Fréttablaðið - 08.12.2012, Qupperneq 126
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| SPORT |
ÓmisSandi leikur á SunNudag
TopPslagurinN
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS
MAN. CITY
MAN. UTD.
SUNNUDAG KL. 13.15
ÞAÐ ER FULLT AF FRÍDÖGUM ÞESSI JÓL
FJÓRAR UMFERÐIR YFIR HÁTÍÐIRNAR OG SANNKÖLLUÐ FÓTBOLTAVEISLA Á STÖÐ 2 SPORT 2
HANDBOLTI Anna Úrsúla Guð-
mundsdóttir, línumaður íslenska
liðsins, var svekkt eftir átta marka
tapið gegn Rússum.
„Þetta fór ekki samkvæmt áætl-
un. Svo fór sem fór. Við þurfum að
bíta í það súra epli,“ sagði Anna.
Rússarnir skoruðu fjögur fyrstu
mörk leiksins sem var ekki í takt
við upplegg Önnu og félaga fyrir
leikinn.
„Mér fannst þær loksins sýna
sitt rétta andlit. Um leið vorum
við kannski ekki að ná nógu vel
saman til að ná toppleik eins og
hefði þurft gegn þessu liði.“
Rússneska liðið tapaði fyrsta
leik sínum gegn Svartfellingum
og gerði jafntefli gegn Rúmen-
um. Anna velti því fyrir sér hvort
Rússarnir hefðu hreinlega verið að
spara sig í leikjunum tveimur.
„Þær hafa auðvitað þessa sigur-
vegarareynslu til margra ára og
kannski hjálpaði það með þeim í
dag. Þær voru allavega miklu betri
aðilinn í dag,“ sagði Anna óánægð
með sóknarleik íslenska liðsins
sem gekk illa þriðja leikinn í röð.
„Ég er ekki frá því að þessi lið
hafi skoðað okkur í þaula og náð
að stoppa sóknina okkar mjög vel.“
Íslenska liðið tapaði öllum leikj-
um sínum á mótinu líkt og var til-
fellið á Evrópumótinu í Danmörku
og Noregi fyrir tveimur árum.
„Þetta er enn þá leiðinlegra en
síðast því núna ætluðum við að ná
árangri. Þrjú töp er niðurstaðan
sem er engan veginn nógu gott,“
sagði Anna en ítrekaði að liðið
hefði þó lagt sig fram.
„Maður ætlar aldrei að hætta
og við hentum okkur á alla bolta.
Sama hvort það gekk eða ekki þá
reyndum við. Það var hart barist
fram á lokasekúndu. Það skiptir
máli að ganga af velli ánægður
með sitt framlag,“ sagði Anna.
Karen Knútsdóttir, leik-
stjórnandi Íslands, sagði liðið hafa
verið lélegt á öllum sviðum gegn
Rússum.
„Við þurfum að vera fljótari upp
völlinn, fljótari að koma boltanum
í leik og keyra upp hraðann. Við
skorum ekki yfir 25 mörk í upp-
stilltum sóknum í hverjum leik.
Það er einfaldlega of erfitt. Þær
eru 190 cm og standa á sex metr-
um og bíða eftir manni,“ sagði
Karen. - óój
Enn þá leiðinlegra en
á Evrópumótinu 2010
Í STRANGRI GÆSLU Anna Úrsúla fékk að glíma við nautsterka og hávaxna varnar-
menn Rússa. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Íslenska kvennalands-
liðið er á heimleið frá Serbíu eftir
þriðja tapið í röð í Vrsac í gær.
Rússar voru betri á öllum sviðum
frá upphafi leiks, unnu sannfær-
andi 30-21 sigur og fara því í milli-
riðilinn í Novi Sad ásamt Svart-
fellingum og Rúmenum. Slæm
byrjun í leiknum fór nánast með
alla möguleika stelpnanna á því að
ná í söguleg úrslit og komast upp
úr riðlinum. Rússland skoraði fjög-
ur fyrstu mörkin, var átta mörkum
yfir í hálfleik og gaf síðan ekkert
eftir í þeim síðari.
„Við byrjuðum illa og þá má
eigin lega segja það að byrjunin
hafi orðið okkur að falli. Þetta var
eins slæmt og þetta gat orðið í upp-
hafi leiks og það er erfitt að lenda
strax nokkrum mörkum undir á
móti Rússum. Varnarleikurinn
lagaðist í seinni hálfleik og ég var
pínu ósáttur með að við náðum
ekki að minnka þetta enn meira
niður,“ sagði Ágúst Jóhannsson,
þjálfari íslenska liðsins.
Íslenska liðið hafði ávallt tapað
stórt í leikjum sínum við Rússana
og rússneska birnan var ekkert
búin að létta takið þegar koma að
leiknum í Vrsac. Rússneska liðið
hafði verið í vandræðum í mótinu
en sýndi styrk sinn.
„Við erum að elta þær allan leik-
inn sem er erfitt. Mér fannst við
vera vel stemmdar fyrir leikinn en
ég skil ekki alveg hvað gerðist. Á
móti svona góðu liði þá má þetta
ekki gerast því við verðum að vera
tilbúnar frá byrjun,“ sagði Rut
Jónsdóttir, besti maður íslenska
liðsins ásamt Jenný Ásmunds-
dóttur í markinu.
Íslenska stelpurnar töpuðu
öllum þremur leikjum sínum á
mótinu , alveg eins og á EM 2010.
Þrátt fyrir góðan varnarleik og
markvörslu Jennýjar Ásmunds-
dóttur komast íslensku stelpurnar
aldrei langt á svo sterku móti án
betri sóknarleiks.
„Við verðum að gera okkur grein
fyrir því að þetta voru mjög sterk
lið sem við mættum. Við erum
líka margar mjög ungar og eigum
mikið eftir. Við þurfum helst að
bæta líkamlegan styrk hjá okkur.
Við getum ekki orðið hærri en við
getum bætt styrk,“ sagði Rut.
Stelpurnar höfðu ekki heppnina
með sér þegar dregið var í riðla og
þegar á reyndi þá voru mótherj-
arnir of stórir og of sterkir.
„Markmiðin voru að fara áfram
og það hefði verið metnaðarleysi
og fáránlegt af okkur að fara inn
í þessa riðlakeppni og hafa ekki
markmiðið að komast áfram. Ég er
mest svekktur yfir því að við skul-
um ekki hafa náð jafnari leikjum.
Ég vissi það alltaf að þetta yrði
mjög erfitt og þessi lið eru bara
gríðarlega sterk,“ sagði Ágúst.
„Það voru of margar sem náðu
sér ekki á strik í mótinu og við
náðum eiginlega ekki alveg nógu
góðum takti frá fyrsta degi þó svo
að leikur tvö á móti Rúmenum hafi
verið mjög góður. Þetta er fúlt en
við þurfum að taka þetta í reynslu-
boltann og horfa fram á veginn.“
„Það eru fullt af verkefnum
framundan og liðið er á flottum
aldri. Leikmenn eins og Þorgerður
og Birna Berg eru líka fyrir utan
liðið sem eru miklir framtíðar-
leikmenn og handan við horn-
ið. Það er bara stefnan að halda
áfram. Við fáum tvo leiki við Svía
í mars og svo er það bara umspils-
leikir í maí og júní. Við höldum
tvíefld áfram,“ sagði Ágúst.
Rússneska birnan enn með fast tak
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta er úr leik á Evrópumótinu í Serbíu eft ir níu marka skell á móti Rússlandi í lokaleik sínum í gær.
Íslensku stelpurnar þurft u sigur til að komast í milliriðilinn en eft ir slæma byrjun dóu þær vonir svo gott sem í fyrri hálfl eiknum.
LOK LOK OG LÆS Rakel Dögg Bragadóttur og félagar áttu í mestu vandræðum með
varnarmúr Rússa sem reyndist ekki árennilegur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Óskar Ó. Jónsson
ooj@frettabladid.is
Stefán Karlsson
stefank@365.is
Frá EM í Serbíu
EM KVENNA
ÍSLAND 21
RÚSSLAND 30
Ísland - Mörk (skot): Rut Jónsdóttir 4 (7), Rakel
Dögg Bragadóttir 3/3 (6/3), Karen Knútsdóttir 3
(7), Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 3/1 (10/1), Arna
Sif Pálsdóttir 2 (2), Þórey Rósa Stefánsdóttir 2 (5),
Dagný Skúladóttir 1 (1), Anna Úrsúla Guðmunds-
dóttir 1 (1), Hanna Guðrún Stefánsdóttir 1 (2),
Ásta Birna Gunnarsdóttir 1 (3), Jóna Margrét
Ragnarsdóttir (1), Stella Sigurðardóttir (1),
Ramune Pekarskyte (5),
Varin skot: Guðný Jenný Ásmundsdóttir 13/3
(39/7, 33%), Dröfn Haraldsdóttir 2/1 (5/4, 40%),
(1, 0%),
SPORT