Fréttablaðið - 08.12.2012, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 08.12.2012, Blaðsíða 94
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 70TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. „Það er voða gott að breyta til. Mér finnst ég nú hafa frelsi til að gera tilraunir, spyrja spurninga og gera heiðarleg mistök ef illa fer,“ segir tónlistarmaðurinn Gunnar Gunnars- son, nýráðinn organisti í Fríkirkj- unni. „Ég er búinn að vera í Laugar- neskirkju í 17 ár og var ekki orðinn leiður á neinu nema sjálfum mér. Ég vissi að það voru mannabreytingar í Fríkirkjunni og ákvað að athuga málið. Við séra Hjörtur Magni höfum mikið unnið saman, í giftingum og ýmsum athöfnum, þannig að við höfum svo sem verið að daðra hvor við annan um langa hríð.“ Eru Laugarnesbúar ekki sárir og svekktir? „Ég vona að minnsta kosti að þeir séu ekki glaðir yfir því að ég fór en þeir verða það með nýjan org- anista því það kemur alltaf maður í manns stað.“ Gunnar segir Fríkirkjuna gott tón- listarhús. „Eftirhljómurinn þar er hag- stæður og svo tekur hún marga,“ segir hann og sér fyrir sér að verða með djassmessur sem mætti þróa í ýmsar áttir. „Í Fríkirkjunni er góð lausn á kórmálunum,“ segir hann. „Forveri minn í starfi, Anna Sigríður Helga- dóttir, laðaði til sín ungt fólk sem er að læra söng í FÍH og ég tek við þeim ágæta hópi. Gunnar er frá Akureyri, á foreldra þar og rætur. „Ég kom hingað suður í Tónskóla Þjóðkirkjunnar og kláraði kantorspróf, fór líka í Tónlistarskól- ann í Reykjavík og tók burtfararpróf í tónsmíðum,“ segir hann. Var hann í tónlist fyrir norðan? „Já, heilmik- ið. Ég byrjaði 16 ára gamall í Hljóm- sveit Finns Eydal. Þá riðluðust svolítið plönin. Ég hafði alltaf verið í klassísku námi og ekki séð neitt annað fyrir mér en eitthvað á þeim nótum en allt í einu var ég farinn að spila fyrir dansi þrjú kvöld um hverja helgi.“ Gunnar hefur leikið á Hammond- orgel undir söng Bjarna Ara að undan- förnu og á aðventukvöldinu annað kvöld ætlar hann að þenja jólalögin á það hljóðfæri líka. Fram undan eru tónleikar með Esther Jökulsdóttur þann 13., þar sem lög Mahaliu Jack- son óma, og svo allar jólamessurnar auðvitað. Hann kveðst hlynntur margs konar tónlist, ekki bara hákirkjulegri og segir þá afstöðu passa vel í Frí- kirkjunni. Þar sé til dæmis ekki um víxlsöng að ræða milli prests og kórs. „Tónið hjá prestum var upphaflega notað til að láta hið talaða orð berast í stórri dómkirkju, og maður veltir fyrir sér hvort það hefði mátt endurskoða það þegar hljóðkerfið var fundið upp.“ gun@frettabladid.is Frelsi til að gera tilraunir Organistinn Gunnar Gunnarsson hefur gengið til liðs við Fríkirkjuna. Þar sér hann fram á fj ölbreytt verkefni og er feginn að mega víkja aðeins frá því hefðbundna. ORGANISTINN „Ég hafði alltaf verið í klassísku námi og ekki séð neitt annað fyrir mér en eitthvað á þeim nótum en allt í einu var ég farinn að spila fyrir dansi þrjú kvöld um hverja helgi.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 24 tíma vakt Sími 551 3485 Davíð H. Ósvaldsson S: 896 8284 Óli Pétur Friðþjófsson S: 892 8947 ÞEKKING–REYNSLA–ALÚÐ ÚTFA RARÞJÓNUSTA Við sendum innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR PÁLÍNU KARLSDÓTTUR frá Látrum í Aðalvík. Óli Örn Andreassen Annette T. Andreassen Inga Lovísa Andreassen Matthías Viktorsson Karl Andreassen Elma Vagnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir, tengdamóðir, systir og dóttir, ANNA KRISTJANA TORFADÓTTIR fyrrverandi borgarbókavörður, andaðist á líknardeild Landspítalans 30. nóvember. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 11. desember kl. 15.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans og Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð. Vera Júlíusdóttir Gauti Sigþórsson Ásgeir Torfason Ólafur Torfason Ragnheiður Torfadóttir Vera Pálsdóttir Innilegar þakkir færum við öllum þeim fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar hjartkæru, KRISTÍNAR STEINARSDÓTTUR kennara, Bleikjukvísl 11, Reykjavík. Þökkum ómetanlega vináttu, umhyggju og stuðning í veikindum hennar með bænum ykkar og nærveru. Sigurbjörn Magnússon Magnús Sigurbjörnsson Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Nína Kristín Sigurbjörnsdóttir Elsa Pétursdóttir Steinarr Guðjónsson Björg Steinarsdóttir Gísli V. Guðlaugsson Rakel Steinarsdóttir Bryndís Steinarsdóttir Hermann Hermannsson Okkar ástkæra móðir, amma og langamma, UNNUR ÞÓRA ÞORGILSDÓTTIR ljósmóðir, síðast til heimilis að Hrafnistu Laugarási, áður búsett í Sandgerði og Kópavogi, lést 2. desember. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. desember kl. 13. Starfsfólki hjúkrunardeildar A-4 á Hrafnistu eru færðar sérstakar þakkir fyrir góða umönnun. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarsjóð Hrafnistu eða önnur líknarfélög. Þorgils Baldursson Inga Jónsdóttir Sigurbjörg Baldursdóttir Ásgeir Beinteinsson Hallur Andrés Baldursson Kristín Sædal Sigtryggsdóttir Sigurður Baldursson Borghildur Sigurbergsdóttir ömmu- og langömmubörnin. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR B. SIGMARSSON andaðist á líknardeild LSH Kópavogi þann 5. desember síðastliðinn. Minningarathöfn fer fram í Fossvogskapellu þriðjudaginn 11. desember kl. 15.00. Útför fer fram á Seyðisfirði laugardaginn 15. desember kl. 13.30. Björgvin Ólafur Gunnarson Ólöf Jóhanna Sigurðardóttir Sigmar Gunnarsson Hulda Gunnarsdóttir Friðrik Már Gunnarsson Guðveig Bjarný Guðmundsdóttir Hildur Gunnarsdóttir og barnabörn. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson „Við ákváðum að opna dyr kirkjunnar á öðrum forsendum en þeim hefðbundnu og í gær efndum við til kaffihúsakvölds sem heppnaðist vel og var heimilislegt. Díana Bryndís ljósmyndanemi opnaði líka listsýningu í anddyrinu sem stend- ur fram í febrúar,“ segir Gunnhildur Helgadóttir, formaður afmælisnefndar Glerárkirkju. Kirkjan heldur upp á 20 ára vígsluafmæli nú um helgina. Um tvöfalt afmæli er að ræða því suður- álman er 25 ára, var tekin í notkun 1987. „Gunnhildur segir eitthvað við allra hæfi í dagskránni. „Doktor Hjalti Huga- son flytur erindið Samfylgd þjóðar og kristni í þúsund ár klukkan 16 í dag og á eftir verða umræður yfir kaffibolla ásamt tónlist. Afmælissunnudagaskóli verður á morgun og hápunkturinn er hátíðarmessa klukkan 14 þar sem bisk- upinn prédikar og Krýningarmessa eftir Mozart er vafin inn í messuformið. Bíókvöld æskunnar er svo annað kvöld.“ - gun Mozart vafi ð inn í messuformið GLERÁRKIRKJA Glerárprestakall var stofnað 1981 og fyrsta skóflustunga að kirkjunni var tekin 1984. MYND/BJÖRGVIN STEINDÓRSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.