Fjarðarpósturinn - 19.06.1986, Page 9
FJAROARPÓSTURINN
9
I dag er ekki hægt að segja
annað en Hafnarfjörður standi
mjög vel hvað varðar fram-
kvæmdir og fjárhagsstöðu.
Segja má að búið sé að uppfylla
frumkröfur sem bæjarbúar gera
til síns bæjarfélags, þ.e. gatna-
gerð, lagnir ýmsar, byggingu
skóla, íþróttamannvirkja, og
dagvistarstofnana. Það má nefna
að á þessum tveimur kjörtíma-
bilium hafa m.a. verið teknar í
notkun 23 nýjar skólastofur, 2
salir, íþróttahús, 4 dagvistar-
stofnanir, og fleira þessu skylt.
Nú eru því nokkur tímamót í
starfsemi bæjarins. Bæjarfélag-
ið getur nú farið að leggja meira
fé í ýmsa málaflokka, sem óhjá-
kvæmilega hafa þurft að sitja á
hakanum vegna lausna á frum-
þörfum bæjarfélagsins. Þessa
var þegar farið að gæta á síðasta
kjörtímabili og má þar tilnefna
fegrun bæjarins, uppbyggingu
Hafnarborgar og Sjóminjasafns-
ins.
Sá bæjarstjórnarmeirihluti
sem nú tekur við sest því í gott
bú. Hin góða staða auðveldar
bæjarstjórn að snúa sér að
ýmsum framkvæmdum og
hugðarefnum, sem liðið hafa
fyrir framkvæmdir við þessar
„frumþarfir" sem áhersla hefur
verið lögð á undanfarin ár eða þá
að lækka enn frekar álögur á
bæjarbúa. Álögur hér hafa verið
með því lægsta, sem þekkist í
svipuðum bæjarfélögum.
Og hvað gerir
bæjarstjóri
síðan að
loknum
vinnudegi?
bað verður að segjast
eins og er að tómstundir eru ekki
miklar í þessu starfi. Ég hef þó
reynt að gera það að reglu að
sunnudagar heyri fjölskyldunni
til. Ég hef gaman að útivist og
ferðalögum og síðan lestri þegar
tóm gefst til. Málefnin vilja fylgja
manni töluvert út yfir hinn venju-
lega vinnudag og frítíminn líður
fyrir það. Ég hlakka því til að
taka mér gott frí með fjölskyld-
unni í sumar og sinna ýmsu sem
hefur verið látið reka á reiðanum
undanfarin ár.
Atvinnuupp-
bygging -
iðnaðarhverfi
*
I Hafnarfirði hefur orðið
mikil atvinnuuppbygging. Svo
að nefndar séu tölur þá fjölgaði
störfum í bænum á árunum 1980
til 1984 um 580 eða 11%.
Iðnaðarhverfið byggðist upp
mjög hratt og þegar er búið að
skipuleggja annað slíkt svæði.
(Jmferð um höfnina hefur aukist
mikið og þar er mikil uppbygg-
ing. Nú er svo komið að næstum
er jafnvægi á milli vinnuafls og
starfa sem bjóðast í bænum.
Höfuðborgarsvæðið er orðið
einn vinnumarkaður og hlutur
Hafnarfjarðar hefur aukist veru-
lega á undanförnum árum.
Breytir ekki
miklu
ó kosningaúrslit hafa
verið óvænt hér í Hafnarfirði eins
og víða annars staðar, þá munu
þau í sjálfu sér ekki breyta miklu
um mín áform. Ég var ákveðinn
að breyta til og fara í nýtt starf
með haustinu. Kosningaúrslitin
valda því að ég hætti nokkrum
vikum fyrr en ella hefði verið. Ég
fæ því lengra sumarfrí en ég
hafði gert ráð fyrir.
Og framtíðin?
Enn hef ég ekki tekið
ákvörðun um framtíðarstarf.
Fjölskyldan fluttist hingað í
Fjörðinn skömmu eftir að ég tók
við starfinu. Á þessum sjö árum
höfum við kynnst mörgu góðu
fólki og kunnum afskaplega vel
við okkur hér. Þrátt fyrir þessa
breytingu ætlum við að búa
áfram í Hafnarfirði. Hér er gott að
búa og bærinn á mikla framtíð
fyrir sér ef vel er á málum haldið.
Fjarðarpósturinn árnar Einari
Inga Halldórssyni og fjölskyldu
hans alls hins besta og þakkar
ánægjulegt samstarf á liðnum
árum.
TOPP-bókin er 18 mánaða bundinn sparireikn-
ingur í bókarformi.
Hver innborgun er bundin í 18 mán-
uði og verður þá laus til útborgunar í einn
mánuð, bindst hún þá á ný og er laus til
útborgunar í einn mánuð á sex mánaða
' a fresti.
TOPP-bókin er með föstum vöxt-
um og leggjast þeir við höfuðstól tvisv-
éjK ar á ári þ.e. 30. júní og 31. desember.
Vextir eru ávallt lausir við vaxta-
’ viðlagningu. Reikningseigenda ertryggt
að TOPP-bókin gefi aldrei lægri ávöxtun
á ári en sex mánaða bundinn verð-
tryggður reikningur. Hún tryggir TOPP-
ávöxtun og fæst aðeins í sparisjóðnum.
Fáðu góðan og öruggan vöxt í peninga
þína á nýju TOPP-bókinni.
5PARI5JDÐUR
HAFNARFJARÐAR
STRANDGÖTU 8—10
54000