Fjarðarpósturinn - 16.06.1993, Qupperneq 4
EMRMR
Útgefandi, ritstjóri og ábyrgöarmaður: FRÍÐA PROPPÉ
Auglýsingastjóri: HANNA FRIÐJÓNSDÓTTIR
íþróttir: PÓRÐUR BJÖRNSSON OG SVEINBJÖRN BERENTSSON
Dreifingarstjóri: HALLDÓRA GYÐA MATTHÍASDÓTTIR
Ljósmyndir og útlit: FJARÐARPÓSTURINN
Innheimtustjóri: INGA JÓNA SIGURÐARDÓTTIR
Prentvinnsla: GUÐMUNDUR STEINSSON OG BORGARPRENT
Skrifstofa Fjarðarpóstsins er að Bæjarhrauni 16, 3. hæð. Póstfang 220, Hafnarfiröi.
Opið er alla virka daga frá kl. 10-17. Símar: 651945, 651745. FAX: 650745.
Fjarðarpósturinn er aðili aö Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða.
Kveðja til arftakanna í
bæjarstjórn
Kveðju- og leiðbeiningarorð fráfarandi bæjarstjóra
til eftirsitjandi bæjarfulltrúa í bæjarstjórn Hafnarfjarð-
ar voru þessi: „Héðan í frá á bæjarstjórn Hafnarfjarð-
ar bara að tala um nettóskuldir, enda var orðtakið
„nettóskuldir" fundið upp hér í Hafnarfirði."
Þessi orð bæjarstjórans eru skiljanleg, þegardæm-
ið er skoðað, því tæpar 800 millj. kr. líta betur út á
blaði en 2.000 millj. kr. þegar rætt er um skuldastöð-
una sem bæjarstjórinn skilur við í Hafnarfirði.
Ósköp var þó lítinn fenginleika að greina í svip
flokksbræðra og systra ráðherrans í bæjarstjórninni,
þ.e. þeirra sem eftir sitja og karpa um hver eigi að
taka við hálaunuðum bæjarstjórastólnum.
Raunveruleg skuldstaða
og greiðslubyrði
Lítum nánar á dæmið. Bærinn skuldar í dag um
2.000 millj. kr. Nettógreiðslubyrði á árinu 1992 var
400 millj. kr. eða um 25% af heildarskatttekjum. Ef
aðeins yrði talað um „nettóskuldir" myndi mörgum
bregða sem lítur rauntölu greiðslubyrðar.
Skoðunarmaður reikninganna, Páll V. Daníelsson,
varar mjög við þessari alvarlegu stöðu. Hann segir
m.a. um nettóskuldir, sem jukust reyndar um 54,3%
milli áranna 1991 og 1992. „Mitt álit er að ekki sé
hægt að meta nema hluta peningalegra eigna á móti
skuldum. Skuldirnar eru raunverulegar en það eru
ýmsar stærðir eignamegin sem eru óraunverulegar.
Til dæmis eru færðar kröfur á ríkið, 136 millj. kr., sem
óvíst er hvort fáist greiddar, enda ekki tekist að fá
þær viðurkenndar. Þá eru 74 millj. kr. í innheimtu hjá
lögmönnum og er hætt við að það fé skili sér ekki
nema að hluta."
Þannig telur skoðunarmaðurinn áfram dæmi um
óöryggi „nettóskuldanna" á sama tíma og við getum
eins viss um þunga greiðslubyrðarinnar og að sólin
kemur upp á morgun.
Betra seint en aldrei
Magnús Jón Árnason, Alþýðubandalagi, gerði að
umtalsefni í þessum umræðum á bæjarstjórnarfund-
inum sl. þriðjudag, að það hefði verið grátbroslegt að
lesa viðtal við ráðherrann Guðmund Árna í DV sama
daginn, þar sem hann hefði lýst því yfir að hann sæi
ýmsar leiðir til að skera niður í ráðuneyti sínu, heil-
brigðis- og tryggingarmálaráðuneyti. Magnús benti á
að þarna væri verið að ræða um 2.000 millj. kr. niður-
skurð, þ.e. sömu tölu og skuldir bæjarsjóðs væru í.
Kannski að bæjarstjóri lumi í hljóði á öðrum tillög-
um og hugmyndum en „að nú skuli bara tala um
nettóskuldir" til að skjóta að eftirsitjandi félögum sín-
um. Annars er einnig spurning af hverju hann hjálp-
aði ekki Sighvati, forvera sínum, í niðurskurðinum
þegar mest gekk á með St. Jósefsspítala.
Málar með náttúrunni
- Verk ungs Hafnfirðings vekja athygli í Þýskalandi
Tveir ungir íslendingar vöktu nýverið athygli í Flensborg í
Schleswig Holstein í Þýskalandi. Þetta eru Hafnfirðingurinn Erling
Valsson Klingenberg og Hekla Dögg frá Reykjavík, en þau voru sl.
vetur gestanemar við Listaskólann í Kiel undir handleiðslu Renate
Anger. Þau héldu síðan sameiginlega sýningu í vor í sýningarsaln-
um „Prima Kunst“ og birtist grein um þau og sýninguna í dagblaði
Flensborgar „Flensburger Tageblatt“ þann 27. apríl sl. Fer hér á
eftir kafli úr greininni, en hún er undir fyrirsögninni „Sokkabuxna-
list, egg og gras“. Þess má geta að Erling er sonur Vals Asmundsson-
ar, en Erling var gestanemandi í Kiel í eitt ár og hyggst að eigin sögn
Ijúka námi við Myndlista- og handíðaskólann í Reykjavík næsta vet-
ur og fara utan til Þýskalands á ný til frekara náms að því loknu.
Sagt er fyrst í greininni frá verk-
um Heklu Daggar, en það eru
kvensokkabuxur í mismunandi
litaafbrigðum sem strengdar em á
hvítar femingslaga plötur, en list
þeirra Heklu og Erlings er túlkuð í
greininni sem rýmislist. Hekla ein-
beitir sér að þeim hluta af buxun-
um sem annars er falinn undir
fatnaði og kjólfoldum, afgangur-
inn hverfur á bakhlið platnanna. í
greininni er síðan lýst hvemig hún
fremur gjöming með sokkunum á
Arftaki
fundinn?
Eftirfarandi limra varð til
miðvikudaginn 19. maí sl.
eftir viðtalsþátt Eiríks á Stöð 2
við Stefán Gunnlaugsson,
föður Guðmundar Ama,
núverandi bæjarstjóra í
Hafnarfirði. Eirík-ur sagðist
hafa heyrt að móðir
Guðmundar hefði mikinn á-
huga á bæjarmálum í Hafnar-
firði og spurði Stefán, hvort
hún réði því sem hún vildi
ráða í þeim málum.
I flokknum fer flestum að
sárna
og finnast gamanið kárna.
Eftilfellið er
að ein stjórni hér
hún móðir hans Guðmundar
Arna
Síðan varð Guðmundur
Ami skipaður ráðherra og
varð þar af leiðandi að hætta
sem bæj-arstjóri í Hafnarfirði.
Vegna þeirrar augljósu
kreppu, sem kratarnir eru nú í
að finna hæfan mann innan
sinna raða í bæjarstjórastarfið,
varð til önn-ur limra þeim til
hjálpar. Nú geta Tryggvi, Jóna
Osk og Ingvar Viktors hætt að
rífast um embættið.
En þaifsvo sem nokkrum að
sárna
og síst mundi gamanið kárna.
Þá sonurinn fer,
að sjálfstjórni hér,
hún móðir hans Guðmundar
Arna
sýningunni og dregur fyrir blaða-
menn gagnsæan hnésokk á fót sinn
nokkmm tuga sinnum. Að lokum
býður hún sokkana upprúllaða til
sölu sem effirgerð af myndverk-
inu.
Þá kemur að þætti Erlings og
segir: „Eftirgerðir myndverka get-
ur maður einnig fengið hjá skóla-
félaga hennar, Erling Klingenberg,
en þær em gerðar úr rúmdýnu-
gormi, útblásnu eggi og grasi. Það
síðastnefnda er aðalefnið í mynd-
verkum hans: Slegið gras af garð-
blettum og engjateigum Kílar-
borgar. Eins og Hekla Dögg, gerir
hann sín verk ekki með teikniblý-
anti eða pensli, heldur með efhi. í
verkunum leggur hann slegið gras-
ið í jafna feminga en grasfleti
myndanna bindur hann á nokkmm
stöðum saman með blýantsblýum
og tréstönglum. ,,Ekki mála náttúr-
una, heldur mála með náttúmnni“
em hans einkunnarorð.
Tvœr myndir afErlingi; með nátt-
úrunni á efii myndinni.
Töflurnar voru 11.891
Lyfjafyrirtækið Delta í Hafnarfirði tók þátt í sýningunni Vor
'93, sem haldin var í Kaplakrika á dögunum. í sýningarbás
sínum hafði Delta m.a. glerhólk, fullan af töflum. Gestum sýn-
ingarinnar var gefinn kostur á því að geta sér til um fjölda
taflnanna. I verðlaun var vöruúttekt í Fjarðarkaupum fyrir
jafnmargar krónur og töflurnar voru margar.
Um tvö þúsund gestir tóku áskomn um þátttöku. Þrjátíu gestir
giskuðu á tölu, sem skeikaði aðeins 500 töflum ffá réttum fjölda.
Töflumar vom 11.891 og var það hafhfirskur unglingur, Trausti
Guðmundsson, sem giskaði nánast á réttu töluna.
Guðhjörg Edda Eggertsdóttir, markaðsstjóri Delta, afhendir
Trausta Guðmundssyni, verðlaunin. Töflurnar, sem voru 11.891,
eru í glerhólknum á milli þeirra.
NYJA BONSTÖÐIN S 652544
Trönuhrauni 2. Opiö frá kl. 9.00-18.00 alla daga, nema sunnudaga
Viö þvoum og bónum bílinn þinn jafnt utan sem innan
Einnig sækjum viö hann og skilum aftur.
ATH.: DJÚPHREINSUM OG VÉLARÞVOUM
Verið velkomin
Reynið viðskiptin
4