12.2012 ➜ 7.12.2012
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.