Fréttablaðið - 08.12.2012, Side 36
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Guðbjartur Hannes-son velferðarráðherra hafði ekki fyrr hlot-ið glæsilega kosn-ingu í flokksvali Sam-fyl k i nga r i n na r í
Norðvestur kjördæmi en hann til-
kynnti um framboð sitt til for-
mennsku í flokknum. Ákvörðun in
kom svo sem ekki á óvart því nafn
hans hafði lengi verið í umræðunni
um formannsslaginn. Hann segist
löngu hafa verið farinn að íhuga
formennskuna en hafa ákveðið að
bíða niðurstöðu flokksvalsins, enda
skipti máli að hann hefði góðan
stuðning.
„Ég ákvað að slá til þegar ég sá
hver niðurstaðan varð úr flokks-
valinu, sem tókst mjög vel. Við
fengum mjög góða þátttöku miðað
við flokksval yfirleitt. Þó að hún
væri innan við helmingur er það
meira en víðast hvar annars stað-
ar. Kosningin var hins vegar mjög
afdráttarlaus og ég hlaut 77 pró-
senta stuðning í efsta sætið. Síðan
kemur í ljós að um 96 prósent kjós-
enda setja mig á blað, jafnvel þó að
þeir velji annan í fyrsta sætið.“
Reynir að leita að lausnum
Guðbjartur segir ákvörðun sína
byggjast á tvennu. Í fyrsta lagi
hafi hann brennandi áhuga á stjórn-
málum og hafi verið í þeim í drjúg-
an tíma.
„Hins vegar voru gríðarlega
margir sem leituðu til mín undan-
farna mánuði og skoruðu á mig
að gefa kost á mér. Þar hafa menn
helst talið til að þeir vildu fá mann
sem gæti hlustað, væri sáttasemjari
og gæti eflt traust í samfélaginu.
Ég hef staðið fyrir það að leita að
lausnum, en ekki að vera í því að
búa til ágreining. Það var eigin-
lega það sem réði því að ég íhug-
aði þetta mjög. Niðurstaða flokks-
valsins varð síðan til þess að ég tók
ákvörðun um að gefa kost á mér og
fer núna í það af fullum krafti.“
Auk Guðbjarts hefur Árni Páll
Árnason lýst yfir framboði til for-
manns, en það gerði hann fyrir
nokkrum mánuðum. Framboðs-
frestur er hins vegar ekki runninn
út og óvíst hvenær hann gerir það.
Guðbjartur vonast til þess að þeir
Árni Páll fái tækifæri til að vera á
sameiginlegum fundum í janúar.
Þeir félagar hafa ákveðið saman að
óska eftir allsherjarkosningu meðal
allra félaga í Samfylkingunni.
„Nú er maður að tala við það
fólk sem hvatti mann í framboð
og hvetja það til að koma fram og
styðja mig og vinna með mér. Þetta
er nú ekki alveg besti tíminn í þetta,
í jólamánuðinum verandi með þing-
ið á fullu og mörg mál að vinna í.
Sjáum hvað tíminn dugar.“
Ertu bjartsýnn?
„Já, ég væri ekki að fara í þetta
nema ég teldi mig eiga góða mögu-
leika og fer í þetta til að verða næsti
formaður. Svo verður bara að koma
í ljós hvort það er rétt hjá mér eða
ekki. Ég fer í þetta verkefni í ótil-
greindan tíma. Þó maður viti aldrei
hvað gerist á hverjum tíma þá á ég
mörg ár eftir í pólitíkinni, fái ég
stuðning til þess.“
En hverjar verða áherslur Guð-
bjarts, nái hann kjöri sem for-
maður?
„Í fyrsta lagi held ég að það sé
gríðarlega mikilvægt, þegar við
horfum til baka til tímans frá stofn-
un Samfylkingarinnar, að flokkur-
inn hraktist aðeins af leið með þeim
tískusveiflum sem voru fyrir hrun.
Samfélagið allt var auðvitað á vit-
lausri leið á tímabili. Það sem mestu
máli skiptir núna er að skerpa
grunngildin á bak við þá stefnu
sem við erum að berjast fyrir; það
er jöfnuð og réttlæti.
Við sáum það fyrir hrun að mis-
skipting hafði aukist gríðarlega,
ekki bara á Íslandi heldur í heim-
inum öllum. Við verðum að endur-
reisa samfélagið á öðrum gildum og
erum þegar byrjuð á því. Nú þegar
við höfum farið í gegnum erfiðleik-
ana finnst mér að við eigum að fá
að taka uppskeruna í þeim anda;
að samfélagið verði réttlátara, það
verði meiri jöfnuður og enginn
útundan í samfélaginu.“
Guðbjartur segir að margt hafi
áorkast en betur verði að gera.
Um leið og hægt sé að bæta í fjár-
veitingar, verði að leggja áherslu á
það mikilvægasta, góða menntun og
öflugt heilbrigðiskerfi.“
„Það er líka hægt að orða það
þannig að við viljum fá raunveru-
lega norræna velferð. Þá verðum við
líka að horfa til allra þátta. Þegar
rætt er um norræna velferð þá á það
við um frjálst hagkerfi, en einnig
að ríkið taki gjöld og deili þeim út
aftur. Við tökum tekjur til að geta
jafnað í gegnum skatt kerfið. Við
erum þegar byrjuð að bæta í m.a.
með hækkuðum barnabótum, hækk-
un greiðslna í fæðingarorlofi, hækk-
un endurgreiðslna vegna tannlækn-
inga barna, hækkun húsaleigubóta
svo nokkuð sé nefnt.
Við vitum að það sem hefur ein-
kennt norræn velferðarkerfi er
að það er ríkið sem ber ábyrgð á
ákveðnum málaflokkum og sér t.d.
um bæði mennta- og heilbrigðismál.
Mér finnst þessi grunngildi jafn-
aðarstefnunnar skipta mestu máli.
Auðvitað verða traust velferðar-
kerfi og öflugt atvinnulíf að hald-
ast í hendur og skapa okkur tekjur.
Atvinnuleysi er versti óvinur vel-
ferðarinnar.“
Ég er jafnaðarmaður
Guðbjartur segir að ekki megi
gleyma því að huga að fjármálum,
halda verði áfram á þeirri braut
að halda kostnaði niðri og fara vel
með peninga. Vinna þurfi að því,
nú í kosningabaráttunni, að fara í
gegnum skattkerfið, bæði hjá ein-
staklingum og fyrirtækjum, þann-
ig að hægt sé að búa til framtíð með
nokkuð stöðugu umhverfi.
„Ég held að kosningaáherslur
flokksins verði einmitt nákvæmlega
þessi grunngildi. Við berjumst fyrir
því að endurreisa samfélagið í þess-
um anda. Gefa til baka í mennta- og
heilbrigðiskerfið.“
Þetta hljóma eins og klassískar
vinstriáherslur.
„Kannski er það ástæðan fyrir
því að svo margir biðja mig um að
leiða vinnuna að ég hef aldrei litið
á mig á einhverjum kvarða í þessa
veru. Ég er jafnaðarmaður, ann-
ars væri ég ekki í Samfylkingunni,
og þessi grunngildi eru auðvitað
vinstriáherslur. Samtímis er ég auð-
vitað atvinnulífsmaður og geri mér
alveg grein fyrir því að við rekum
ekki öflugt samfélag nema að það
haldist í hendur velferð og vinna.
Atvinnulífið verður að búa við sam-
keppnishæft umhverfi.“
Guðbjartur segir að menn geti lesið í sínar hugmyndir um hverjir séu líklegri til að vinna með honum að þeim
lausnum. En hver er óskastaða hans varðandi stjórnarsamstarf?
„Ég hef sagt það að ef við erum með Sjálfstæðisflokk eins og hann er í dag eigum við litla samleið með honum.
En hvernig verður hann í aðdraganda kosninga? Það veit ég ekki. Þeir hafa hlaupið í og úr í mörgum málum. Mér
finnst þeir svolítið vera að hverfa í gamla gírinn með gömlu lausnirnar. Þá hafa þeir komið með skýra andstöðu við
ESB og fleira sem gerir það að þeir fjarlægjast okkur.
Við skulum ekkert fara í grafgötur um það að átökin í stjórnmálum eru auðvitað Sjálfstæðisflokkurinn og Sam-
fylkingin. Þessi flokkar eru þeir stóru aðilar sem eiga að vera að takast á um hvaða gildi og hvaða form verður á
íslensku samfélagi. Þar viljum við fá að vera leiðandi afl.“
➜ Lítil samleið með Sjálfstæðisflokki
Launahækkun forstjóra Landspítalans var mál sem
reyndist þér erfitt. Setti það flekk á feril þinn?
„Nú er það þannig að nánast á hverjum einasta degi
í velferðarráðuneytinu koma upp mál sem eru erfið.
Við erum að kljást við bæði athugasemdir sem koma,
það koma upp einhverjar uppákomur á einhverjum
stofnunum eða annars staðar. Ef maður væri hræddur
við að takast á við erfiðleika væri maður ekki í þessu
starfi. Hluti af því að vera í stjórnun er að þá fær maður
mál sem eru af ólíkum toga, þau geta verið mjög sárs-
aukafull og sársaukafyllstu málin eru þegar maður sér
einhvern sem á í erfiðleikum, maður skynjar að það eru
raunverulegir erfiðleikar og maður getur ekki hjálpað
honum. Það er eiginlega það sem tekur mest á.
Ég fer þarna ákveðna leið til að reyna, að ég hélt, að
velja bestu leiðina fyrir spítalann sem reyndist kolröng.
Ég endurmat það og baðst afsökunar á því. Það er gott
dæmi um að ég er alltaf að taka ákvarðanir og ef ég
væri hræddur við að gera einhvern tímann vitleysu
mundi ég aldrei taka ákvarðanir. Ég geri mér alveg grein
fyrir því, og gerði það sem skólastjóri og í pólitíkinni
áður sem sveitarstjórnarmaður, að það verður alltaf
að taka þá áhættu að eitthvað af því sem maður gerir
sýni sig eftir á að vera röng ákvörðun. Það er bara hluti
af því að vera stjórnvald. Þá er bara að vinna úr því.
Maður lítur á þetta sem verkefni og reynir þá að finna
nýja leið og betri í framhaldinu.“
Gerði mistök varðandi launahækkun
Leitað til
mín sem
sáttasemjara
Guðbjartur Hannesson býður sig fram til for-
mennsku í Samfylkingunni. Hann segir mestu máli
skipta að berjast fyrir jöfnuði og réttlæti.
VINSTRIMAÐUR Guðbjartur segist vera vinstrimaður, annars væri hann ekki í Samfylkingunni. Hann segir flokkinn eiga litla
samleið með Sjálfstæðisflokknum eins og sá flokkur er í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ég hef sagt
það að ef við
erum með
Sjálfstæðisflokk
eins og hann er í
dag eigum við
litla samleið
með honum. En
hvernig verður
hann í aðdrag-
anda kosninga?
Það veit ég ekki.