Fjarðarpósturinn - 19.06.1986, Qupperneq 13
FJARÐARPÓSTURINN
13
SKARTGRIPIR ERU OKKAR SÉRGREIN
DEMANTAHÚSIÐ
REYKJAVÍKURVEGI 62, HAFNARFIRÐI, SÍMI 651313
Mosinn
úr sögunni!
„Þetta er frábært tæki. Það var
hrein upplifun að fylgjast með því
hverju hann afkastaði'*. Þetta
sagði ánægður viðskiptavinur,
sem tók á leigu mosatætara hjá
Lækjarkoti á dögunum. Þessi
gripur er af gerðinni Black &
Decker og tætir upp mosann í
görðunum án þess að skaða á
nokkurn hátt annan gróður.
Hann er rafknúinn og léttur í
meðförum og lætur vel að allri
stjórn. Að sögn Jóns Sveinssonar
í Lækjarkoti kostar þessi mosa-
tætari á 8. þúsund, en þar sem
ekki þarf að nota hann nema
endrum og eins, hefur Lækjarkot
ákveðið að leigja hann út í sumar
fyrir 500 kr. á sólarhring.
HEILBRIGT LIF - HAGUR ALLRA
íþróttabandalag Hafnarfjarðar
skorar á alla félagsmenn aðildar-
félaga Í.B.H. svo og alla Hafnfirð-
inga að taka virkan þátt í trimm-
dögum í Hafnarfirði dagana 20. 21.
og 22. júní n.k.
SKÖPUM LIFANDI BÆ!!!
Gerum þessa daga að
sannkölluðum fjölskyldudögum.
Ibúð óskast
Starfsmann á A. Hansen
vantar 2ja herb. íbúð strax.
Upplýsingar I síma 651130
og 651275 eftir kl. 19.00
Gafl-ínn býður í sumar upp á
hið vínsæla
HLAÐBORÐ
á hverjum sunnudegí
frá kl. 18
Úrvals matur víÖ allra hæfí!
GAPt-mn
V/REYKJANESBRA UT, HAFNARFIRÐI
SÍMAR 54477, 54424
Maja Jónasdóttir
Fótaaðgerða- og snyrtistofan Dísella
Að Miðvangi 41 er rekin fótaaðgerða- og snyrtistofa. Sæunn Hall-
dórsdóttir snyrtifræðingur sér um fótaaðgerðirnar og snyrtinguna
og notar hún bæði vörur frá Clarins og Payot.
Um er að ræða alla alhliða snyrtingu og má þar nefna andlitsböð,
handsnyrtingu, fótsnyrtingu, brjóstanudd og húðhreinsun.
Maja Jónasdóttir snyrtifræðingur annast líkamsnudd á snyrti-
stofunni. Hún er sérlærð í Clarins-meðferð en það er sérstök
„anatomisk'* meðferð sem enginn má stunda án þess að hafa lært
hjá Clarins.
Stofan er opin alla virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl.
10 - 12. Timapantanir eru í síma 51664.
Eigandi fótaaðgerða- og snyrtistofunnar er Rósa Jónasdóttir
snyrtifræðingur en hún rekur einnig snyrtivöruverslunina Dísellu og
þar fást m.a. allar Clarins vörurnar.
i.* !•*••* i í
Sæunn Halldórsdóttir við snyrtingu.