Fréttablaðið - 08.12.2012, Qupperneq 92
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| HELGIN | 68
Draugapar – öðru nafni vofuapar – eru sannkallaðar furðuskepnur. Þeir
eru pínulitlir, búkurinn og hausinn saman ekki nema tíu til fimmtán
sentímetrar, og með langar lappir, en augun í þeim risavaxin; hvort um sig
er um sextán millimetrar í þvermál og jafnstórt og heilinn í þeim.
Draugaparnir, sem finnast hvergi nema á eyjum í Suðaustur-Asíu, hafa
valdið vísindamönnum heilabrotum í hundrað ár. Þeir vita nefnilega ekki
almennilega hvernig ber að flokka þessa einkennilegu prímata. Ýmist eru
þeir sagðir af sömu ættkvísl og hálfapar á borð við lemúra eða í sérstökum
systurflokki þeirra dýra sem á íslensku heita einfaldlega apar. Margt virðist
benda til þess að þeir hafi kvíslast frá öðrum prímötum mjög snemma í
þróunarsögunni.
Það er fleira sem gerir draugapana einstaka í dýraríkinu. Þökk sé
óvenjulegri hryggsúlu geta þeir snúið höfðinu í 180 gráður eins og uglur.
Það hjálpar þeim auðvitað að verjast árásum að geta horft allt í kringum
sig án þess að hreyfa sig úr stað. Þeir hafa einnig ofurnæma heyrn, ekki
ósvipaða og leðurblökur.
Þessi litlu næturdýr, sem eru af nokkrum lítils háttar ólíkum tegundum,
hafa mikinn kraft í löngum löppunum og geta stokkið tí- til tuttugufalda
eigin lengd í loft upp. Þegar draugapi kemur í heiminn eftir hálfs árs með-
göngu er hann þegar loðinn og með opin augu. Innan sólarhrings er hann
farinn að príla í trjám.
Að síðustu má nefna að draugapar eru einu prímatarnir sem eru alfarið
rándýr. Þeir stökkva fyrst og fremst á skordýr og éta en veiða sér líka af og
til fugla, snáka, eðlur og leðurblökur til matar. Staða allra tegundanna er
viðkvæm og sumar eru í bráðri útrýmingarhættu. - sh
DÝR VIKUNNAR
DRAUGAPI
KROSSGÁTA
LÁRÉTT
1. Passar íþróttaviðburður í álform? (7)
5. Rök fjörga lappa um regnríka tíð (12)
11. Hér er peli, segir fatlafól (11)
12. Tóku óhapp í auðlind (8)
13. Frá blöndu yfir í fyrirgefningu (7)
14. Ragna Smára gerir örlitlar
breytingar (10)
15. Klaufdýr að berja rykrottur (7)
16. Fyrr í að rugla stálið sem súr bítur ei (7)
19. Tölum gegn andófi (8)
22. Hér molnar eðlileg röð bókstafa (6)
26. Fjölskylda dregin og fóstruð til
frambúðar (8)
28. Sé klúra fara í káetu (5)
31. Örlög gátta má rekja til ramma þeirra (9)
32. Kem upp um sveip í afa (8)
33. Fjölfjórflúoretýltölvan er með
ónýtt minni (13)
34. Íhaldslengja er frænka þorsksins (8)
35. Önd eggja fyrir himneska söngvana (7)
36. Bara ég og þessi sígræni (5)
39. Þetta skar var brenglun frækinnar (7)
41. Kóreskur smellur enn á smala (10)
42. Bæði löggan og leigubílstjórarnir stóla
á keyrslukrotarana (9)
43. Hemja fellingu í bága við
hegðunarreglur (7)
44. Gamall skítur úr íslenskum víkingi (9)
LÓÐRÉTT
1. Óbrengluð sporkaka hylur báða fætur (8)
2. Bruðlandi þjóð kveður sinn sólundarsöng (8)
3. Kontóristi er kvikindi í harðri kápu (8)
4. Tvöfalda girni (10)
5. Blóðþyrstar hengja greifa í vír (9)
6. Blæðingar ávaxta í höfuðfötin (9)
7. Út fyrir víðáttu án innihalds (8)
8. Almanak náði ei lengra, útheimtir gáta þrengra? (8)
9. Messa fær vinsælt korn út úr þessu rugli (8)
10. Auga stúlku er bleikt sem flagahnoðri (10)
17. Drep þá sem fjærst eru á bílasafnsbænum (9)
18. Kennd kysi sjálfstæði (9)
20. Skrækir ku vera byggingar fyrir músík (8)
21. Mynda dreifinguna fyrir milliveginn (13)
23. Einn er tindafjöldi (8)
24. Bitvargur, harðnað harpix, sjór og
síða– votlendið sameinar allt þetta (11)
25. Hræ visna vegna húðhnúða (8)
27. Óróleiki í duglegri (6)
29. Brekkusjór er á milli Sveifluháls og Vatnshlíðar (11)
30. Próf sýnir að þær eru alvöru (10)
36. En hvað með einiberjasnafs spyr
ekki nokkur manneskja (5)
37. Janni er ruglaður bardagakappi (5)
38. Dóttir Matthíasar og Lovísu (5)
39. Gáir til veðurs og sér fimm rómverska
orma í ruglinu (5)
40. Snyrtir slompaðar (5)
VEGLEG VERÐLAUN
LAUSNARORÐ
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist
vinsælt byggingarform. Sendið lausnarorðið í síðasta lagi 12. desember
næstkomandi á krossgata@frettabladid.is merkt „8. desember“.
Vikulega er dregið er úr inn-
sendum lausnarorðum og fær
vinningshafi eintak af bókinni
Ár Kattarins frá Forlaginu. Vinn-
ingshafi síðustu viku var Jónína
Þ. Stefánsdóttir, Kópavogi og
getur hún vitjað vinningsins í
afgreiðslu 365, Skaftahlíð 24.
Lausnarorð síðustu viku var
S J Á L F B O Ð A L I Ð A R
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
11 12
13 14
15
16 17 18 19 20 21
22 23 24 25
26 27 28 29 30
31
32
33
34
35
36 37 38 39 40
41 42
43 44
Á B E R A N D I S V A N A S Ö N G U R
T N L U M F R Á E
T D L L Ó L Í K I N D A T Ó L I
A X A R S K A F T A S T M
V S L R O S Ú S U M B L
I E A F R O T T U G A N G E
L I N D U B U F F A U Á L A G I
L D S L I N N M Ú R A Ð A R K
T A L T A L A Ð I K A N A D A
A S S A A S Í K Á T A R R R
R É T T A R R Í K I L D Ó K
R I Á Þ L A U N H E L G A R
F R Á B I Ð U R F E M N Y
É Æ A Ó U P P S T Í G A N D I
S T Æ R I L Á T U R T S R D
T A T S I K L B
I D U A K L E S S U K E Y R I
E N D U R S E L J A B R N A
D N A I R Ó B O T G U
L I N D Ý R I Ð T X S T I R Ð A
Augnstórt rándýr með
haus á við uglu
Menntastoðir brúa bilið
– næsti hópur byrjar 14. janúar
Ofanleiti 2 - 103 Reykjavík - Sími: 580 1800 - www.mimir.is
Mímir-símenntun býður upp á margvíslegar
námsleiðir í fullorðinsfræðslu
Skráning stendur yfir núna í síma 580 1800
Langar þig í háskóla
en hefur ekki stúdentspróf?
Skoðaðu Grunnmenntaskólann
– næsti hópur byrjar 8. janúar
Fórstu ekki í
framhaldsskóla?
Er lesblinda
í þinni fjölskyldu?
Aftur í nám styrkir stöðu lesblindra
– næsti hópur byrjar 4. febrúar
Náms- og starfsráðgjöf er þér að kostnaðarlausu
Raunfærnimat í verslunarfagnámi og í skrifstofugreinum
er þér að kostnaðarlausu