Fréttablaðið - 08.12.2012, Page 38
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 38
Fjölmargir kvikmyndaréttir að bókum hafa gengið kaupum og sölum undan-farinn áratug og fer þessum viðskiptum fjölgandi með hverju árinu. Oftast eru það íslensk fyrirtæki á borð við Zik Zak, Blueeyes Productions og
Kvikmyndafélag Íslands sem hafa tryggt sér kvik-
myndaréttinn en þó kemur fyrir að erlendir aðilar
sjái sér leik á borði og veðji á íslenskan hest.
Sjaldgæfara er að einstaklingar tryggi sér kvik-
myndarétt en athygli vakti á dögunum þegar leik-
arinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson tryggði sér
réttinn að glæpasögunni Snjóblindu eftir Ragnar
Jónasson. Einnig hefur Hollywood-framleiðandinn
Sigurjón Sighvatsson keypt réttinn að tveimur
bókum Yrsu Sigurðardóttur, Ég man þig og nú
síðast Kulda.
Samkvæmt lauslegri könnun Fréttablaðsins
hefur kvikmyndaréttur verið keyptur að tæplega
fimmtíu bókum á undanförnum árum án þess að
myndirnar sjálfar hafa litið dagsins ljós. Annað
hvort hefur rétturinn runnið út eða hann er enn í
gildi og undirbúningur myndarinnar hefur tafist
eða er í fullum gangi.
Hversu lengi gildir kvikmyndaréttur?
Þeir sem selja kvikmyndarétt að bókum sínum
leigja hann yfirleitt í þrjú ár til að byrja með. Eftir
það er hægt að framlengja hann um tvö ár í við-
bót ef framleiðsla á myndinni dregst á langinn.
Ef ekkert verður af framleiðslunni rennur kvik-
myndarétturinn aftur til höfundarins. Þá getur
hann samið við annan framleiðanda ef hann vill.
Slíkt gerðist til dæmis með Skipið eftir Stefán
Mána. Zik Zak keypti réttinn en nýtti sér hann
ekki á samningstímanum. Féll hann þá aftur í
hendur Stefáns. Einnig gerðist þetta með bækurn-
ar Fólkið í kjallaranum og Sjálfstætt fólk. Kvik-
myndarétturinn á þeim bókum hefur verið seldur
tvisvar sinnum og núna er fyrirtækið Blueeyes
eigandi réttarins.
Hvernig er greiðslum háttað?
Samningarnir eru misjafnir eftir því hversu dýra
mynd á að gera eftir bókinni. Oft er það þannig að
greidd er ein upphæð á ári, til dæmis eitt hundrað
þúsund krónur. Yfirleitt er miðað við að leigan
sem er greidd á ári nemi 10% af þeirri heildar-
upphæð sem höfundarnir fá greitt fyrir myndina,
sem í þessu tilfelli væri ein milljón. Fyrsta leigu-
upphæðin er greidd við undirritun samningsins.
Þegar búið að borga allan leigupeninginn, til
dæmis 300 þúsund eftir þriggja ára ferli, er sú
upphæð dregin frá lokagreiðslunni. Sú greiðsla er
greidd á fyrsta tökudegi myndarinnar. Ef myndin
verður endurgerð í Hollywood fær höfundurinn
yfirleitt ákveðna prósentu af heildargreiðslu sinni
að launum, til dæmis 30%.
Hvaða bækur eru vinsælastar?
Oftast verður glæpasaga fyrir valinu þegar kvik-
myndaréttur er keyptur. Til að mynda hefur rétt-
urinn á öllum bókum Yrsu Sigurðardóttur verið
keyptur og á þremur eftir Arnald Indriðason.
Einnig hafa glæpasögur Stefáns Mána og Óttars
M. Norðfjörð verið vinsælar meðal kvikmynda-
framleiðenda.
Hvaða þýðingu hefur kvikmyndaréttur?
Auk þess að fá pening fyrir að leigja kvik-
myndaréttinn fá höfundar góða auglýs-
ingu fyrir bók sína. Salan á bókinni
getur aukist til muna, þrátt fyrir að
myndin verði hugsanlega aldrei að
veruleika. Verði myndin gerð getur
það haft töluverðan pening í för með
sér og aukið vinsældir höfundarins
enn frekar. Möguleiki á framhalds-
myndum er einnig fyrir hendi eða
fleiri myndum byggðum á öðrum
bókum eftir sama höfund. Verði
myndin endurgerð erlendis hefur
það einnig í för með sér aukapen-
ing fyrir höfundinn og enn betri
auglýsingu á bókinni.
Næsta íslenska mynd eftir bók?
Kvikmyndin Falskur fugl er
væntan leg snemma á næsta ári.
Hún er byggð á samnefndri sögu
Mikaels Torfasonar sem kom út
1997. Myndin hefur verið í tólf ár
í bígerð og er núna loksins orðin að
veruleika. Þór Ómar Jónsson leik-
stýrir og framleiðandi er íslenska
fyrir tækið Square One Films.
ÍSLENSKAR BÆKUR
LEITA Í BÍÓHÚSIN
FIMM AÐSÓKNARMESTU KVIKMYNDIRNAR SEM GERÐAR HAFA VERIÐ EFTIR BÓKUM
Kvikmyndaréttur að þremur bókum
Stefáns Mána hefur verið keyptur og hefur
ein myndanna litið dagsins ljós, eða Svartur
á leik, eftir handriti leikstjórans Óskars Þórs
Axelssonar. Rétturinn á Skipinu rann út og er
kominn aftur í hendurnar á Stefáni Mána og
sem stendur á Saga Film réttinn á Ódáða-
hrauni. Þrír framleiðendur hafa einnig sýnt
nýjustu bók hans, Húsið, áhuga.
„Mér finnst málið snúast um að semja við
aðila sem maður treystir algjörlega og treysta
honum svo til að gera þetta í friði,“ segir
Stefán Máni um reynslu sína af samningum
um kvikmyndarétt. „Það eru ekki það
miklir peningar í boði. Þetta snýst meira um
sæmdina.“
Hann segir þvílíkt gaman að sjá mynd gerða
eftir bókinni sinni. „Það er svo einmanalegt
og dauft að vera rithöfundur og þess vegna er
mjög gaman að fá að upplifa eitthvað stærra.
Alvöru frumsýningu með rauðum dregli, fullt
af fólki og líf og fjör. Það er eitthvað sem við
erum ekki vanir.“
Aðspurður segir hann lítinn pening
í sölu á kvikmyndarétti. „Það er ekki
eftir miklu að slægjast fyrir rithöfund-
inn, því miður, og ég myndi vilja sjá
það breytast. Ég tala nú ekki um þegar
ekkert gerist. Þú selur réttinn fyrir
mjög lítinn pening í hálfgerða leigu.
Þetta er tvíeggjað sverð. Maður
er oft að gefa frá sér réttinn í
ansi langan tíma fyrir lítinn
pening og kannski missa
aðrir áhugann á meðan.“
Meira en sextíu
þúsund manns sáu
Svartur á leik í bíó. Þrátt
fyrir vinsældirnar kveðst
Stefán Máni ekki hafa
fengið neinar prósentur
að ráði. „Þetta tók
einhver sjö til átta ár.
Það litla sem ég fékk
var ég búinn að fá á
þessum tíma. Þetta var
nú enginn hvalreki fyrir
mig en þeim mun meiri
ánægja og auglýsing.
Þetta er búið að vera
mjög skemmtilegt ár.“
➜ Traust skiptir öllu máli
STEFÁN MÁNI
Rithöfundinum fannst
gaman að upplifa eitt-
hvað stærra þegar Svartur
á leik var kvikmynduð.
Aldrei hefur verið
vinsælla en einmitt
núna að kaupa
kvikmyndarétt að
íslenskum bókum.
Tugir slíkra samn-
inga hafa verið
gerðir á undan-
förnum árum.
Rétturinn sjálfur
tryggir ekki að
myndin verði nokk-
urn tímann að
veruleika og oftar
en ekki er hætt
við hana.
1.
Mýrin
Áhorfendur
84.428
Tekjur (kr.)
90.944.070
Frumsýnd
árið 2006
í leikstjórn
Baltasars
Kormáks.
2.
Englar
alheimsins
Áhorfendur
82.264
Tekjur (kr.)
67.788.000
Frumsýnd
árið 2000
í leikstjórn
Friðriks Þórs
Friðriks-
sonar.
3.
Djöfla-
eyjan
Áhorfendur
74.754
Tekjur (kr.)
54.439.400
Frumsýnd
árið 2006
í leikstjórn
Friðriks Þórs
Friðriks-
sonar.
4.
Svartur á
leik
Áhorfendur
62.783
Tekjur (kr.)
83.370.322
Frumsýnd
árið 2012
í leikstjórn
Óskars Þórs
Axelssonar.
5.
Jóhannes
Áhorfendur
36.223
Tekjur (kr.)
40.476.210
Frumsýnd
árið 2009
í leikstjórn
Þorsteins
Gunnars
Bjarnasonar.
Samkvæmt upplýsingum frá Smáís
VINSÆLUST
Mýrin með Ingvari
E. Sigurðssyni í
aðalhlutverki er
aðsóknar mesta
íslenska kvik-
myndin sem hefur
verið gerð eftir
bók. Yfir 84 þúsund
manns fóru á hana
í bíó.
Freyr
Bjarnason
freyr@frettabladid.is