Fjarðarpósturinn - 02.11.1988, Page 2
Jarðskjálfti íSædýrasafnshreppi
Hjálparkall barst frá hreppsstjóranum í Sædýrasafnshreppi til
Björgunarsveitanna Fiskakletts og Hjálparsveitar skáta kl. 8.07 sl.
laugardagsmorgun. Var tilkynnt um stóran jarðskjálfta og að íbúar
hreppsins væru margir týndir og/eða stórslasaðir. Brugðust hjálpar-
sveitirnar við og hófu þegar björgunaraðgerðir á staðnum við komu
þangað, en fyrstu hjálparsveitarmennirnir komu á staðinn klukku-
stund eftir útkall.
Hrepþstjórinn í Sœdýrasafns-
hreppi kallar á hjálp kl. 8.07.
Það voru 15 félagar í unglinga-
deild Hjálparsveit skáta sem voru
hinir „slösuðu", en þarna var auð-
vitað um æfingu að ræða. Voru
þeir misjafnlega slasaðir, sumir
með smábrot, aðrir jafnvel hrygg-
brotnir og með innyflin úti. Þá
voru aðstæður mjög erfiðar á
mörgum stöðum, t.d. lá einn mik-
ið brotinn úti í miðri ísbjarnar-
gryfju þannig að nota þurfti sig-
búnað til að ná honum upp. Kuldi
og vosbúð háði einnig hinum slös-
uðu og voru margir orðnir illa á sig
komnir.
Tilkynnt var einnig um, að bíll
hefði lent í sjónum og menn í
honum. Björgunarbátur mætti á
staðnum með kafara, en brim var
og erfiðar björgunaraðstæður.
Ýmsum æfingabrögðum var
Þessi var hinn rólegasti, enda „aðeins“ sœrður á fœti, að því er rann-
sóknir björgunarsveitarmanna sýndu.
beitt. Tveir hinna slösuðu stopp-
uðu fyrstu björgunarsveitarmenn
á leið á svæðið og reyndu að fá þá
til að draga bíl, sem fór út af, í
bæinn. Þeir voru illa á sig komnir
og rugluðu heilmikið. Þeim tókst
þó ekki að tefja að ráði, nema þá
sem snéru til baka með annan
þeirra sem var nokkuð slasaður.
Fjarðarpósturinn var á vett-
vangi og fylgdist með aðförunum.
Unga fólkið lék hlutverk sín með
prýði, margir voru í losti, en aðrir
hinir rólegustu. „Hryggbrotin“
kona þvaðraði endalaust á ensku
um að ekkert væri að henni, nema
smáverkur í baki, en björgunar-
sveitarmenn létu ekki blekkjast.
Hún var ekki hreyfð fyrr en réttur
búnaður til að flytja hana fannst á
svæðinu.
Þeir björgunarsveitarmenn létu
vel af æfingunni, en þetta er í
fyrsta sinn sem sveitirnar koma
tvær saman til æfingar af þessu
tagi. Allir hinir slösuðu höfðu
fundist kl. 10.30, þar með einn
sem týnst hafði lengst úti í hrauni.
Eftir æfinguna settust menn
niður og ræddu málin og komust
að sameiginlegri niðurstöðu um
hvað reynst hefði vel og hvað mátt
betur fara.
Hún var „hryggbrotin", og reyndi að fullvissa björgunarsveitarmenn
um á ensku, að ekkert vœri að henni.
GAFLARI VIKUNNAfí:
Fullt nafn? Erla María Kjart
ansdóttir.
Fæðingardagur? 16. október
1946.
Fæðingarstaður? Hafnar-
fjörður.
Fjölskyldurhagir? Gift.
Bifreið? Lada Sport.
Starf? Afgreiðslustörf.
Fyrri störf? Skrifstofustörf.
Helsti veikleiki? Veit ekki.
Helsti kostur? Veit ekki.
Uppáhaldsmatur? Piparsteik.
Versti matur sem þú hefur
smakkað? Rauðmagi.
Uppáhaldstónlist? Country.
Eftirlætisíþróttamaðurinn?
Enginn.
Hvaða stjórnmálamanni hefur
þú mestar mætur á? Engum.
Hvert er eftirlætissjónvarps-
efnið? Dans- og söngvamyndir.
Hvað sjónvarpsefni finnst þér
leiðinlcgast? Glæpamyndir.
Uppáhalds útvarps- og sjón-
varpsmaður? Ómar Ragnarsson.
Uppáhaldsleikari? Gísli Hall-
dórsson.
Besta kvikmynd sem þú hefur
séð? Haustsónata.
Hvað gerir þú í frístundum
þínum? Það sem til fellur.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á? Það eru svo margir fal-
legir staðir á íslandi að það er
ekki hægt að gera upp á milli
þeirra.
Hvað metur þú mest í fari ann-
arra? Heiðarleika.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari annarra? Óheiðarleiki.
Hvaða persónu langar þig
mest til að hitta og hvers vegna?
Ann Bancroft og Shirley Mac-
lain.
Hvaða námsefni líkaði þér
verst við í skól? Ekkert.
Ef þú ynnir tvær milljónir í
happdrætti, hvernig myndir þú
eyða þeim? Veit það ekki.
Hvað myndirðu vilja í af-
mælisgjöf? Ánægjulegan dag.
Ef þú gætir orðið ósýnilegur,
hvar myndirðu helst vilja vera?
Get ekki hugsað mér að vera
ósýnileg.
Ef þú værir í spurningakeppni,
hvaða sérsvið myndir þú velja
þer? ísland.
Hvað veitir þér mesta afslöpp-
un? Hlusta á góða tónlist.
Hvað myndirðu gera, ef þú
værir bæjarstjóri í einn dag? Mér
dygði ekki einn dagur til að gera
það sem ég vildi fyrir bæinn.
Uppáhalds-Hafnarfjarðar-
brandarinn þinn? Enginn.
HRAUNHAMARhf
FASTEIQNA- OQ
SKIPASALA
ReykjavíKurvegi 72,
Hafnarfirði - Sími 54511
Norðurbær. Höfum til sölu nýjar íb. 3-6
herb. í tveimur fjölbýlishúsum við Suðurvang.
(b. afhendast tilb. u. trév. eftir ár. Teikn. á skrif-
stofu.
Nönnustígur. Eitt skemmtilegasta eldra
einb.hús í Hafnarf. 67 fm að grunnfleti. Húsið
hefur verið mikið endumýjað.
Hraunbrún. Nýl. 235 einb.hús á tveim
hæðum með innb. tvöf. bílsk. Efri hæð fullb.
Skipti mögul. á minni eign. Verð 11 millj.
Stekkjarhvammur. Nýkomið 160 fm
raðh. auk baðst. í risi og bílsk. Ath. fullb. eign.
Skipti mögul. á 3ja herb. íb.
Suðurhvammur. 220 fm raðhúsátveim
hæðum með innb. bílskúr. Til afh. strax fokh.
Verð 5,7 millj.
Brekkuhvammur- Hf. Giæsii. 171 fm
einb.hús á einni hæð auk 30 fm bílsk. 4 svefnh.
(Mögul. á 5 herb.) Fallegur garður. Áhv. nýtt
húsnlán. verð 10,3 millj.
Stuðlaberg. 150 fm parhús á 2 hæðum.
Að mestu tilb. u. trév. Verð 6,2 millj.
Stuðlaberg m.bílsk. caisofmparhús
á tveim hæðum ásamt bílsk. Skilast fullb. utan
og fokh. innan. Verð 5,5 millj. Fæst einnig
styttra á veg komið.
Fagrihvammur. Nú eru aðeins eftir ein
3ja herb. íb., 6 herb. íb. á tveim hæðum og 4ra
herb. íb. Verð frá 4,7 millj. íb. skilast tilb. u. trév.
Fyrstu íb. í maí.
Brekkugata. Mjög falleg 150 fm 5 herb.
efri hæð ásamt 26 fm bílsk. Allt sér m.a. garður.
skipti mögul. á 3ja herb. íb. í suðurbæ. Verð 8,2
millj.
Mosabarð. Mjög falleg 138 fm sérh. á 1.
hæð 4 svefnherb. Stór stofa. Nýtt eldh. Bílsk-
réttur. Fallegur garður. Ákv. sala. Verð 6,5 millj.
Hringbraut, nýjar sérh. 146 fm efri
sérh. auk 25 fm bílsk. Verð 6 millj. Einnig neðri
hæð af sömu stærð. Verð 5,8 millj. Húsið er ris-
ið og afh. fokh. innan og fullb. utan.
Breiðvangur. Mjög falleg 111 fm (nettó),
4- 5 herb. íb. á 1. hæð ásamt 111 fm íb. í kjall-
ara. Verð 7,7 millj.
Breiðvangur. Mjög falleg 134 fm (nettó)
5- 6 herb. íb. á 1. hæö ásamt aukaherb. í kj.
Áhv. nýtt Húsnlán 2,1 millj. Skipti æskileg á4ra
herb. I Norðurbæ. Verð 6,8 millj.
Hjallabraut. Nýkomin óvenju glæsil. 122
fm 4-5 herb. Ib. á 2. hæð. Ath. allar innr. í íb.
ii/jar. Laus 15. jan. n.k. Verð 6 millj.
bléttahraun. Mjög falleg 4ra herb. 110 fm
íb. á 2. hæð. Bílskr. Verð 5,7 millj.
Breiðvangur m aukaherb. Mjög fai-
leg 115 fm 3-4ra herb. íb. á 2. hæð ásamt
aukaherb. i kjallara. Verð 5,7 millj.
Hellisgata. Ca. 92 fm 4ra herb. efri hæð.
Ákv. sala. Verð 4 millj.
Móabarð rn. bílsk. Mjög falleg 85 fm3ja
herb. íb. á 2. hæð ásamt góðum bílsk. Nýtt
eldh. Gott útsýni. Verð 5,2 millj.
Vitastígur. Mjög falleg 85 fm 3ja herb.
jarðhæð. Verð 4,4 millj.
Hringbraut - Hf. Mjög falleg 85 fm 3ja
herb. jarðh. Nýtt eldh. Parket. Gott útsýni. Verð
4,6 millj.
Vallarbarð m.bílsk.Mjog rúmg. 81 fm.
2ja herb. íb. á 1. hæð. Nýl. og falleg íb. Góður
bílsk. Verð 4,6 millj.
Fagrakinn. Mjög falleg og rúmgóð ca 80
fm 3ja herb. risíb. í tvibýli. Lítið undir súð. Ákv.
nýtt Húsn.lán. 1,8 millj. Laus í des. Verð 4,5
millj.
Suðurgata. Nýkomin sérlega falleg 3ja
herb. jarðh. Flísar á öllum gólfum. Nýjar innr.
Verð 4,9 millj.
Hraunkambur. 80 fm 3ja herb. neðri
hæð. Nýtt eldh. Verð 4,3 millj.
Laufvangur. Nýkomin mjög falleg 70 fm
2ja herb. íb. á 3. hæð. Verð 4,1 millj.
Sléttahraun. Mjög falleg 2ja herb. 65 fm
íb. á 3 hæð. Verð 3,9 millj.
Reykjavíkurvegur. Mjog faiieg 2ja
herb. 50 fm endaíb. á 3 hæð. Verð 3,4 millj.
Suðurgata. Bnslakl.ib. Verð 1,6 millj.
Sölumaður: Magnús Emilsson,
kvöldsími 53274.
Lögmenn:
Guðm. Kristjánsson, hdl.,
Hlöðver Kjartansson, hdl.
2