Fjarðarpósturinn - 19.06.1986, Qupperneq 12
12
FJARÐARPÓSTURINN
■ÍÞRÓTTIR—ÍÞRÓTTIR—ÍÞRÓTTIR-
ALLIR í TRIMM UM HELGINA!
Núna um helgina fer fram víða um land meiriháttar TRIMM-hátíð, sem
ber yfirskriftina: „HEILBRIGT LÍF — HAGUR ALLRA“, og er hugsuð
sem áróður fyrir þátttöku alls almennings í íþróttum og útivist. Á hverjum
stað undirbýr viðkomandi íþróttaforysta Trimm-dagana, sem eru 20., 21.
og 22. júní. Hér í Hafnarfirði eru það íþróttabandalag Hafnarfjarðar og
íþróttaráð sem hafa skipulagt trimmið fyrir okkur Hafnfirðinga. Fjarðar-
pósturinn kynnir hér dagskrá Trimmdaganna í Hafnarfirði, eins og þessir
aðilar hafa skipulagt þá, og tekur undir hvatninguna um almenna þátttöku
í því sem boðið er upp á.
20. júní — Dagur leikfiminnar —
I íþróttahúsi Víðistaðaskóla hefst leikfimi kl. 16.00 og sjá leiðbein-
endur frá fimleikafélaginu Björk um tilsögn, sem hefst á hálftíma
fresti til kl. 18.00. Engin þátttökugjöld.
21. júní — Dagur sundsins —
Sundhöllin verður opin frá kl. 7.00 til 16.00. Leiðbeinendur verða
frá Sundfélagi Hafnarfjarðar. Engin lágmarks vegalengd. Aðgang-
ur ókeypis þennan dag.
22. júní — Dagur skokks og gönguferða —
Skokkað verður í miðbænum. Safnast verður saman við Sparisjóð-
inn kl. 10.00 f.h. Lúðrasveit Hafnarfjarðar spilar. Skokkið hefst
kl. 10.30 f.h., vegalengdir við allra hæfi. Þátttakendur fá Svala.
Frjálsíþróttadeild F.H. sér um skokkið.
GÖNGUFERÐ: Gengið verður frá Höskuldarvöllum um Sog
að Djúpavatni og komið niður á Lækjarvelli. Rútuferðir frá
íþróttashúsinu v/Strandgötu kl. 13.15. Leiðsögumenn verða með i
ferðinni. Þetta er kjörin fjölskylduferð. Ferðin er ókeypis. Ferða-
félag íslands sér um ferðina. Munið að klæðast með tilliti til
veðurs.
Allir þátttakendur í Trimmdögum fá viðurkenningu.
Hafnfirðingar verum virkir þátttakendur og fjölmennum, gerum þessa
daga að sannkölluðum fjölskyldudögum.
HEILBRIGT LÍF
HAGUR ALLRA
f.h. Iþróttabandalags Hafnarfjarðar,
Gylfi Ingvarsson, formaður,
Gunnlaugur Magnússon og Dagbjartur Björnsson.
f.h. íþróttaráðs Hafnarfjarðar,
Yngvi R. Baldvinsson.
l. deild:
STÓRT TflP GEGN FRAM
Leikur FH og Fram í I. deildar-
keppninni sl. laugardag reyndist
þriðji tapleikur Hafnfirðinganna í
röð og er FH-liðið nú nálægt botn-
inum í deildinni. Nú eru þrjár um-
ferðir eftir af fyrri hluta mótsins og
leikur FH þá við Þór, ÍBV og
Breiðablik. Þessir leikir eru að
sjálfsögðu mjög þýðingarmiklir og
vonandi tekst FH-ingum að rétta úr
kútnum og auka stigafjölda sinn
áður en síðari hlutinn hefst. — þar
sem Fjarðarpósturinn kemur ekki
út næstu vikurnar vegna sumar-
leyfa, birtast hér upplýsingar um þá
leiki FH í I. deild sem leiknir verða
næstu tvo mánuði.
Föstud. 20.júní: ÞÓR - FH
Mánud. 23. júní: FH - ÍBV
Föstud. 27. júní: BREIÐABLIK - FH
Föstud. 4. júlí: FH - VÍÐIR
Sunnud. 13. júlí: ÍBK - FH
4. deild
Haukar leika í 4. deild karla í
íslandsmótinu, eins og kunnugt er.
Til þessa hafa skipst á skin og skúrir
hjá liðinu, en ekki er öll nótt úti og
von um að komast upp úr deildinni
enn fyrir hendi. Nú á laugardaginn
(21. júní) leika Haukarnir þýðingar-
mikinn leik gegn Augnabliki og
þann 28. júní gegn Snæfelli.
Kvennaflokkar
Haukar leika nú í fyrsta sinn í I.
deild kvenna og eins og títt er um
nýliða hefur róðurinn verið þungur
í fyrstu leikjunum. Hauka-stúlk-
urnar leika næst gegn Val í kvöld
(fimmtudag), en aðrir heimaleikir
þeirra næstu vikurnar eru gegn KR
10. júlí, Þór 9. ágúst og ÍBK 14.
ágúst.
FH leikur i 2. deild kvenna og
hefur ekki farið vel af stað frekar en
Haukastúlkurnar. Næstu heima-
leikir FH-stúIknanna eru gegn
Ármanni í kvöld (19.6.), Selfossi 2.
júlí og Þór, Þorlákshöfn 31. júlí.
,,Hreyfingarleysi og einhæfni vinnu
er eitt helsta vandamál fólks í
iðnríkjum.“„......
Petta er stadreynd sem þú getur breytt
^ÆFINGAPRÓGRÖMM FYRIR ALLA
SJÚKRAÞJÁLFARINN SF.
Brekkugötu 2 - Sími 54449
I Nýkomiö! |
Sumarbolir Mussur Regn-gallar
Háskólabolir Jakkar Seölaveski
Peysur Jogging-gallar Töskur o.fl.
PERLAN
Strandgötu 9, sími 51511
rl