Fjarðarpósturinn - 05.04.1990, Qupperneq 3
Hlutu 1. verolaun frá KODAK
Filmur og framköllun við
Strandgötu 19 hlutu nýverið
fyrstu verðlaun frá KODAK í
Evrópu og á íslandi. Verðlaunin
eru veitt því KODAK-Express
fyrirtæki, sem er með „bestu
framleiðsluna; þar sem hæfni og
þekking starfsfólks er í góðu lagi
og framsetningi á vöru og snyrti-
mennska er í hávegum höfð“, eins
og segir í verðlaunaskjalinu.
Eigandi fyrirtækisins er Albert
Már Steingrímsson, en ásamt
honum á myndinni er starfsstúlka
fyrirtækisins, Hrönn Haraldsdóttir.
Verðlaunin voru flugfar fyrir tvo til
London og dvöl þar í fjóra daga.
Hrönn fékk glæsilega myndavél.
Albert Már sagði aðspurður, að
viðskiptin gengju vel og að mikil
aukning væri í framköllunarþjón-
ustunni. Hann sagði, að það eina
sem angraði sig væri vöntunin á
bílastæðum í miðbænum. Þessmá
geta, að þjónustustaðir KODAK
með KODAK Express framköll-
un eru hátt á annan tug á landinu.
Nýtt bfla>
verkstæði
Opnað hefur verið nýtt réttinga-
verkstæði við Dalshraun 11. Eig-
andi er Elvar Magnússon bifreiða-
smiður.
Elvar sagði í stuttu spjalli við
tíðindamann Fjarðarpóstsins, að
hann annaðist allar almennar bif-
reiðaréttingar. Einnig sér hann
um að koma bílunum í vandaða
sprautun. Verkstæðið er bakatil
að Dalshrauninu.
Gestir við vígslu FH-hússins
FALLEGAR FERMINGARGJAFIR
Staða
afgreiðslufulltrúa
á Félagsmálastofnun er laus til umsóknar. Um er
að ræða75% starf, sem felst m.a. í vélritun, síma-
vörslu, móttöku og afgreiðslu.
Umsóknum skal skilað á Félagsmálastofnun
Hafnarfjarðar, Strandgötu 8-10, fyrir 10. apríl n.k.
FÉLAGSMÁLASTJÓRI
Hvar eru
Geldingastaðir?
Reykjavíkur\regnr 50 hefur af mörgum verið
nefndur þessu nafni, og það er í góður lagi okkar
vegna. Par líður okkur vel. Að vísu erum við liálf
gluggalaus, og þess vegna bendum við bíleigend-
um á að leggja bara bílunum fyrir utan (stórt og
gott bílastæði) og koma inn og sjá úrvalið hjá oldíur
af hverskonar bflavarahlutum og aukalilutum.
Hér fáið þið flest það sem þarf til viðgerða og
þrifa, og svo ýmislegt sem er eldti eins nauðsyn-
legt, en gaman er að, svo sem bílaútvörp og bfla-
sjónvörp, hátalarar og margt, margt fleira.
Veríð velkomin í hornið til okkar.
Bflahornid
Reykjavíkurvegi 50, símar 51019-52219
LJÓSMYNDA
HÚSID
Dalshrauni 13 Hafnarfirði sími 91-53181
Opið ó laugardögum fró kl. 10-16
3