Fjarðarpósturinn - 16.06.1993, Síða 5
VIÐHORF Löghlýðni, fíkniefni o.fi
- Jóhann G. Bergþórsson
Þurfum að fá rannsóknar-
lögregluna f bæinn á ný
Island er land fámennis og
kunningsskapar. Þjóðfélagið
er ekki stærra en svo að fæstar
athafnir okkar dyljast samborgur-
unum. Hér í Hafnarfirði höfðum
við áður eigin rannsóknarlögregiu
sem allt vissi og upplýsti flest mál,
m.a. vegna fámennisins. Eftir að
rannsókn mála fluttist úr bænum
til miðstýrðrar stjómstöðvar varð
árangurinn mun lakari. Þessu þarf
að breyta.
Nýlega skrifaði Póstur og
sími bæjaryfirvöldum og
kvartaði yfir skemmdum
sem unnar hefðu verið á eignum
símans við Strandgötu. Treysta
þeir sér ekki til þess að setja aftur
upp almenningssíma vegna síend-
urtekinna skemmdarverka. Þetta
er okkur til skammar. Við Islend-
ingar, Hafnfirðingar þar ekki und-
anskildir, eigurn að nýta okkur fá-
mennið og kunningsskapinn til
þess að koma í veg fýrir að svona
nokkuð geti gerst. Þá er það okkur
ekki sæmandi, að fólki skuli ekki
iengur óhætt að vera eitt á ferð á
kvöldin eða að næturlagi í mið-
borg Reykjavíkur.
Fyrir nokkru varð norskur
samstarfmaður minn fyrir
því, þar sem hann var á leið
ifá Gauki á Stöng í áttina að Hótel
Sögu, rétt eftir miðnættið, að ráðist
var á hann með brotinni fösku, svo
hann skarst í andliti, og gerð var
tilraun til að ræna hann. Þessi
maður hefur margoft komið til Is-
lands, og alltaf borið okkur vel
söguna, hrósað landinu okkar,
matnum á veitingahúsum hér og
síðast en ekki síst hve hér væri „ör-
uggt“ að dveljast. Eftir þessa árás
hvetur hann landa sína ekki eins á-
kaft til að fara til Islands.
Við höfum lengi talið að
aukinn ferðamannastraum-
ur til landsins væri einn af
stærstu tekjumöguleikum okkar.
Ef við ætlum að ná árangri á því
sviði, verðum við að koma í veg
fyrir svona atvik.
Nýleg árás ungra bræðra á
móður með böm sín í mið-
bæ Seltjamamess og að-
gerðarleysi nærstaddra, gefur ekki
fallega mynd af samfélaginu. Oft
er aukinni fíkniefnaneyslu kennt
um. Sé það tilfellið verðum við að
taka á því. Auka þarf löggæslu og
eftirlit og gera samborgana meira
meðvitaða um vandamálið og fá
aðstoð þeirra við að leysa það. Þá
þurfum við að leggja miklu meiri
áherslu á fyrirbyggjandi starf og
nýta okkur kosti okkar litla samfé-
lags, fámennið og kunningsskap-
inn. Við megum ekkert til spara,
þeim fjármunum er ekki á glæ
kastað, ef hægt verður að draga úr
líkamsmeiðingum og fjárhagstjóni
og fækka fjölskylduharmleikjum.
Við þurfum aðgerðir til lausnar
þessum vanda. Vilji er allt sem
þarf.
- Jóhann G. Bergþórsson.
FYRIRTÆKIN í FIRÐINUM:
Anna Bergmann í „ Versluninni okkar“ við Strandgötu 9.
„Verslunin okkar“, ný verslun í miðbænum:
Kvenfatnaður í stórum númerum
HÁRSNYRTISTOFAN
Hjallahrauni 13, sími 53955
innffjaH
Trúlofunarhringar -
sérsmíði
GUÐRÚN BJARNADÓTTIR
gullsmiður
Lækjargötu 34c - 220 Hafnarfirði - Sími 654453
ÍTALÍA HEILLAR
Ævintýraferðir til ROMAR
Stórkostlegur ferðamöguleiki á ævintýraferð til
Rómaborgar.
Flogið er til Kaupmannafrafnar á miðvikudögum og
gist eina nótt á Copenhagen Star Hótelinu rétt við
Ráðhústorgið. Næst dag flogið með ítalska
flugfélaginu AL-ITALÍA til Rómaborgar. Dvalið í
Rómaborg í 6 daga og gist á Hótel Brasil sem er 3ja
stjömu hótel í hjarta Rómar.
í Róm gefst kostur á að fara í margs konar
skoðunarferðir svo sem: Dagsferð til Napólí og
Carpri með viðkomu í Bláa Hellinum.
Verð á mann kr. 7.500.
Stórkostlegar skoðunarferðir með enskumælandi
fararstjómm. í boði bæði hálfsdags og heilsdags
ferðir: Colosseum, Vatíkanið, Péturskirkja,
fomminjamar og meistaraverk Endurreisnartímans
em alls staðar og magnþmngin listin heillar.
Verð frá kr. 1.500.
Sértilboð íyrir ALÍS-farþega. Verð aðeins 64.500.
Innifalið er flug Keflavík, Kaupmannahöfn, Róm,
Kaupmannahöfn, Keflavík. Gisting ein nótt í
Kaupmannahöfn, 5 nætur í Róm, miðað við mann í
tveggja manna herbergi. Morgunverður,
flugvallaskattur á íslandi, Danmörku og á Ítalíu.
Örfá sæti laus í ódým BILLUND-ferðimar. Verð kr.
26.900 með öllum flugvallagjöldum.
Ferðatímabil 16. júní til 25. ágúst.
"pe*cLaveí&t<i
Feröaskrifstofan
s:652266
„Verslum11 okkar“ er heiti á
nýrri verslun að Strandgötu 9.
Eigandi hennar er Anna Berg-
mann, en hún sagði í viðtali við
tíðindamann Fjarðarpóstsins að í
Versluninni okkar væri mikið
úrval af fatnaði á börn, unglinga
og kvcnfólk. Hún kvaðst einnig
sérhæfa sig í kvenfatnaði í stór-
um númerum, allt upp í nr. 54.
Auk fatnaðar er úrval af kven-
veskjum og töskum, einnig seðla-
veski , buddur og slæður. Nýbúið
er að taka upp úrval af sumarvör-
um, m.a. bolir af flestum gerðum
og stærðum. Opið er frá kl. 10-18
alla virka daga.
SHELL SMURSTÖÐ
Biðin er á enda!
Nú geta viðskiptavinir Skeljungs í Hafnarfirði fengið bílana
smurða í Firðinum.
Shell smurstöðin er við Drangahraun 1 og er opin kl. 8-12 og
kl. 13-18 alla virka daga.
VfSA
Alltaf heitt á könnunni.
650755
5