Fréttablaðið - 08.12.2012, Page 128
8. desember 2012 LAUGARDAGUR| SPORT | 104
Ólafur Stefánsson hefur samið við handboltaliðið
Lakhwiya Sports Club í Doha í Katar. Ólafur, sem er
39 ára, mun fara til Katar í janúar og leika með lið-
inu út leiktíðina.
„Við höfum það á tilfinningunni að eigendur
félagsins ætli sér að setja ný viðmið fyrir hand-
boltann í Katar,“ segir umboðsmaður Ólafs, Wolfgang
Gütschow í samtali við Handball World. Lakhwiya er
nýliði í deildinni en liðið var stofnað árið 2009.
Óli fer til Katar
Eigendur setja ný viðmið fyrir handboltann í Katar.
FÓTBOLTI Sálfræðistríðið fyrir
stórleikinn er þegar hafið. Sir Alex
Ferguson, stjóri Manchester Uni-
ted, lagði grunninn í gær er hann
setti spurningamerki við þann
fjölda vítaspyrna sem City fær á
heimavelli.
Frá árinu 2010 hefur City fengið
20 víti á heimavelli en United 13.
United fékk aftur á móti 9 víti í
fyrra eða einu meira en City. City
er búið að fá fjögur víti á heima-
velli í vetur en United tvö.
„Ef við fengjum sama fjölda af
vítum og City þá yrði líklega gerð
þingrannsókn á málinu. Menn
myndu mótmæla harkalega,“ sagði
Ferguson, en fáir stjórar hafa haft
betur í sálfræðistríði við hann.
Það er ansi margt sem bendir
til þess að Manchester-liðin muni
berjast um meistaratitilinn allt til
enda tímabilsins.
„Það er ansi ólíklegt að annað
þessara liða hrynji og leyfi öðru
liði að koma í slaginn. Ég held að
þetta verði barátta þessara liða í
vetur,“ sagði Ferguson og bætti
við.
„Við erum komnir með fínt for-
skot á Chelsea, Arsenal og Totten-
ham. Við erum hættulegasti and-
stæðingur City og City er okkar
hættulegasti andstæðingur.
Nágranna slagir eru þekktir fyrir
að koma á óvart. City hefur ekki
tapað fyrir okkur í tvö ár. Þetta
verður erfitt en við getum unnið
hvaða lið sem er.“
Roberto Mancini, stjóri Man.
City, hélt því fram allt til enda
síðasta tímabils að United myndi
vinna titilinn. Hann heldur sig við
svipaða sálfræði í ár.
„United hefur 20 ára reynslu
af því að berjast á toppnum. Þess
vegna eru þeir aðeins líklegri.
Liðið getur leyft sér að tapa um
helgina því þeir eru með þriggja
stiga forskot á okkur. Við megum
aftur á móti ekki við því að tapa.
United er því betra en við um þess-
ar mundir,“ sagði Ítalinn sem vill
ólmur halda pressunni í hinum
enda Manchester-borgar.
Sigur hjá City myndi létta press-
unni á ítalska stjóranum sem mis-
tókst í vikunni að koma liðinu upp
úr riðlakeppni Meistaradeilar
Evrópu annað árið í röð.
henry@frettabladid.is
Manchester mun nötra
Stórslagur ársins í enska boltanum fer fram í Manchester á morgun. Þá takast
á tvö bestu lið deildarinnar, Manchester City og Manchester United. Liðin eru
þegar farin að stinga andstæðinga sína í ensku úrvalsdeildinni af.
LYKILMENN Þeir Wayne Rooney og Sergio Aguero verða væntanlega í lykil-
hlutverkum á morgun. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikir helgarinnar
Laugardagur:
Arsenal– WBA
Sport 3
Aston Villa– Stoke City
Sport 4
Southampton– Reading
Sport 6
Sunderland– Chelsea
Sport 2 og HD
Swansea– Norwich
Sport 5
Wigan– QPR
Sunnudagur:
Man. City– Man. Utd
Sport 2 og HD
Everton– Tottenham
Sport 3
West Ham– Liverpool
Sport 2 og HD
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
5
6
7
2
VÖTN & VEIÐI
Stangveiði á Íslandi 2012
Veiðisögur • Veiðisvæði •
Veiðifréttir • Veiðimenn
á
Í
l
d
i 2012
Fæst á flestum bóksölustöðum
JÓLAGJÖF VEIÐIMANNSINS