Fréttablaðið - 08.12.2012, Blaðsíða 61
| FÓLK | 3HELGIN
Hússtjórnarskólinn í Reykjavík heldur
opið hús í dag, laugardag, milli kl.
13.30-17.00. Aðstandendur núverandi
nema, eldri nemendur og allir þeir sem
eru áhugasamir um rekstur skólans eru
hjartanlega velkomnir. Hússtjórnar-
skólinn hefur haft þann sið undanfarin
ár að opna skólann tvisvar á ári, í lok
annar í desember og á vorin. Margrét
D. Sigfúsdóttir, skólastjóri Hússtjórnar-
skólans, býst við miklum fjölda gesta
enda hafa opnu húsin verið vel sótt
undanfarin ár. Engin formleg dagskrá
er að hennar sögn heldur er gestum
velkomið að rölta um og skoða skólann
auk þess sem nemendur og kennarar
verða á staðnum. Núverandi nem-
endur sýna handavinnu sína, vefnað
og allt handverk sem þeir hafa unnið í
vetur. Auk þess munu þeir klára handa-
vinnuverkefnin sín á laugardaginn en
lokaskil á þeim til prófs eru á morgun
sunnudag.
Alls stunda 24 nemendur nám við Hús-
stjórnarskólann í Reykjavík. Mikill
meirihluti nemenda undanfarin ár er
konur en í fjórtán ára skólastjóratíð
Margrétar hafa einungis þrír karlmenn
sótt nám í skólann, þar af einn á þess-
ari önn. Boðið verður upp á veitinga-
sölu þar sem hægt verður að kaupa
kaffi, heitt súkkulaði með rjóma og
ljúffengar kökur. Hússtjórnarskólinn er
á Sólvallagötu 12.
MARGRÉT D. SIGFÚS-
DÓTTIR, skólastýra
Hússtjórnarskólans í
Reykjavík.
MYND/GVA
HANDAVINNA OG HEITT
SÚKKULAÐI Í OPNU HÚSI
Uppbyggingin á svæðinu við gömlu höfnina hefur verið mikil undan-farin ár og samstaðan góð meðal
atvinnurekenda á svæðinu. „Við hittumst
einu sinni í mánuði og spjöllum saman
um hvað við getum gert í sameiningu
til að gera svæðið áhugaverðara. Út úr
því kom vorhátíðin sem við vorum með
síðasta vor og svo núna jólahátíð,“ segir
Þurý Hannesdóttir hjá Special Tours við
gömlu höfnina.
Ýmislegt verður að sjá og skoða
við höfnina ásamt skemmtilegum
uppákomum á svæðinu. Meðal þess
helsta á dagskránni eru tónleikar á Café
Haítí þar sem hljómsveitin Belle Ville flyt-
ur franska tónlist frá 1930, tríóið Ómagar
flytur frumsamin lög, tenórar munu hefja
upp raust sína á veitingastaðnum Mar,
Hvalasetrið býður upp á smákökur og
heitan jóladrykk og Cinema verður með
sögustund með myndskreytingum um
jólavættirnar. Á Slippbarnum verða svo
djasstónleikar og jólahlaðborð. „Það má
heldur ekki gleyma því að svæðið hér við
höfnina nær alveg að Hörpunni og síðan
út á Granda, þar sem Sjóminjasafnið verð-
ur með jólaratleik. Það er gönguleið með-
fram ströndinni og hægt að labba í báðar
áttir.“ Kjörið er því að fá sér göngutúr og
líta við á fleiri stöðum í nágrenni gömlu
hafnarinnar.
Ferðaþjónustufyrirtækin sem staðsett
eru við Slippinn verða með jólamarkað í
miðasöluhúsunum. „Þar munu hönnuðir
og handverksfólk selja verk sín; prjóna-
og saumavörur, skartgripi, jólavörur,
kerti, leikföng og fleira auk Mæðrablóms-
ins. Búið er að skreyta öll húsin hér og
bátana og setja upp jólatré svo hér er
orðið ótrúlega jólalegt.“
Vert er að kynna sér gróskuna á þessu
svæði og upplifa alvöru jólastemningu við
hafnarsvæðið.
Nánari upplýsingar og ítarlega dagskrá
er að finna á heimasíðunni www.visi-
treykjavik.is/christmas.
■ vidir@365.is
JÓLAHÁTÍÐ VIÐ
GÖMLU HÖFNINA
SMÁKÖKUR OG JÓLADRYKKIR Gamla höfnin í Reykjavík, bátarnir og næsta
nágrenni, er komin í jólabúning. Í dag verður þar efnt til jólahátíðar með
skemmtilegri dagskrá, handverki, hönnunarmarkaði og fleiru.
JÓLALEGT
Þurý Hannesdóttir segir
margt skemmtilegt vera
að gerast við gömlu
höfnina um helgina.
HÖFNIN
„Það er gönguleið
meðfram strönd-
inni og hægt að
labba í báðar áttir.“
Kósí prjónakjóll
Litir: Svarblátt með gráu,
rautt með svörtu
Verð aðeins
9.900 kr.
Flottu peysurnar
komnar aftur
Litir: Svart með gráu, grátt með
dökkgráu, off white með beige
Verð aðeins
6.990 kr.