Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 20.02.1992, Qupperneq 7

Fjarðarpósturinn - 20.02.1992, Qupperneq 7
FYRIRTÆKIN í FIRÐINUM: Fögnum Þorra í Fjömgarðinum Við hefjum árið á þjóðlegum nótum með frábærum hljóðfæraleikurum og syngjandi þjónustufólki. Framundan eru vegleg Þorrablót á sanngjörnu verði í ævintýralegu umhverfi. Nýstárleg og skemmtileg húsakynni íýrir þorrablót, árshátíðir og hvers kyns veislur FJÖRUKRAIN Strandgötu 55, Sími 65 12 13 Uppeldisstefnan á Hvammi mynduð í norrænu samstarf i Myndbandið „Að klífa hjall- ann - ný leið í leikskólastarfi“ verður frumsýnd á laugardag í Holiday Inn hótelinu í Reykjavík. Myndin verður síðan sýnd al- menningi í Hafnarborg á sunnudag. Myndin, sem er 27 mínútna löng, fjallar um starf- semi leikskólans Garðavalla við Hjallabraut, en þar hafa ýmsar nýjungar í leikskólastarfi verið teknar upp, sem m.a. miða að jafnrétti kynjanna. Höfundur þessarar nýju uppeldisstefnu á leikskólum er Margrét Pála Olafsdóttir, leikskólastjóri í Hvammi. Hún hefur þróað stefnuna, ásamt samstarfsfólki sínu í tvö og hálft ár. Myndbandið er unnið að frum- kvæði Anne-Mette Kruse, sem er lektor við Kvennarannnsóknastof- nun Arósaháskóla. Myndinerunnin af Q-Media í Danmörku, m.a. með stuðningi frá norrænu ráðherra- nefndinni, menntamálaráðneytum beggja landanna, Hafnarfjarðarbæ og Námsgagnastofnun, sem gefur myndina út hérlendis, ásamt sam- nefndum bæklingi sem með henni fylgir. Myndin, ásamt bæklingnum, er gefin út samtímis á öllum Norður- landamálunum, en þetta er fyrsta sýning myndarinnar á Norður- löndum. Við þetta sama tækifæri verður kynnt bók um „Hjallastefnuna". Bókin heitir „Æfingin skapar meistarann“ og er eftir Margréti Pálu Ólafsdóttur. Forlagið Mál og menning gefur hana út. Frumsýning myndarinnar verður eins og fyrr segir í Holiday Inn hótelinu á laugardag og stendur kynningin yfir frá kl. 15-17. Jafnrétti kynjanna er einn af veigamiklum þáttum í hinni nýju stefnu. Myndin er aflitlum stúlkun að starfi í leikskólanum Hvammi. Munið hvunndagstilboðin. Heillandi helgarstemmning. Lifandi tónlist Eigendur Veiðibúðar Lalla í versluninni á opnunardaginn. Guðrún Magnúsdóttir og Lárus S. Guðjónsson. Fyrsta sérverslun stangaveiðimanna Fyrsta verslunin í Hafnarfirði, Lárus S. Guðjónsson og Guðrún meðþarf. sem sérhæfír sig í útbúnaði fyrir Magnúsdóttir. Lárus sagði í stuttu Aðspurður, hvort hann myndi stangaveiðimenn, var opniið í spjalli við tíðindamann, að Veiði- selja veiðileyfi fyrir sumarið sagði verslunarhúsnæðinu Miðvangi búð Lalla sérhæfði sig fyrst og Lárus: „Já.égerþegarkominnmeð sl. föstudag. Verslunin ber heitið fremst í búnaði sportveiðimann- laxveiðileyfi fyrir Hvolsá og „Veiðibúð Lalla“ og býður upp sins. Verslunin er með veiðibúnað Staðarhólsá í Dölum. Ennfremur á allan sérbúnað stangaveiði- af Mitchell-, Daiwa- og Abu-gerð er ég að kanna með aðra veiðistaði mannsins. og má þar m.a. nefna veiðistangir og væntanlega verð ég einnig með Eigendur verslunarinnar eru og hjól og síðan auðvitað allt sem silungsveiðileyfi fyrir vorið.“ Heiðraður fyrir 30 ára störf í Noregi Haukur Guðjónsson rafvirki, sem starfað hefur í Noregi sl. 30 ár, hlaut nýverið heiðurspening og skjal fyrir 30 ára dygg störf hjá sama fyrirtæki í Noregi. Haukur verður 60 ára n.k. sunnudag, 23. febrúar. Haukur er Hafnfirðingum að góðu kunnur, enda fæddur að Gunnarssundi 7 af þeim heiðurs- hjónum Guðjóni Benediktssyni, vélstjóra, sem lést 22. febrúar 1988 97 ára að aldri og Elínborgu Jóns- dóttur, en hún lést 22. febrúar 1968, þá 77 ára. Haukur var næstyngstur níu systkina. Haukur flutti til Noregs, ásamt fjölskyldu sinni, í októbermánuði 1961. Hann fékk strax vinnu hjá Lefdal Installasjon A/s í Osló, þar sem hann hefur starfað síðan með góðum árangri eins og getið er að framan. Valur Asmundsson, góðvinur Hauks, kom þessum upplýsingum á framfæri við Fjarðarpóstinn. Valur kvaðst vilja nota tækifærið og senda Hauki innilegustu ham- 3» ¥ Haukur Guðjónsson rafvirki ingjuóskir með árin sextíu, en Haukur fær Fjarðarpóstinn reglu- lega til lestrar. Valur sagði einnig, að Haukur kæmistekkiheimáafmælisdaginn, enfyrirvinihansogkunningjavildi hann koma því á framfæri, að unnt væri að senda honum kveðjur með faxi á laugardag og sunnudag í síma 90-472-190710, ennfremur verður hann við síma kl. 16-19 að ís- lenskum tíma á afmælisdaginn, en númerið er 90-472-686840. ‘Keramií^ Keramiknámskeið , innritun hafin Úrval páskamuna is+asmiðjatA, Norðurbraut 41 3“ 652105 53170 eymið auglýs- inguna Hafnfiröingar athugið! Bind inn bækur og tímarit Upplýsingar í síma 51369

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.