Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 05.04.1990, Side 2

Fjarðarpósturinn - 05.04.1990, Side 2
Dagur Jónsson skrifar um BjörgúK, unglingadeild Fiskakletts: Unglingar í spennandi undirbúningsstarfi Unglingadeildin Björgulfur var stofnuö 11. febrúar 1982 aö tilstilli björgunarsveitarmanna í Fiskakletti og Hraunprýðiskvenna. Hug- myndin að baki stofnunar deildarinnar er að kynna og undirbúa störf slysavarnarfélaga og björgunarsveita. Unglingadeildin starfar innan vébanda Slysavarnarfélags ís- lands og er aðalfundur haldinn í. febrúar ár hvert. Auk þess hefur deildin sjálfstæðan fjárhag. Inn- taka nýrra félaga fer fram í sept- ember og eru þeir á aldrinum 14 til 17 ára. í dag eru félagar í Björgúlfi 14, auk tveggja umsjónarmanna, sem björgunarsveitin skipar úr sínum röðum. Unglingadeildin hefur fimm manna stjórn, sem er kosin á hverjum aðalfundi. Starf stjórn- ar er að skipuleggja starfsemi og ferðir á vegum deildarinnar. Fundir eru á fimmtudögum kl. 19.30 og er þá jafnframt farið á æfingar, í heimsóknir eða á nám- skeið. Starfsárið er frá byrjun september fram í maí. Starf unglingadeildarinnar hef- ur verið mjög fjölbreytt í vetur. Haldin hafa verið námskeið í skyndihjálp, samtals 20 tímar. Haldin voru fjarskiptanámskeið þar sem kennd er meðferð tal- stöðva, korta og kompása. Farið var í sundlaug og prófað að kafa með öllum tilheyrandi búnaði og einnig er sigið í kletta. Farið er í heimsóknir, bátar og þurrgallar björgunarsveitarinnar prófaðir. Einnig hafa verið farnar ferðir t .d. vélsleðaferð að Brekkuskógi og bakpokaferð frá Krísuvík að Djúpavatni. Hér hefur aðeins fátt eitt verið talið, en auk þessa eru iðulega haldin landsmót unglingadeilda Frá œfingu deildarinnar í köfun, sem fram fór í Sundhöllinni. ■ '-alísr Frá sleðaferð Björgúlfs í Brekkuskóg. Vill setja upp söluvagn við Suðurbæjarsundlaug Slysavarnarfélags íslands víðs vegar um landið. Unglingadeild Björgúlfs er sú elsta á landinu, en fljótlega eftir að hún var stofnuð komu aðrar fram víðs vegar um landið. Ég vil að lokum hvetja öll þau ung- menni, sem áhuga hafa á að starfa í unglingadeildinni að hafa sam- band við stjórnina eða umsjónar- menn. Þá má finna í húsnæði Fisk- akletts á fimmtudögum. Dagur Jónsson Eyþór Þórarinsson, Erluholti 1, Garðabæ, hefur sótt um heim- ild til að setja upp og starfrækja söluvagn við Suðurbæjarlaug. Beiðnin var tekin fyrir á síðasta bæjarráðsfundi og var samþykkt að vísa málinu til umsagnar hjá heilbrigðisráði, íþróttaráði, bæjarverkfræðingi og forstöðu- manni Suðurbæjarlaugar. GAFLARIVIKUNNAR: Fullt nafn? Víkingur Krist- jánsson. Fæðingardagur? 26. mars 1972. Fæðingarstaður? Neskaup- staður, en hef mestan hluta ævinnar búið fyrir vestan. Fjölskyldurhagir? Bý hjá móður og fjórum systkinum. Bifreið? Daihatsu Charade, árgerð sem ég fer brátt að senda í niðurrif. Starf? Nemi í Flensborgar- skóla. Fyrri störf? A sumrin hef ég unnið í málningarvinnu og í frystihúsi. Helsti veikleiki? Gef oft eftir, ekki nógu harður á mínum málum. Helsti kostur? Ég er ekki dómbær á þá. Uppáhaldsmatur? Hamborg- arahryggur er gasalega góður, eins er ég hrifinn af rjúpunni (til átu alltsvo). Versti matur sem þú færð? Svið finnast mér vond. Uppáhaldstónlist? Hlusta á nánast allt annað en nútíma klassíska tónlist og nýlegan jass. Uppáhaldsíþróttamaður? Enginn einn frekar en aðrir. Hvaða stjórnmálamanni hefur þú mestar mætur á? Læt ekkert uppi um stjórnmálaskoðanir mínar, svona á meðan þær eru að myndast. Hvert er eftirlætissjónvarps- efnið þitt? „90 á stöðinni" stend- ur fyrir sínu. Góðar kvikmyndir. Hvað sjónvarpsefni finnst þér leiðinlegast? Austantjaldsbíó- myndir geta stundum verið leiðinlegar. Dýralífsmyndir finn- ast mér líka frekar döpur afþrey- ing. Uppáhalds útvarps- og sjón- varpsmaður? Skúli Helgason og Stöðvar-menn. Uppáhaldsleikari? Mel Gibson, Michael Keaton og Bob Hostin koma fyrst í hugann. Besta kvikmynd sem þú hefur séð? Midnight Express. Hvað gerir þú í frístundum þínum? Ég er á kafi í félagsstarf- semi í skólanum og þau taka mestan hluta af mínum frístund- um. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Ármúli við ísafjarðar- djúp. Hvað metur þú mest í fari ann- arra? Að þeir séu gamansamir og trausts verðir. Hvað fer mest ■ taugarnar á þér í fari annarra? Hortugheit og mont. Hvaða námsefni líkaði þér verst við í skóla? Handavinnu. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta og hvers vegna? Meðlimir The Pogues eru örugg- lega stórskemmtilegir. Hvaða námsefni líkaði þér verst við í skóla? Engin spurning, stærðfræði. Ef þú ynnir tvær milljónir í happdrætti, hvernig myndir þú eyða þeim? Keypti mér bíl, færi til útlanda og hitt inn á banka- bók. Ef þú gætir orðið ósýnilegur, hvar myndirðu helst vilja vera? Ég myndi planta mér nálægt ein- hverri af draumadísunum mínum. Ef þú værir í spurningakeppni, hvaða sérsvið myndirðu velja þér? Tónlist. Hvað veitir þér mesta afslöpp- un? Svefn. Hvað myndirðu gera, ef þú værir bæjarstjóri í einn dag? Mæla með að skylda til þátttöku í íþróttatímum yrði afnumin í Flensborg. Uppáhalds-Hafnarfjarðar- brandarinn þinn? Þegar ég var beðinn um að gerast Gaflari vik- unnar. Fyndið, ekki satt. Námsflokkar í húsnæði Þrastanna Gerður hefur verið samningur milli bæjarsjóðs og Karlakórsins Þrestir um afnot bæjarsjóðs af hluta af húsnæði kórsins að Flata- hrauni 1. Hyggstbæjarsjóðurnýta húsnæðið undir starfsemi Náms- flokka Hafnarfjarðar. Biðskýliðviö Suðurbraut skal á brott Bæjarráð samþykkti á síðasta fundi vegna skipulagsástæðna, að eigendur biðskýlisins við Suður- braut skuli fjarlægja það og allt sem því tilheyrir innan sex mán- aða, bæjarsjóði að kostnaðar- lausu. Vitnað er til fyrri sam- þykktar bæjarráðs.

x

Fjarðarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.