Fjarðarpósturinn - 19.06.1986, Qupperneq 8
8
FJARÐARPÓSTURINN
„Þetta er búinn að vera ánægjulegur
og lærdómsríkur tími."
Rætt við Einar inga Halldórsson, sem lætur nú af störfum
eftir 7 ára starf sem bæjarstjóri
Einar I. Halldórsson og fjölskylda talið frá vinstri: Guðný Katrín,
Einar íngi, Ásta Jónsdóttir og Þorvaldur.
Einar l. Halldórsson er 13.
bæjarstjórinn sem Hafn-
firðingar hafa haft undan-
farin 78 ár. Einar varð
bæjarstjóri þegar Kristinn
Ó. Guðmundsson lét af
störfum árið 1979.
við hefjum spjallið með
því að spyrja hvernig
fyrstu dagarnir í hinu nýja
starfi hefðu gengið.
betta voru auðvitað talsverð
viðbrigði. Þegar ég var ráðinn
var ég 31 árs og hafði starfað
sem lögfræðingur hjá trygginga-
félagi. Þó að menntun og reynsla
hafi auðvitað komið sér vel var
hér um að ræða mikla breytingu
frá fyrra starfi. Kristinn O.
Guðmundsson var með mér
nokkra daga en síðan fékk ég
mikilverða leiðsögn góðra sam-
starfsmanna, sem hér voru og
bæjarfulltrúarnir sýndu mér
skilning. Þetta gekk því slysa-
laust, rekstur bæjarins hefur
verið í ákveðnum skorðum og ég
reyndi í upphafi að átta mig á
umfangi starfsins.
Dagur í lífi
bæjarstjóra
bað er nú erfitt að nefna
dæmigerðan dag. Starfið er
mjög fjölbreytt því við rekstur
eins bæjarfélags er komið inn á
flest svið þjóðlífsins. Ég er yfir-
leitt mættur um eða uppúr 8 á
morgnana. Þá, og seinni hluta
dags, er oft besta næðið til
skrifta og afgreiðslu ýmissa
erinda. Skrifstofan er opnuð kl.
9.30 og þá fer oft talsverður tími
í viðtöl við ýmsa aðila, sem
erindi eiga við bæjarfélagið. Þó
viðtalstímar séu auglýstir tvisvar
í viku hef ég ekki einskorðað mig
við þá tíma. Tími fer í samtöl við
starfsfólk og forstöðumenn
stofnana um stöðu mála, rekstur
bæjarfélagsins og ýmsar fram-
kvæmdir. Þá er það eitt af
ánægjulegustu aukastörfum
bæjarstjóra að vera hafnarstjóri.
Mikið hefur verið að gerast við
höfnina og tekur hafnarstjóra-
starfið alltaf einhvern tíma.
Mikið er um fundahöld og tími
fer í að reka eftir afgreiðslu mála
t.d. hjá ríkisvaldinu. Bæjarstjóri
situr ávallt fundi nokkurra fasta-
nefnda s.s. hafnarstjórnar, raf-
veitunefndar og bæjarráðs.
Bæjarráð heldur vikulega fundi.
Bæjarráðið er einskonar fram-
kvæmdaráð bæjarfélagsins. I
bæjarráði ferfram mikil vinna og
þar koma til afgreiðslu margir
tugir mála á hverjum fundi. Mörg
mál eru endanlega afgreidd í
bæjarráði en öll stærri mál fara
til lokaafgreiðslu í bæjarstjórn
og þá gerir bæjarráð oftast til-
lögu um afgreiðslu þeirra. Að
sjálfsögðu er hægt að taka mál
upp í bæjarstjórn, þó bæjarráð
hafi afgreitt málið, en slíkt heyrir
til undantekninga. í bæjarráði
hefur oftast verið góður starfs-
andi og fulltrúar hafa sameinast
um að afgreiðsla mála og
ákvarðanatökur dragist ekki að
nauðsynjalausu, sem er mjög
mikilsvert fyrir íbúana og rekstur
bæjarfélagsins. í bæjarráði hafa
setið bæjarstjóri og 3 bæjarfull-
trúar auk tveggja áheyrnarfull-
trúa. í hinum nýju sveitar-
stjórnarlögum, sem samþykkt
voru á nýliðnu þingi, er gert ráð
fyrir að 5 bæjarfulltrúar sitji í
bæjarráði. Hætt er við að þegar
fleiri koma að ákvarðanatöku
taki hún lengri tíma.
Það kemur í hlut bæjarstjóra
að undirbúa fundi bæjarráðs.
Það fer auðvitað mikill tími í slíkt
því málin eru mörg sem berast
og oft þarf að útvega viðbótar-
upplýsingar, sem hafa þarf við
höndina við ákvarðanatöku. Þá
undirbýr bæjarstjóri bæjar-
stjórnarfundi, sem eru hálfs-
mánaðarlega. Fylgja þarf eftir
samþykktum bæjarstjórnar og
bæjarráðs og fylgjast með þeim
margvíslegu framkvæmdum
sem bæjarfélagið hefur með
höndum. Yfirleitt lýkur deginum
ekki fyrr en um 7 leytið. Svo vill
nú brenna við að kvöld og kvöld
fari í eitt og annað sem tengist
starfinu.
Stundum koma góðir gestir til
bæjarins til fundahalda í boði
félagssamtaka eða bæjarstjórn-
ar. Það þykir tilheyra að bæjar-
stjóri sinni slíku. Við höfum
fengið hingað góða gesti og er
skemmst að minnast græn-
lensku vinabæjarfulltrúanna á
s.l. ári.
Þó ég hafi tínt hér eitt og
annað til sem fellur í hlut bæjar-
stjóra að gera þá er erfitt að segja
að einhver dagur sé dæmigerður
því flestir dagar bera eitthvað
nýtt og óvænt í skauti sér.“
Hvert er æðsta
,,boðorð“
bæjarstjóra?
*
Eg vil svara þessu
þannig að bæjarstjóri verður að
hafa í huga að hann er starfs-
maður bæjarbúa og ber að gæta
hagsmuna þeirra. Hann verður
að sjá til þess að bæjarbúum
verði ekki mismunað við af-
greiðslu mála. Þetta er ein af
meginreglum opinberrar stjórn-
sýslu.
Einnig ber bæjarstjóra að
gæta þess að farið sé eftir þeim
ákvörðunum sem bæjarstjórn
hefur tekið. Bæjarstjórastarfinu
má líkja við framkvæmdastjórn
fyrirtækis, en þó er sá munur á,
að fjölbreytnin er öll mun meiri.
Hafa verður í huga að ekki gilda
í starfinu hin köldu lögmál við-
skiptalífsins s.s. við afgreiðslu
ýmissa félagslegra og persónu-
legra mála. Nauðsynlegt er að
fyrirhyggja sé höfð í áætlana-
gerð og ákvarðanatöku og gott
eftirlit sé haft með framkvæmd-
um og rekstri bæjarins.
Er hægt að
bera saman
sem bæjar-
stjóri?
Já, það er hægt að gera.
Fyrra kjörtímabilið einkenndist
einkum af því að þá lauk endur-
byggingu gatnakerfisins að
mestu. Nálega allar íbúðagötur
voru malbikaðar. Lagnir endur-
nýjaðar og gangstéttir steyptar.
Þá var mikið átak gert í skóla-
byggingum. Samþykkt var aðal-
skipulag fyrir bæinn, sem gildir
til aldamóta. Ég man að eitt mitt
fyrsta verk sem bæjarstjóri hér
var að leggja síðustu hönd á
Hvammaskipulagið. Einnig var
þá gengið frá miðbæjarskipulagi
og Setbergshverfinu.
Það kjörtímabil sem nú er ný-
lokið einkenndist m.a. af fjár-
hagsvanda Bæjarútgerðarinnar
og að koma málefnum útgerðar-
innar í það horf sem nú er. Þá var
átak gert í fegrunar- og um-
hverfismálum. Þar má ég til með
að nefna þátt bæjarbúa sjálfra.
Með sameiginlegu átaki bæjar-
ins og bæjarbúa er Hafnarfjörður
nú einn fallegasti bær landsins.
Þar eiga þeir fjölmörgu bæjar-
búar sem óþreytandi hafa verið
að sinna ræktun lóða sinna ekki
minnstan þátt.
þau tvö kjör-
tímabil sem þú
hefur starfað