Fréttablaðið - 08.12.2012, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 08.12.2012, Blaðsíða 52
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 52 Rory McIlroy og Caroline Wozni-acki eru í fremstu röð á heims-vísu og í hópi þekktustu íþrótta-manna og -kvenna veraldar. Þau njóta gríðarlegra vinsælda og áhugi almennings á þeim hefur aukist jafnt og þétt eftir að þau fóru að stinga saman nefjum sumarið 2011. Hið daglega líf hjá „ofuríþróttaparinu“ er ávallt í kastljósi fjölmiðla. Rory McIlroy hefur notið góðs af öllu þessu umstangi á undanförnum misserum en ferill Wozni- acki hefur legið niður á við. Það var boxbardagi í júlí árið 2011 sem varð til þess að Rory McIlroy og Caro- line Wozniacki hittust í fyrsta sinn. Þau voru bæði boðsgestir þegar David Haye frá Bretlandi mætti Úkraínumanninum Vladimir Klitschko í Þýskalandi. Klitschko sigraði þar á stigum – svo því sé haldið til haga. „Frábær bardagi, ég hitti einnig Rory McIlroy, sem sat beint fyrir aftan mig, (broskall), hann er jarðbundinn og góður gaur,“ skrifaði Wozniacki í tísti sem birtist á Twitter daginn eftir bardagann. Frá þeim tíma hafa þau verið par og glímt við það risaverkefni að vera í fremstu röð á heimsvísu sem atvinnumenn sam- hliða þeirri athygli sem þau fá. Nýjar áherslur í mataræði Rory hefur notið góðs af þessu sambandi ef marka má árangur hans eftir að hann kynntist Caroline. Fyrir það fyrsta þá tók Norður-Írinn upp á því að æfa meira en áður og árangurinn lét ekki á sér standa. Wozniacki var í efsta sæti heimslistans þegar þau hittust í fyrsta sinn en Rory var enn að klifra upp þann metorðastiga. Og hann átti einnig eftir að sigra á einu af risamótunum fjórum. Rory McIlroy tók einnig upp nýjar áherslur í æfingum og mataræði eftir að hann kynntist Wozniacki. Hann æfir undir handleiðslu styrktarþjálfara NBA-körfu- boltaliðsins New York Knicks og hefur árangurinn ekki látið á sér standa. „Ég er jafnþungur og áður, en fituprósentan hefur hrapað, og ég er sterkari og stöðugri en áður,“ sagði McIlroy í viðtali við banda- ríska karlatímaritið Mens Health. Wozniacki virðist ekki hafa náð að vinna eins vel úr allri þeirri athygli sem samband þeirra hefur fengið. Hún hefur hrapað eins og steinn niður heimslistann frá því hún kynntist Rory McIlroy. Risamótin hafa ekki verið styrkleiki Wozniacki og á árinu 2012 féll hún úr í 1. umferð á Wimbledon og Opna bandaríska meistaramótinu. Hún sigraði á sex mótum árið 2010 og end- urtók leikinn árið 2011. Á þessu ári hefur hún aðeins sigrað á tveimur atvinnumótum og nýverið réði hún föður sinn sem þjálfara á ný. Hann var þjálfari hennar þegar hún náði efsta sæti heimslistans. Þrátt fyrir að fátt hafi gengið upp á tennisvellinum rakar Wozniacki inn seðlum því hún er næst- tekjuhæsta íþróttakona heimsins árið 2011 á eftir tenniskonunni Mariu Sharapovu. McIlroy sigraði á fjórum mótum á þessu ári og þar af einu risamóti. Hann nýtur gríðarlegra vinsælda hjá stórfyrirtækjum sem keppast við að fá hann til liðs við sig. Búist er við því að Rory McIlroy semji við Nike íþróttavörufyrirtækið á næsta ári – og mun hann fá um 16 milljarða króna í sinn hlut fyrir tíu ára samning. Engar áhyggjur af bókhaldinu Eins og gefur að skilja þarf ofurparið ekki að hafa miklar áhyggjur af heimilisbók- haldinu en Wozniacki heldur í gömlu hefð- ina þegar þau fara út að borða. „Rory borg- ar alltaf reikninginn,“ lét Wozniacki hafa eftir sér í viðtali. Keppni er stór hluti af sambandi þeirra og hafa margir beðið eftir því að fá að sjá þau keppa hvort við annað í golfi eða tenn- is. Wozniacki er á þeirri skoðun að þau þurfi að finna aðra íþrótt til þess að keppa hvort við annað. „Ég hef gefið honum góð ráð varðandi tennis, hann er með góða forhönd, en bakhöndina þarf hann að laga. Ég er viss um að hann getur lagað þetta með minni aðstoð. Sömu sögu er að segja af golfsveifl- unni minni. Hún er skelfileg,“ sagði Wozni- acki og bætti við. „Ég held ég geti staðfest að ég mun aldrei tapa í tennis fyrir Rory, en það sama gildir um golfið, ég mun aldrei vinna hann. Við þurfum að finna okkur aðra íþrótt til þess að keppa sem jafningj- ar,“ sagði Wozniacki. Gríðarlegur metnaður McIlroy var á dögunum útnefndur kylfing- ur ársins á bandarísku PGA-mótaröðinni í fyrsta sinn á ferlinum. Hann þakkaði unn- ustu sinni fyrir þann árangur sem hann hefur náð á keppnistímabilinu. „Ég hef séð hve hart hún leggur að sér við æfingar og hún hefur gríðarlegan metnað. Ég hef lært ýmislegt af henni,“ sagði hinn 23 ára gamli McIlroy á þeim tíma og það verður spennandi að fylgjast með gengi þeirra þegar nýtt keppnistíma- bil hefst hjá þeim báðum á nýju ári. OFURÍÞRÓTTAPARIÐ GLÍMIR VIÐ NÝJA ÁSKORUN Íþróttaferlar kærustuparsins Rory McIlroy og Caroline Wozniacki hafa tekið mismunandi stefnu eftir að þau kynntust sumarið 2011. Norður-írski kylfingurinn hefur tekið risastökk upp á við en danska tenniskonan hefur hrapað eins og steinn niður heimslistann. Í FREMSTU RÖÐ Þau Rory Mcilroy og Caroline Wozniacki hittust í júlí í fyrra þegar David Haye og Wladimir Klitschko mættust í bardaga. Golf og tennis eiga það sameiginlegt að vera með fjögur risamót á hverju ári sem eru stærstu viðburðir hvers tímabils. Í golfi karla eru þrjú risamót haldin í Bandaríkjunum; Mastersmótið (Bandaríkin), Opna breska meistaramótið, Opna bandaríska meistaramótið, PGA-meistaramótið (Bandaríkin). Risamótin hjá atvinnukonum í tennis eru Opna ástralska meistaramótið, Opna franska, Wimbledon-meistaramótið og Opna bandaríska meistaramótið. Rory McIlroy hefur fagnað sigri tvívegis á risamóti; Opna bandaríska meistaramótinu árið 2011 og PGA-meistara- mótinu 2012. Risamótin í tennis og golfi Sigurður Elvar Þórólfsson seth@365.is Caroline Wozniacki er 22 ára gömul, fædd 11. júlí árið 1990 í Óðinsvéum í Danmörku. Hún er með lögheimili í Mónakó og gerðist atvinnumaður í tennis árið 2005. Wozniacki hefur unnið sér inn um 1,7 milljarða króna á ferlinum. Tekjur af auglýsingasamningum eru ekki í þeirri upphæð. Foreldrar hennar voru bæði í afreksíþróttum. Faðir hennar, Piotr, var atvinnumaður í fótbolta og leið hans lá til Danmerkur. Eiginkona hans, Anna, var atvinnumaður í blaki. Sonur þeirra, og eldri bróðir Caroline, Patrik Wozniacki, er atvinnumaður í fótbolta hjá Hvidovre í Danmörku. Wozniacki var samtals í rúmt ár í efsta sæti heims- listans, alls 67 vikur, en hún féll úr efsta sætinu þann 23. janúar á þessu ári. Á þessari stundu er Wozniacki í 10. sæti. Hún hefur sigrað á 20 atvinnumótum á ferlinum en aðeins einu sinni komist í úrslit á einu af risamót- unum fjórum. Hún tapaði í úrslitum á Opna bandaríska meistara- mótinu árið 2009. ➜ Caroline Wozniacki Rory McIlroy er 23 ára gamall, fæddur 4. maí árið 1989 í Holywood á Norður-Írlandi þar sem hann er enn með lögheimili. Hann gerðist atvinnumaður í golfi árið 2007. Á ferlinum hefur hann „önglað“ saman um 2,6 milljörðum króna í verðlaunafé. Tekjur af auglýsingasamningum eru ekki í þeirri upphæð. McIlroy er einkabarn en foreldrar hans heita Gerry og Rosie. Rory kynntist golfíþrótt- inni í gegnum föður sinn sem er með 0 í forgjöf og því vel lið- tækur í íþróttinni. McIlroy hefur sigrað á 13 atvinnu- mótum frá því hann gerðist atvinnumaður og hann hefur sigrað á tveimur risamótum nú þegar– Opna bandaríska árið 2011 og PGA-meist- aramótinu 2012. ➜ Rory McIlroy
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.