Fréttablaðið - 08.12.2012, Side 60
FÓLK|
og fannst það svo ömurlegt að ég lofaði
sjálfri mér að vera aldrei aftur að heiman
um jól,“ segir Dóra sem er hjá móður sinni
í Njarðvíkum með fjölskyldu sinni á að-
fangadagskvöld.
„Þótt Danir séu frægir fyrir huggulega
jólastemningu taka íslensk jól öllum
öðrum fram. Hér er líka fólkið sem mér
þykir vænst um og gera jól að jólum sem
samveru, góðum mat og jólapóker. Sökn-
uður er ástæða þess að ég flutti aftur
heim. Eftir fjögur frábær ár í Danmörku
fattaði ég að í jafn mörg ár hefði ég misst
af ástvinum mínum heima. Á þessum tíma
missti ég líka stjúpföður minn og gerði
mér grein fyrir hvað skiptir mestu máli í
lífinu.“
HEIMÞRÁ OG SÖKNUÐUR
Dóra býr með unnusta sínum Erni Töns-
berg og tveimur börnum. Hún á þrjú hálf-
systkin sem hún segir sér afar náin.
„En ég saknaði ekki síður vina minna
því vinir verða fjölskylda með tímanum.
Þótt maður komi heim annað slagið missir
maður af þeim því þá er hist á hlaupum
og teknar skýrslur í báðar áttir. Alltaf
þegar ég var á leið í flugvélinni til baka
fannst mér ég ekki hafa hitt neinn því sam-
veran var engin.“
Dóra segist aldrei hafa verið hluta af
vinahópi eða verið í saumaklúbbi.
„Ég á auðvelt með að kynnast fólki og
þekki marga en frá hverri stoppistöð lífs-
ins fylgir mér einhver til lífstíðar. Ég velti
stundum fyrir mér ræktun vinskapar en er
á þeirri skoðun að ekki þurfi að hafa fyrir
vináttunni. Hún er einfaldlega til staðar,
áreynslulaus og alltaf eins.“
Um helgar reynir Dóra að skipuleggja
dagana sem minnst. „Eftir kapphlaup við
klukkuna á virkum dögum reyni ég að lofa
mér ekki of mikið. Ellegar missir maður af
dýrmætum augnablikum tilverunnar með
fjölskyldunni í rólegheitunum.“
TÆKIFÆRI ÚR SKÓLA LÍFSINS
Dóra segist stundum sakna þess að vera
ekki lengur í sjónvarpi.
„Ég sakna þess minnst að vera andlit
á skjánum en meira að búa til sjónvarps-
efni. Það eru mínar ær og kýr; að búa hluti
til. Ég er hugmyndarík og með ríka sköp-
unarþrá. Þess vegna hefur mér verið bent
á að fara í nám í húsgagnahönnun svo ég
geti búið til minni hluti í stað fyrirtækja,“
segir hún og skellir upp úr.
Dóra segir líf sitt og starf vera tilvilj-
unum háð. „En ég skapa að sjálfsögðu
mitt líf sjálf og hef verið farsæl í því sem
ég tek mér fyrir hendur. Ég nenni ekki að
gera hlutina ef ég hef ekki trú á þeim og
hef uppgötvað að ég er mikið fyrir áskor-
anir og þrjóskari en andskotinn í að láta
hlutina ganga upp. Mér þykir líka gaman
að takast á við nýja hluti en geri það ekki
án þess að gera mitt besta. Maður verður
fyrst og fremst að standa með sjálfum sér
og trúa á það sem maður gerir.“
Dóra segist lánsöm að hafa getað
fengist við það sem hana langaði til. „En
auðvitað alltaf á minn hátt. Ég er ekki
með neina menntun og get því ekki opnað
sálfræðistofu þótt ég vildi. Ég er ágætis
dæmi úr lífsins skóla og tækifærin sem
lífið færir manni. Mig langaði ung að verða
leikari eða leikstjóri og leikstjóradraumur-
inn blundar enn innra með mér eins og
sálfræði. Þegar maður er stöðugt í mikilli
keyrslu koma tímar sem maður rennir
hýru auga til rólegri takta.“
HAMINGJUSAMUR NAUTNASEGGUR
Dóra hefur árum saman verið ein af feg-
urstu konum landsins og aldurinn virðist
ekkert ætla að bíta á hana.
„Ég spái lítið í útlitið og held að
áhyggjuhrukkur komi helst ef maður hefur
of miklar áhyggjur af útlitinu. Ég nota
aldrei dýr krem en þvæ húðina með vatni
og handsápu á kvöldin og ber á hana Aloe
Vera-gel sem gefur náttúrulegan raka. Svo
er ég hræðilega löt í líkamsrækt því ég á
erfitt með allt sem krefst endurtekninga
og er algjör nautnaseggur sem leyfir sér
allt. Við borðum jú hollan mat á heimilinu
en ég fæ mér ósjaldan tertusneið með
kaffibollanum. Ég er því mikill sælkeri því
maður þarf líka að njóta lífsins en ætli
genin séu ekki góð,“ segir Dóra, sátt í eigin
skinni.
„Það er gaman að vera ég og mér líður
ósköp vel. Ég segi alltaf að hver sé sinnar
gæfu smiður. Ef maður er óánægður í
lífinu en í aðstöðu til að skapa sér gott
líf er það engum nema manni sjálfum að
kenna.“ ■ thordis@365.is
■ FRAMHALD AF FORSÍÐU
SAKN-
AR SJÓN-
VARPSINS
„Skjás eins-tímabil-
ið var besti skólinn.
Þar starfaði kraft-
mikið fólk með
óbilandi trú og bjó
til hið ómögulega á
degi hverjum. Víst
vorum við ansi oft
á mörkunum og
sminkan með gloss
og púðurdós undir
borði í beinni út-
sendingu því ekki
náðist að klára
förðun fyrir fyrstu
kynningu.“
MYND/VILHELM
HELGIN
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Hátíðartilboð
15-25% af völdum vörum
Jólavörur -25% Rúmföt -15-25% Stafrófið -20% Handklæði - 25%
Opið í dag 11-16
Sendum frítt
úr vefverslun
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum
auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432
Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Það hefur orðið stökkbreyting á strætóhúsinu á Hlemmi því þar
er allt skreytt hátt og lágt. Alla laugardaga fram að jólum verða
tónleikar þar í boði jólaborgarinnar Reykjavík. Síðasta laugardag
var það hljómsveitin Tilbury sem reið á vaðið en í dag er það Agent
Fresco sem ætlar að spila fyrir
strætófarþega, gesti og gangandi
kl. 15.00 og fram eftir.
Tónleikarnir eru fyrir alla
aldurshópa og er tilvalið að enda
eða byrja miðborgarjólaröltið
á Hlemmi undir góðum tónum
Agent Fresco. Hlemmur hefur
svo sannarlega verið klæddur í
jólabúning en innblástur skreyt-
inganna er jólamyndin Christmas Vacation og hugtakið „magn um-
fram gæði“.
Á Hlemmi er ekkert sem heitir of mikið jólaskraut. Sýningargluggi
hefur sömuleiðis verið skreyttur þar sem hægt er að gægjast aftur
í fortíðina. Þar halda tvær ungar framakonur upp á jólin saman,
sötra soda stream og opna pakka. Augnablikið var fryst þegar önnur
þeirra var í þann mund að opna jólagjöf áratugarins – Clarens-fóta-
nuddtæki. Eftir viku verður það hljómsveitin Retro Stefsson sem
skemmtir vegfarendum og Jónas Sig og Ómar Guðjóns 22. desember.
Það er mikið um að vera í jólaborginni Reykjavík og viðburðir
daglega til jóla. Hægt er að fylgjast með því sem er að gerast á við-
burðardagatali inn á http://christmas.visitreykjavik.is.
JÓLASTUÐ Agent Fresco verða á
Hlemmi í dag.
HLEMMUR Í
JÓLABÚNINGI
Borgin hefur klæðst jólabúning og því gaman að
heimsækja miðbæinn.