Fréttablaðið - 08.12.2012, Page 26

Fréttablaðið - 08.12.2012, Page 26
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 26 Ríki heims hafa átt með sér víðtækt sam- starf um heilbrigðis- mál um langt skeið. Með undirritun stofnskrár Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar (WHO) 22. júlí 1946 og form- legri stofnunar hennar 7. apríl 1948 tók WHO yfir verkefni og hlut- verk Heilbrigðisnefndar Þjóðabandalagsins ásamt fleiri viðfangsefnum. Alls var um að ræða 43 alþjóðasamn- inga um heilbrigðismál og a.m.k. 7 alþjóðlegar stofnanir sem hin nýja alþjóðasamvinnustofnun um heilbrigðismál tók yfir. Alþjóðasamstarfið Á árunum eftir síðari heims- styrjöldina var stór hluti heimsbyggðar innar að rísa úr rúst eftir hildarleik ófriðarins. Á þessum tíma var komið á fót alþjóðlegum stofnunum og sam- tökum sem hafa látið sig heil- brigðismál miklu varða og starf- að í náinni samvinnu við WHO á mörgum sviðum. Má þar nefna Evrópuráðið, Alþjóðabankann, Efnahags- og framfara- stofnunina (OECD) og síðar Evrópusambandið. Hjá þessum aðilum varð samvinna um heilbrigð- ismál ekki aðeins liður í að bæta heilsufar þjóða heldur sömuleiðis aðgerð til að treysta efnahaginn og friðinn um víða veröld. Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunin er ábyrg fyrir stefnumótun og samræmingu heilbrigðis- mála á vegum hinna Sameinuðu þjóða. WHO er þannig forystuafl í heilbrigðismálum á heimsvísu, forgangsraðar viðfangsefnum heilbrigðisrannsókna, setur við- mið og gæðastaðla í heilbrigðis- þjónustu, byggir vinnu sína á sannreyndum stefnumiðum, veit- ir aðildarríkjum tæknilega aðstoð og fylgist með og metur þróunina í heilbrigðismálum. Mikilvægir þættir Í heilbrigðismálum hefur Evrópu- ráðið í Strasbourg einkum gert sig gildandi gegnum heilbrigðis- nefnd sína. Ráðið hefur einnig haldið utan um Lyfjaskrá Evrópu („European Pharmacopoeia“) frá 1964, en í henni er að finna sam- eiginlega staðla sem skylt er að nota í öllum aðildarríkjunum til að tryggja gæði lyfja. Alþjóða- bankinn hefur síðustu áratugina lagt vaxandi áherslu á að styðja við uppbyggingu heilbrigðisþjón- ustu og stuðla að umbótum í heil- brigðiskerfum þróunarlanda. Fjárfesting í heilsu er mikilvæg fyrir efnahagslega uppbyggingu hvar sem er í heiminum. OECD hefur í auknum mæli beint sjónum sínum að heilbrigðis- málum. Til að byrja með var athyglin nær einskorðuð við heil- brigðisútgjöldin, en nú safnar stofnunin og gefur út víðtækar upplýsingar um heilbrigðismál í aðildarríkjunum. Jafnt ríkis- stjórnir sem ráðgjafarfyrirtæki eins og Boston Consulting Group, McKinsey og Deloitte nýta sér þessar upplýsingar. OECD starf- ar sömuleiðis náið með WHO og framkvæmdastjórn ESB við samræmingu upplýsinga á þessu sviði. Þótt heilbrigðismál séu fyrst og fremst málefni hvers aðildarríkis fyrir sig innan ESB þá felur Evrópusamstarfið í sér fjárhagslegar skuldbindingar og kröfur um samhæfingu í stefnu- mótun og rannsóknum á heilbrigð- is- og velferðarsviðinu. Afskipti eða einangrun Íslendingar hafa um áratugaskeið verið virkir þátttakendur í allri alþjóðasamvinnu um heilbrigðis- mál. Megináherslan hefur verið á starfsemi WHO og á síðasta áratugi gegndi Ísland til dæmis formennsku í framkvæmda- stjórn WHO með góðum árangri. Í öðrum alþjóðastofnunum og á norrænum vettvangi hafa full- trúar Íslands tekið þátt í marg- víslegum verkefnum og nýtt sér þá kosti sem beinn aðgangur að þessari starfsemi veitir. Í kjölfar efnahagshrunsins hefur af ýmsum ástæðum dreg- ið verulega úr þátttöku í erlendu samstarfi og er óhætt að fullyrða að síðustu árin höfum við ekki náð að fylgjast nægjanlega vel með helstu alþjóðastraumum á sviði heilbrigðismála, nema þá til mála- mynda. Það er því mikil hætta á að mótun nýrrar framtíðar sýnar og gerð áætlana í heilbrigðis- málum geti ekki uppfyllt þær kröfur sem gera verður til að ná viðhlítandi árangri og tryggja að íslensk heilbrigðisþjónusta verði áfram sambærileg við það sem best gerist annars staðar. Verði ekki brugðist við þessu ástandi á skynsamlegan hátt er hætt við að framtíðin verði beinn og breiður vegur einangrunar og afskipta- leysis fjarri lífæðum hins alþjóð- lega samfélags. Alþjóðasamvinna um heilbrigðismál HEILBRIGÐISMÁL Ingimar Einarsson félags- og stjórnmála- fræðingur ➜ OECD hefur í auknum mæli beint sjónum sínum að heilbrigðismálum. Til að byrja með var athyglin nær einskorðuð við heilbrigðis útgjöldin, en nú safnar stofnun in og gefur út víðtækar upplýsingar um heilbrigðismál í aðildar- ríkjunum. Jafnt ríkisstjórnir sem ráðgjafar fyrirtæki eins og Boston Consulting Group, McKinsey og Deloitte nýta sér þessar upplýsingar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.