Fréttablaðið - 08.12.2012, Page 80

Fréttablaðið - 08.12.2012, Page 80
KYNNING − AUGLÝSINGMyndavélar LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 20124 DÝRASTA LJÓSMYNDIN Dýrasta ljósmynd sögunnar er ljósmyndin Rhein II eftir þýska listamanninn Andreas Gursky. Myndin er frá árinu 1999 og var seld á uppboði hjá uppboðs- húsinu Christie‘s í New York árið 2011 fyrir tæplega 550 milljónir króna. Ljósmyndin var önnur í röð sex mynda af ánni Rín eftir Gursky. Við vinnslu ljósmyndar- innar fjarlægði hann fólk og verksmiðjubyggingu af henni. Ljósmyndin er 190 x 360 sm að flatarmáli. Eigandi ljósmyndar- innar er óþekktur. Næst dýrasta ljósmynd sögunnar er eftir bandaríska ljósmyndarann Cynt- hiu Morris Sherman. Myndin ber ekkert nafn, Untitled #96. Ljósmyndin var einnig seld á uppboði hjá Christie‘s í New York árið 2011 en fyrir tæplega 500 milljónir króna. Næst á listanum er ljósmyndin Dead Troops Talk eftir kanadíska lista- manninn Jeff Wall. Hún var seld á rúmlega 460 milljónir króna árið 2012, einnig hjá uppboðs- húsinu Christie‘s. Elsta ljós- myndin á lista yfir 20 dýrustu ljósmyndir sögunnar er talin vera frá árunum 1879-1880. Hún er af Billy the Kid og er metin á um 290 milljónir króna. Það er erfitt að festa rétta augnablikið á filmu. Að fanga augnablikið þar sem allir eru fínir og sætir og horfa í linsuna á sama tíma er nánast ómögulegt. Það er ekki nóg með að erfitt sé að ná rétta andartakinu, það þarf líka að fullvissa sig um að birtan hafi verið rétt og bakgrunnurinn í lagi. Fjölskyldumyndataka getur því verið heljarinnar mál. Hér eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga ● Veljið viðeigandi bakgrunn. Ekki smala öllum saman fyrir framan skrautlegt veggfóður, veljið frekar einlitan, ljósan vegg til að standa við. Það gengur líka að stilla sér upp við borð eða píanó, svo lengi sem húsgagnið keppir ekki um athyglina við myndefnið sjálft. Það er líka sniðugt að vera úti í góðu veðri. ● Gefið fólki tíma til að taka sig aðeins til fyrir mynda- tökuna. Látið vita að það verði myndataka eftir til dæmis tíu mínútur. Þá nær fólk að punta sig. ● Athugið lýsingu. Mesta birtan ætti að koma aftan frá ljósmyndaranum. Stillið fólki þannig upp að það sé á móti birtu. Notið flass á viðeigandi hátt. ● Takið nógu margar myndir, þá ættu nokkrar að vera í lagi. ● Hafið gaman. Ef fólk skemmtir sér á meðan mynda- takan fer fram eru meiri líkur á að myndirnar sjálfar verði skemmtilegar. ALLIR AÐ SEGJA „SÍS“ GÓÐ RÁÐ NATIONAL GEOGRAPHIC Á vefnum www.nationalgeog- raphic.com er að finna ráðlegg- ingar um hvernig best er að taka góðar ljósmyndir við mis- munandi aðstæður. Þar kemur meðal annars fram: ● að þegar myndir eru teknar úti í frosti eða slæmu veðri ætti aldrei að skipta um linsur utan- dyra. Annars gæti raki komist inn í myndavélina sjálfa. ● að þegar myndefnið er af óræðri stærð, svo sem fjall, sjávarflötur eða snjór er sniðugt að setja inn á myndina hlut af þekktri stærð svo sem manneskju, tré eða dýr. Með því öðlast áhorfandinn betri skilning á myndinni. ● að sniðugt sé að horfa á myndefnið gegnum nokkrar mismunandi linsur til að átta sig betur á hvernig hver linsa breytir sjónarhorninu. Fyrir fleiri ráð sjá www.national- geographic.com. verð 11.990 verð 3.990 verð 4.990 verð 2.990 verð 3.490 verð 2.690 verð 1.990 verð 2.690 IÐA Lækjargata 2a 101 Reykjavík sími 511-5001 opið 9 - 22 alla daga IÐA ZIMSEN Vesturgata 2a 101 Reykjavík sími 511-5004 opið 9 - 22 alla daga AÐVENTUTILBOÐ finndu okkur á facebook Höfundar lesa upp úr bókum sínum kl. 14 á sunnudaginn á Café Mezzo í IÐU Lækjargötu. Maxímús Músíkús verður á staðnum! Sigurveig býður gestum og gangandi upp á súpu kl. 14 á laugardaginn í IÐU Lækjargötu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.