Fréttablaðið - 08.12.2012, Page 79
KYNNING − AUGLÝSING Myndavélar8. DESEMBER 2012 LAUGARDAGUR 3
Fyrstu stafrænu myndavélarnar voru ekki merkilegar, myndgæðin voru döpur, sérstaklega í lélegu ljósi, og þær
voru mjög lengi að taka myndir. En fólk sætti
sig við ókostina því það var svo frábært að
geta skoðað myndirnar strax. Vélarnar seld-
ust vel og gæði þeirra jukust gríðarlega hratt.
Fljótlega var hægt að fá fínar myndavélar í
öllum stærðum og gerðum,“ segir Berg-
ur Gíslason, eigandi verslunarinnar Ljós-
myndavörur.
Hann segir einn af helstu kostum staf-
rænnar ljósmyndunar þann að þeir sem
leggja stund á hana verða fljótt betri ljós-
myndarar. „Ljósmyndaáhugi hefur náð áður
óþekktum hæðum og mikill fjöldi fólks hefur
keypt sér stórar og öflugar atvinnumanna-
vélar og dýrar og þungar linsur til að upp-
fylla síauknar gæðakröfur. Sá böggull fylgir
þó skammrifi að þær hafa verið stórar og
þungar, notendum til mæðu. Með auknum
gæðum myndavélasíma hefur fólk því oft
gripið til þeirra og eru alvöru vélarnar oftar
en ekki skildar eftir heima, í bílnum, sumar-
bústaðnum á hótelinu og svo framvegis. En
þegar fólk er orðið vant gæðunum úr stóru
vélunum verður það aldrei sátt við gæðin
úr símum. Við þessu hefur Fujifilm brugð-
ist með X-línunni. Þar er áherslan á að búa
til eins litlar og nettar vélar og mögulega er
hægt, án þess að gefa þumlung eftir í gæða-
kröfum,“ segir Bergur.
Í byrjun árs 2011 kom Fujifilm X100 á
markað en hún setti myndavélaheiminn
á annan endann. „Allt í einu var komin
á sjónar sviðið lítil og létt myndavél með
myndgæðum á við stóru DSLR-vélarnar,
sem leit út og virkaði eins og myndavél – bara
miklu léttari. X100 er allt öðruvísi en aðrar
vélar. Útlitið minnir á fyrri tíma, með lok-
hraðastilli ofan á vélinni og ljósopsstillingu á
linsunni – í stað þess að grafa stillingar djúpt
í valmyndum. Hún er með glugga með ram-
malínum auk stafrænna upplýsinga, fram-
úrskarandi Fujinon-linsu og skilar frábær-
um myndgæðum. X100 er falleg og öflug vél
sem hægt er að stinga í vasann og nú er aftur
orðið gaman að taka myndir,“ segir Bergur.
X100 fékk fljúgandi start og seldist ítrekað
upp um allan heim. Í fyrstu voru kaupend-
ur flestir atvinnuljósmyndarar eða miklir
áhugaljósmyndarar sem áttu stórar atvinnu-
vélar, en vildu fá vél sem hægt væri að grípa
með sér og taka á sér til ánægju. „Fujifilm
fylgdist grannt með óskum notenda og bætti
vélina með hugbúnaðaruppfærslum eftir
því sem leið á árið. Vorið 2012 kom Fujifilm
með X-Pro 1 en hún kemur til móts við þá
sem óskuðu eftir vél sem var í sama anda og
X100 en með skiptanlegum linsum,“ upp-
lýsir Bergur. „X-Pro 1 er stútfull af nýjung-
um. Hún er með nýja byltingarkennda 16M
díla X-Trans-flögu sem er ólík öðrum flög-
um og það þarf engan AA-filter fyrir framan.
Það eykur myndgæðin svo mikið að X-Pro
1-vélin, sem er með APS-C-flögu keppir við
„Full-Frame“-vélar í myndgæðum. Það er al-
gert grundvallaratriði að nota APS-C-stærð
af flögu því þannig er hægt að hafa linsurnar
og vélina minni og léttari. En það þarf fleira
en góða flögu, X-Pro 1 er fyrsta vélin með X-
mount-linsutengi og Fujinon, (linsuarmur
Fujifilm) hefur hannað og sett á markað 5
linsur sérstaklega fyrir X-mount kerfið. Lins-
urnar eru sérstaklega bjartar og skarpar. Þá
eru fimm aðrar linsur væntanlegar á næsta
ári. Auk þess sem hægt er að nota M-mount-
linsur með millihring. Eins er hægt að nota
fjöldann allan af öðrum linsum með milli-
hring frá þriðja aðila.“
Meðal annarra nýjunga í X-Pro 1 er Hybrid
viewfinder-glugginn en hann er bæði hefð-
bundinn og stafrænn. Notandinn getur
ákveðið hvort hann notar hefðbundinn
optískan glugga, elektrónískan glugga eða
blöndu af báðum. Þegar skipt er um linsur
breytast línurnar í optíska glugganum þann-
ig að hægt er að ramma myndina að vild.
Fyrir örstuttu kom Fujifilm svo með X-E1
sem er í meginatriðum eins og X-Pro 1, að því
frátöldu því að glugginn er aðeins elektrón-
ískur. X-E1 hefur þann kost að vera 100.000
krónum ódýrari auk þess sem hún er fáan-
leg með 18-55mm linsunni á tilboðsverði á
239.900 krónur.
Fyrir þá sem vilja minni vélar býður Fuji-
film að sögn Bergs upp á X10 sem kom fyrir
um ári síðan og XF1 sem var að koma á mark-
að. Báðar nota þær sömu flöguna en eru með
mismunandi byggingarlag. Sú nýrri, XF1, er
hönnuð til að komast í vasa eða veski en X10
er örlítið fyrirferðarmeiri. „Sé ætlunin að
taka næsta skef í ljósmyndun er örugglega
til Fujifilm X-vél sem hentar.”
Næsta skref í myndavélum
Síðustu fimmtán árin hefur orðið ótrúleg þróun á myndavélamarkaðnum. Ljósmyndaáhugi hefur náð áður óþekktum hæðum og
mikill fjöldi fólks hefur keypt sér stórar og öflugar atvinnumannavélar. Þær hafa þann ókost að vera fyrirferðarmiklar. Fujifilm
hefur séð við því og sett á markað nettar vélar sem gefa þó ekkert eftir í gæðum.
Nýju Fujifilm-vélarnar eru litlar og léttar en myndgæðin eru á við myndgæði stóru DSLR-vélanna. Útlitið minnir
á fyrri tíma.
Gerðu jólakort, dagatöl, ljósmyndir, striga, bolla, boli, púsluspil, músamottur,
iPhone bök og fleira á einfaldan og fljótlegan hátt á vefnum okkar.
Einfalt, fljótlegt og ódýrt!
Sæktu eða fáðu sent.
Gerðu meira úr mynd unum þínum
Fujifilm X myndavélar – ný hugsun í myndavélum!
Öll viljum við frábær myndgæði, en engin nennir
að burðast með of stórar myndavélar allan daginn.
Fujifilm X serían – myndavélar fyrir alla.
XP150 – vatns- og höggheld, GPS............. kr. 43.900
XP170 – vatns- og höggheld, Wifi .............kr. 48.500
XF1 - f1.8-4.9, 25-100mm, OIS ................. kr. 89.900
X10 - f2.0-2-8, 28-112mm, OIS .................kr. 99.900
X-S1 f2.8-5.6, 24-624mm, LSIS .............. kr. 119.000
X-E1 (hús) X Trans CMOS, X mount,
OLED gluggi, ...........................................kr. 169.900
X-Pro 1 (hús) X Trans CMOS,
X mount, Hybrid gluggi, ............................kr. 269.000
Skipholti 31, sími: 568-0450, www.ljosmyndavorur.is
hjá okkur!