Fjarðarpósturinn - 16.06.1993, Page 3

Fjarðarpósturinn - 16.06.1993, Page 3
Penni Sofusar: „Fegurðarskynið er í vitund mína vaf ið“ Bæjarstæði okkar hefur alla tíð verið fagurt frá náttúrunnar hendi, en þegar fólksfjölgun fór að aukast og bærinn að stækka, þá fundu flestir fyrir þörf til að fegra sína lóð og gera umhverfið un- aðslegra. Á fögmm sólskinsdegi, þegar gróður er vel á veg kominn, er unaðslegt að ganga um bæinn og virða fyrir sér lagni og hug- kvæmni lóðareigenda. Eitt slíkt vorkvöld á síðasta ári gekk ég um bæinn í skoðunarferð, og þegar henni var lokið gekk ég út fyrir bæinn í bjartri vomóttinni. A Ásfjalli settist ég á vörðu þar hæst uppi. Það sem við mér blasti setti rót á tilfinningar rnínar, og varð mér þá létt að koma eftirfar- andi ljóði á blað. Jónsmessunótt Með hugarró hvíldar ég gisti á grjóti hörðu, í geðblœ hrifningarfegurðina met ég. Sólargeislar glitra í lofti jafntsem jörðu. A Jónsmessunótt heiilaður set ég efst á Asfjallsvörðu. I hrifhœmri lotningu gónandi á geislatrafið guðleg dýrkun inn í huga minnflæðir. Fegurðarskinið er í vitund mína vafið, veglega sýnina inn í minninguna þræðir er sólin sígur í hafið. A hverfanda hveli sólarrönd djúpið sogar síðasti geisli á himni litum blandar. Ifljótandi gulli sýnast víkur og vogar, varlega blærinn í næturstillunni andar þegar himinn og haflogar. - Sofus Berthelsen Heimilis- iðja til að drýgja tekjurnar Jón Héðinn Pálsson er einn af fjölmörgum bæjarbúum sem ekki hafa sest með hendur í skauti, þó atvinna dragist saman og tímabundnir erfiðleikar séu í efnahagslífinu. Til að nýta auk- inn frítíma vegna samdráttar á atvinnumarkaðinum og drýgja um leið tekjurnar, hefur hann gripið til þeirrar iðju að smíða dúkkuhús í garðinum heima hjá sér við Tjarnarbraut 9. Jón Héðinn er með sýnishom á myndinni hér að ofan og er húsið til sölu, eins og sjá má. Hann segir smáhýsið fyrst og ffemst hugsað sem dúkkuhús eða leikaðstaða fyr- ir böm, þó auðvitað megi nota það til annars brúks, svo sem geymslu undir garðverkfæri. Hugmyndina fékk Jón Héðinn að hans sögn vegna fjölda fyrir- spuma um slík hús. Við bygging- una er sérstaklega hugað að örygg- isatriðum svo sem því, að í glugg- um er plexigler og þakið er úr vatnsheldum krossviði, þar sem bárujám gæti reynst hættulegt ungum bömum. Jón Héðinn kvaðst ennfremur geta innréttað húsin að ósk hvers og eins. SNYRTIVÖRUVERSLUNIN Miðvangi 41, Hafnarfirði, s: 51664 NYIR ILMIR Reálities frá Lis Clabone Carmenfrá Victorio & Lucchino Night Tfligthfrá Joop Herreafrá Carolina Herrea 30% afsláttur af skartgripum Ut JUTLl Stendhal - Clarins - Gernetic - Christian Dior - Sothys - No Name - Gaie Hayman DAGSKRÁ 1 7. júní hútíðarhaldanna 1993 Æskulýðs- og tómstundaráð skipar þjóðhátíðarnefnd Kl. 08.00 Skátar draga fána að húni Kl. 10.00 Kaplakriki Hátíðarmót íþrótta- og leikjanámskeiða Kl. 17.15 íþróttahús Strandgötu 17. júní mót í handknattleik FH og Hauka Bjarkimar sýna í leikhléi KI. 10.00 Víðistaðtún Knattspyma yngri flokka Hauka og F.H. Skátatívolí Kl. 13.30 Hellisgerði Lúðrasveit Hafnarfjarðar og Karlakórinn Þrestir Kl. 13.45 Helgistund, prestur séra Einar Eyjólfsson KI. 20.30 Víðistaðatún Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur Ávarp nýstúdents: Atli Már Ingólfsson Norrænn vinabæjarkór Flensborgarkórinn flytur söngleikjasyrpu Siggi, Öm og Laddi Hljómsveitin List Hljómsveitin Ný dönsk Kl. 14.15 Skrúðganga frá Hellisgerði Gangan fer um Hellisgötu, Reykjavíkurveg, Amarhraun, Tjamargötu, Lækjargötu, Strandgötu, Vesturgötu og Hraunbrún að Víðistaðatúni Kl. 15.00 Hátíðardagskrá á Víðistaðatúni Setning: Þórir Jónsson formaður þjóðhátíðamefndar Ávarp: Guðmundur Ámi Stefánsson bæjarstjóri Ávarp fjallkonu Bjössi bolla og vinir hans Söngur leikskólabama Leikskólanum við Hjallabraut Bogomill Font Lilli klifurmús og Mikki refur Kl. 21.00 Vitinn Gömlu dansamir Hljómsveit Þórðar Marteinssonar Kynnir dagsins: Guðmundur Á. Tryggvason Hátíðarhöldunum lýkur kl. 00.30 Tónlistarmennirnir Aðalsteinn Ásberg og Anna Pálína munu heimsækja sjúkrastofnanir í bænum Veitingasala verður á hátíðarsvæðinu _______________________________________________________________y

x

Fjarðarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.