Fréttablaðið - 08.12.2012, Page 115

Fréttablaðið - 08.12.2012, Page 115
LAUGARDAGUR 8. desember 2012 | MENNING | 91 Halla Bára Gestsdóttir Gunnar Sverrisson homeanddelicious.com 1. Svínasíða 1 ½ kg svínasíða 3 msk. ólífuolía 1 ½ msk. fennelfræ 4 greinar ferskt rósmarín 2 hvítlaukar 2 rauðlaukar 2 laukar Salt og svartur pipar 500 ml kjúklingasoð Hitið ofn í 220 gráður. Skerið rákir þvert í puruna á svínasíðunni. Hitið um 1 lítra af vatni að suðu. Hellið heitu vatninu yfir puruna og þerrið kjötið að því loknu. Þetta er gert til að opna puruna og gera hana mögulega stökkari við eldun. Saxið rósmarínið smátt. Skerið hvítlaukinn í tvennt, þvert, án þess að afhýða hann. Afhýðið laukinn og skerið hann í tvennt, einnig þvert. Smyrjið kjötið og puruna með ólífuolíu, nuddið fennelfræjum og rósmaríni vel í kjötið og inn í rákirnar á pur- unni. Gerið þetta sömuleiðis með saltið og piparinn. Leggið laukinn í botninn á djúpri ofnskúffu eða stóru fati sem þolir hita. Setjið laukinn í tvær skipulegar raðir. Leggið kjötið ofan á laukinn þannig að það hvíli ekki í skúffunni. Þetta hindrar það að kjötið brenni við botninn og gerir soðið enn bragðbetra. Leggið hálfu hvítlaukana í kring. Stingið í 220 gráðu heitan ofninn í 20 mínútur. Að þeim tíma liðnum hellið þið helmingnum af kjúklingasoðinu í ofnskúffuna og setjið hana aftur í ofninn í 20 mínútur. Þá er hitinn á ofninum lækkaður í 130 gráður, afgangurinn af soðinu settur í ofnskúffuna og allt látið malla í ofni í 3 klukkustundir. Fylgist vel með matnum í ofninum, takið skúffuna út og ausið soði yfir á 20-30 mínútna fresti. Takið kjötið úr ofninum og látið það standa í 15 mínútur. Hellið soðinu í pott og ef þarf, skafið kryddskán úr botninum á ofnskúffunni í pottinn. Komið upp suðu og látið sjóða niður í nokkrar mínútur. Geymið soðið þar til maturinn er borinn fram. Skerið kjötið í sneiðar eða rífið það niður í smærri bita. Berið það fram með baununum. 2. Rjómalagaðar baunir 1 msk. ólífuolía 50 g smjör 3 skalottulaukar, smátt saxaðir 4 msk. hvítvínsedik 150 ml kjúklingasoð 2 msk. rósmarín, smátt saxað 2 dl rjómi 3 hvítlauksrif 2 msk. steinselja, smátt söxuð 3x400 g dósir af cannelini-baunum Salt og svartur pipar Látið renna vel af cannelini-baun- unum í sigti. Hellið ólífuolíunni á pönnu og bræðið smjörið með. Mýkið laukinn í 3 mínútur. Setjið hvítlaukinn saman við og mýkið áfram í tvær mínútur en gætið vel að því að hann brúnist ekki. Skvettið hvítvínsedikinu á pönnuna. Þá fer rósmarínið saman við og hrærið allt vel saman. Hellið rjómanum út í ásamt kjúklingasoðinu. Komið upp suðu og látið blönduna sjóða niður í nokkrar mínútur eða þar til hún hefur minnkað um þriðjung. Hrærið baunirnar varlega saman við og hitið þær vel í gegn. Hrærið steinselju saman við og smakkið til með salti og pipar. 3. Berið fram Setjið baunir á disk fyrir hvern og einn, gott að nota djúpa diska. Kjötið fer ofan á baunirnar og vel af soðsósunni yfir allt saman. Njótið vel og lengi. 4. Afgangar Það sem er einstakt við þennan rétt er að hann er ekki síðri daginn eftir. Ef afgangar eru af kjöti og soði er um að gera að nota þá í pastaréttinn sem hér fylgir. Sjóðið tagliatelle skv. leiðbeiningum eða annað pasta. Rífið kjötið niður í pott og hellið soði út í þannig að rétt fljóti yfir. Komið upp suðu og lækkið hitann. Sjóðið örlítið niður þar til blandan tekur að þykkna. Hrærið þá saman við 3-5 msk. af rifnum parmesan osti, allt eftir smekk. Smakkið til með salti og svörtum pipar. Setjið pastað saman við sósuna og blandið vel. Berið fram og stráið parmesan osti yfir. Hægelduð svínasíða Hægeldaður matur er heillandi á marga vegu. Hann bragðast á einstakan hátt og eldamennskan er afslappandi og gefandi. Hér er hægelduð svínasíða með rjómalöguðum cannelini-baunum, frábær jólamatur og einstakur í afganga. 1 2 3 4 ALLT AÐ KG45 | www.flytjandi.is | sími 525 7700 | Viðtakandi fær tilkynningu þegar sækja má sendingu. Hámarksstærð pakka er 0,5 x 0,5 x 0,5 m og hámarksþyngd 45 kg. Glimrandi gott verð fyrir allt að 45 kg þungan pakka – aðeins 750 krónur hvert á land sem er. Sendu jólapakkann þinn fljótt og örugglega með Eimskip Flytjanda. Upplýsingar um næsta afgreiðslustað á www.flytjandi.is OG EIMSKIP FLYTJANDI KEMUR JÓLAPÖKKUNUM TIL SKILA 750KR. 80 ÁFANGASTAÐIR UM ALLT LAND
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.