Fréttablaðið - 08.12.2012, Page 90
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 66
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Heilabrot
Hvað ertu gamall? Ég er þrjátíu
og tveggja.
Hver er þín fyrsta minning?
Þegar pabbi seldi brúna Allegro-
inn okkar. Ég var tveggja. Það var
rosa sorglegt að skilja hann eftir
á bílasölunni. Svo man ég líka
mjög greinilega þegar ég ákvað
einn morguninn, þegar ég var að
verða fjögurra ára, að nú væri ég
of stór fyrir snuð og henti því út
um gluggann. Ég hef ALDREI séð
eftir neinu eins og þessu.
En fyrsta minning um jólin? Ég
á margar góðar minningar. Mér
fannst alltaf hátíðlegt að fara í
messu hjá pabba á aðfangadag
bæði klukkan 18 og 23.30. Mér
fannst alltaf gaman og hátíðlegt
að fara í kirkju.
Hvað varstu gamall þegar þú
byrjaðir að leika? Ég byrjaði að
leika í jólaleikritum í skóla. Svo
var ég unglingur þegar ég lék
fyrst með atvinnuleikurum, þar á
meðal Þresti Leó. Þannig að við
höfum þekkst lengi.
Gerðir þú einhvern tíma skamm-
arstrik þegar þú varst lítill?
Ég var mjög lélegur í þeim. Oft
vorum við vinirnir eitthvað að
prakkarast og þá náðist ég eigin-
lega alltaf. Dyraat var mjög vin-
sælt og símaat líka.
Lékstu þér í tölvuleikjum þegar
þú varst strákur? Nei, mér
fannst alltaf leiðinlegt í tölvuleikj-
um. Var stundum í tölvuspili en
aldrei lengi í einu.
Ertu góður í einhverri íþrótt? Ég
æfði handbolta með Val. Ég elska
handbolta. Ég átti bók sem sýndi
hvernig maður verður góður í
handbolta. Núna í dag er hægt að
kaupa DVD-disk með handbolta-
kennslu. Mig langar í svoleiðis.
Átt þú börn? Já, tvö, strák og
stelpu.
Hvernig hlutverk finnst þér
skemmtilegast að leika? Alls
konar. Það er svo gaman að
skipta um og breyta til. Nú er
ég að leika Jólasögu með Þresti,
Hinn eini sanni jólaandi, við
sýnum í Borgarleikhúsinu! Það er
rosalega gaman.
Hefurðu búið til mörg leik-
rit sjálfur? Jólasagan er leikrit
eftir okkur Þröst byggt á sögu
eftir mig. Svo gerði ég Eldfærin
og baunagrasið upp úr ævintýr-
um sem eru til. Mér finnst mjög
gaman að búa til leikrit.
Hvað finnst þér best við jólin?
Að leika mér með fjölskyldunni
og eiga notalega stund með þeim
sem mér þykir vænt um. Borða
góðan mat, gefa gjafir og fara í
messu til pabba.
Alltaf mjög lélegur í
skammarstrikum
Þegar Guðjón Davíð Karlsson leikari– oft ast kallaður Gói– var lítill þá leiddist
honum í tölvuleikjum en var oft eitthvað að prakkarast með vinum sínum.
OFTAST KALLAÐUR GÓI
„Jólasagan er leikrit eftir
okkur Þröst, byggt á sögu
eftir mig,“ segir Gói.
F
RÉ
TT
AB
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Nafn og aldur: Arndís Birta Ólafs-
dóttir, 11 ára.
Í hvaða skóla ertu? Hamraskóla.
Í hvaða stjörnumerki ertu? Tví-
buri.
Áttu happatölu? Já, 18.
Helstu áhugamál? Syngja, lesa
bækur, leika við vini og vera með
fjölskyldunni.
Eftirlætissjónvarpsþáttur? Vamp-
ire Diaries.
Besti matur? Pitsa.
Eftirlætisdrykkur? Sprite og Yippy
(grænn).
Hvaða námsgrein er í uppáhaldi?
Heimilisfræði.
Áttu gæludýr? Ekkert núna en átti
einu sinni hamstur sem hét María.
Skemmtilegasti dagurinn?
Laugardagur því þá er maður í
fríi og fjölskyldan hefur kósý-
kvöld.
Eftirlætistónlistarmaður?
Carly Rae Jespen.
Uppáhaldslitur? Fjólublár.
Hvað gerðirðu í sumar? Lék
við litlu systur mínar og svo
flutti ég í nýtt hús.
Skemmtilegasta bók sem þú
hefur lesið? Allar bækurn-
ar eftir Kristjönu Friðbjörns-
dóttur frænku mína, en sér-
staklega bækurnar um Ólafíu
Arndísi.
Hvað ætlarðu að verða þegar
þú ert orðinn stór? Kennari og
búðarkona.
Krakkakynning
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
21
„Jæja Róbert,“ sagði Kata pirruð. Þú veist náttúrulega
allt um þennan fugl er það ekki? Hvað hann heitir, hefur
örugglega bæði ungað honum út úr eggi, þekkir ömmu hans
og ef ég þekki þig rétt líka étið hann.“ Það sauð á Kötu.
„Svona, svona,“ sagði Róbert óvenju auðmjúkur. „Ég veit
lítið um þennan fugl og ekki hvað hann heitir.“ Svo bætti
hann við ema að ég hef séð hann og hann er mjög
kvikur, hleypur um og dillar stélinu upp og niður.“ Kata lét
þetta svar sér nægja og þagði þótt pirruð væri.
En veist þú hvaða fugl þetta er?
Er þetta:
A Auðnutittlingur
B Maríuerla
D Sandlóa
1. Framan á vopni fastur hékk.
Fyrrum trúðu menn á hann.
Uppi á honum útsýn fékk.
Efst í hlöðu sá ég hann.
2. Eitt er að saga annað sker.
Með augu tvö en lítið sér.
Ýmsar fréttir flytur þér.
Fellur oft í september.
SVÖR:
1. Ás: (Ásgeir), guð, hæð á landi, mæniás. 2. Blað: sagarblað, hnífsblað,
augablað (á bíl), dagblað, laufblað.