Fréttablaðið - 08.12.2012, Blaðsíða 100
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| MENNING | 76
Kammerkór Mosfellsbæjar held-
ur aðventutónleika í Listasafni
Íslands á morgun, 9. desember,
klukkan 20. Á efnisskránni eru
klassísk jólalög í bland við þekkt-
ar kórperlur frá ýmsum tíma-
bilum og löndum. Einsöngvarar
verða Ástrún Friðbjörnsdóttir,
Gyrðir Viktorsson, Heiðrún Krist-
ín Guðvarðardóttir, Magdalena
Kullas og Viktor Guðlaugsson.
Stjórnandi er Símon H. Ívarsson
og meðleikarar Liwen Huang á
píanó og Ívar Símonarson á gítar.
Þá leikur Helga R. Óskarsdóttir
einleik á fiðlu.
Klassík og kórperlur
KAMMERKÓR MOSFELLSBÆJAR Píanó, gítar og fiðla koma líka við sögu á tón-
leikunum.
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
Íslandsbanki kynnir fimm vikna námskeið
fyrir konur í gerð viðskiptaáætlana
Kennsla hefst 29. janúar 2013.
Skráning og nánari upplýsingar á islandsbanki.is
Íslandsbanki og Félag kvenna í atvinnulífinu standa
fyrir námskeiði í gerð viðskiptaáætlana í samstarfi
við Opna háskólann í HR.
Í lok námskeiðs geta þátttakendur skilað
viðskiptaáætlun til dómnefndar. Fimm eru valdar
áfram í nánari ráðgjöf. Sú viðskiptaáætlun sem
þykir best fær 2.000.000 kr. styrk frá Íslandsbanka.
Ertu með
viðskiptahugmynd?
Afsláttur í boði
Íslandsbanka
50%
Elísabet Jónsdóttir og Olga Hrafnsdóttir í
Volka, sigurvegarar námskeiðsins 2012.
BÆKUR ★★ ★★★
Fjarvera
Bragi Ólafsson
MÁL OG MENNING
Nýjasta skáldsaga Braga Ólafs-
sonar, Fjarvera, er nokkuð ein-
kennileg í laginu og hún teygir
anga sína víða. Samt er ekki laust
við að lesandi geti fengið ákveðna
innilokunar kennd við lesturinn.
Sagan er, eins og flest verk Braga,
uppfull af tilvísunum í aðra bók-
menntatexta, í tónlist og myndlist.
Innilokunarkenndin getur stafað
að því að mjög stór hluti þeirra til-
vísana í önnur verk sem birtast í
textanum eru í fyrri verk Braga
sjálfs. Aðalsöguhetja Fjarveru, mál-
fræðingurinn og prófarkalesarinn
Ármann, er þannig lesendum Braga
að góðu kunnur úr Gæludýrunum,
skáldsögu Braga frá árinu 2001.
Sögumaður þeirrar sögu, Emil S.
Halldórsson, sá sem faldi sig svo
eftirminnilega undir rúmi nær alla
söguna, kemur hér einnig við sögu
auk persóna úr Sendi herranum,
Handritinu að kvikmynd Arnar
Featherby og Jóns Magnússon-
ar um uppnámið á veitingahúsinu
eftir Jenny Alexson og fleiri skáld-
verkum Braga. En þótt Fjarvera sé
í einhverjum skilningi framhald á
Gæludýrunum verður lesandi litlu
nær um örlög Emils eftir að dvöl
hans undir rúminu lýkur og það
sama á við um persónur úr öðrum
verkum. Hér er safnað saman ótal
lausum endum úr fyrri verkum, en
þeir eru ekki hnýttir eða gengið frá
þeim heldur verða til enn fleiri laus-
ir endar.
Skáldsögur Braga eru smám
saman að verða að sjálfstæðum
skáldskaparheimi þar sem sömu
persónurnar ganga inn og út úr ein-
stökum sögum, rekast hver á aðra
og grípa inn í líf hver annarrar.
Fjarvera er svolítið eins og ættar-
mót þar sem safnast saman pers-
ónur annarra bóka Braga, án þess
að þær eigi endilega allar skýrt eða
ákveðið erindi. Einstakir kaflar sög-
unnar bera mörg bestu höfundar-
einkenni Braga. Hér eru neyðar-
legar uppákomur þar sem er teygt
á frásögninni og tímanum þar til
fer að reyna á bæði þolrif og hlátur-
taugar lesanda, og samtöl sem vega
salt á milli hins fáránlega og hvers-
dagslega. Á hinn bóginn eru hér líka
kaflar sem hreyfa furðu lítið við les-
anda.
Sjálfssögur eða meta skáldskapur
kallast sögur sem fjalla um eigin
bókmenntaleika. Fjarvera er slík
saga, hún fjallar um skáldskap og
tilurð hans og á í margvíslegri sam-
ræðu við aðra texta. Sjálfssögur ein-
kennast iðulega af leik og húmor,
hvorttveggja er að finna í Fjar-
veru, en þrátt fyrir glimrandi góða
kafla er sagan sem heild ákveðin
vonbrigði. Eins og í mörgum fyrri
verkum Braga er lesandinn teymd-
ur í ýmsar áttir sem flestar reynast
vera blindgötur, en ferðalagið um
það völundarhús er ekki jafn kitl-
andi og spennandi og oft áður.
Jón Yngvi Jóhannsson
NIÐURSTAÐA: Saga um sögur þar sem
persónur og viðfangsefni úr fyrri sögum
höfundar birtast á fjöl breyttan hátt.
Saga um sögur um sögur
Dancing Day eftir John Rutter
og Ceremony of Carols eftir
Benjamin Britten eru á söng-
skrá Graduale Nobili í Langholts-
kirkju annað kvöld. klukkan 20.
Diskur kórsins með verkunum
var meðal jóladiska sem BBC
Magazine valdi sem þá áhuga-
verðustu fyrir þessi jól. Blaðið
gefur kórnum fjórar stjörnur
fyrir flutning og fimm fyrir upp-
töku.
Auk þessara verka verða flutt-
ar nokkrar íslenskar jólaperlur,
meðal annarra Hátíð fer að hönd-
um ein, Nóttin var sú ágæt ein
og Jólasöngur Huga Guðmunds-
sonar. Fjölmargir einsöngvarar
úr röðum kórfélaga koma fram.
Eftir tónleikana er boðið upp á
heimabakaðar eðalsmákökur að
hætti Nobili.
Stjórnandi er Jón Stefánsson
og Elísabet Waage leikur á hörpu.
Fengu næstum fullt
hús í BBC Magazine
Graduale Nobili halda tónleika annað kvöld.