Fréttablaðið - 08.12.2012, Page 56
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 56
Fyrir sumum er það ómissandi hluti af jólahátíð-inni að hreiðra um sig með konfekt undir teppi og horfa á góða jólamynd. Vel heppnaðar myndir í þeim geira virðast nærri ódauðlegar og má þar nefna myndir á borð við Christmas Vacation, It‘s A Wonderful Life og A Christmas Story.
En einnig eru til kvikmyndir sem gerast um jól og eru
jafnvel jólalegar, þó þær teljist ekki til eiginlegra jóla-
mynda.
Margir hafa tekið upp þann sið að horfa á Lord of the Rings-
þríleik leikstjórans Peters Jackson í afslappelsi jólanna.
Myndirnar hafa í sjálfu sér lítið með jólin að gera en fólki
virðist almennt líka það vel að sökkva sér í langa og góða
myndaseríu í jólafríinu. Það tekur 11 klukkustundir og 23 mín-
útur að ljúka við allar myndirnar þrjár, horfi maður á lengri útgáfur
þeirra, en hér eru fleiri seríur sem tilvalið er að taka fyrir um jól.
Meira af góðu glápi
Haukur Viðar Alfreðsson
haukur@frettabladid.is
101 REYKJAVÍK (2000)
Hlynur á í ástarsambandi við kærustu
móður sinnar. Þetta veldur eðlilegum
flækjum í lífi þeirra þriggja, og allt gerist
þetta um jól.
INSIDE (2007)
Þessi hrottalega
franska hrollvekja
nefnist À l‘intérieur
á frummálinu og
gengur svo langt í
grafísku ofbeldi að
áhorfandinn er vís
til að verða afhuga
jólunum að eilífu.
THE REF (1994)
Á íslenskum vídeóspóluhulstrum hét þessi mynd Hostile Hostages, en
myndin segir frá kjaftforum gimsteinaþjófi sem tekur fjölskyldu í gíslingu
á aðfangadagskvöld. Uppistandarinn Denis Leary leikur á als oddi í þessari
vanmetnu mynd frá leikstjóranum sáluga, Ted Demme.
LETHAL WEAPON (1987)
Fyrsta myndin í þessari vinsælu seríu gerist, líkt
og Die Hard, um jól, þrátt fyrir að vera alls engin
jólamynd. Hið sígilda Jingle Bell Rock slær upphafs-
tón myndarinnar, en jólasteik þeirra félaga, Riggs
(Mel Gibson) og Murtaugh (Danny Glover), verður
að bíða þar til hverju einasta illmenni hefur verið
slátrað.
SILENT NIGHT, DEADLY NIGHT (1984)
Fjölmargar myndir um raðmorðingja í jólasveinabúningi hafa verið gerðar.
Þessi er án efa sú frægasta, en kennara- og foreldrafélög víðs vegar um
Bandaríkin reyndu að fá hana bannaða frá kvikmyndahúsum. Í mörgum
tilfellum tókst það, en myndin öðlaðist framhaldslíf á myndbandi og telst í
hópi svokallaðra költmynda.
P2 (2007)
Angela er snoppufríð skrifstofublók sem er haldið
í gíslingu af geðsjúkum öryggisverði í bílakjallara á
aðfangadagskvöld. Í einu atriði myndarinnar er hún
hlekkjuð við matarborð og neydd til þess að borða
jólamat með kvalara sínum. Vissulega nokkuð jólalegt,
en á óhefðbundinn máta.
ROCKY IV (1985)
Í fjórðu mynd seríunnar um hnefaleikakappann Rocky Balboa mætir
munnskakka mulningsvélin sovéska ofurboxaranum Ivan Drago í Moskvu
á jóladag. Þeir eru nú ekki beinlínis jólalegir í hringnum og myndin er
sú næstversta í seríunni, enda gerist afar fátt fyrir lokabardagann nema
hvert þjálfunar montage-atriðið á fætur öðru. Sígildir frasar Dragos eru þó
áhorfsins virði.
DIE HARD (1988)
Die Hard var lengi þekkt sem „jólamynd pabbans“, en staðreyndin er
sú að það hafa allir gaman af Die Hard. Þrátt fyrir að vera ofbeldis-
full og harðsoðin er hún glettilega jólaleg, enda er sögusviðið Los
Angeles á aðfangadagskvöld. Hryðjuverkamenn hertaka jólagleðskap
í Nakatomi-skýjakljúfnum en einn gestanna er eiginkona lögreglu-
mannsins John McClane. Það er skallabletturinn Bruce Willis sem fer
með hlutverk hans eins og frægt er orðið, en á nýju ári fá aðdáendur
að sjá fimmtu myndina um kappann.
EYES WIDE SHUT (1999)
Leikstjórinn goðsagnakenndi, Stanley Kubrick, kvaddi þennan heim í mars-
mánuði árið 1999, rúmum fjórum mánuðum fyrir frumsýningu síðustu
myndar hans, Eyes Wide Shut. Þessi draumkenndi og erótíski sálfræðitryllir
er byggður á stuttu skáldsögunni Traumnovelle eftir austurríska rithöf-
undinn Arthur Schnitzler sem kom út árið 1926. Í myndinni léku þau Tom
Cruise og Nicole Kidman hjón í kynlífskrísu um jól.
Jólamyndir
fullorðna fólksins
Hinn sístækkandi haugur jólakvikmynda lumar á ýmsu ef nógu djúpt er
grafið. Athugið að atriði í þessari grein eru ekki við hæfi jólabarna.
Nauðsynlegt er að eiga nóg að maula
með glápinu og ágætt er að miða
við 250 grömm af konfekti fyrir
hvern klukkutíma sem horft er á.
Back to the Future
Fimm klukkustundir og
42 mínútur
Indiana Jones
Átta klukkustundir
og ein mínúta
Home Alone
Átta klukkustundir
og 30 mínútur
Star Wars
13 klukkustundir
og 28 mínútur
Carry On
Einn sólarhringur,
21 klukkustund
og 12 mínútur
3
myndir
31
mynd
4
myndir
5
myndir
6
myndir