Fjarðarpósturinn - 16.06.1993, Síða 6
„Mannbætandi að
geta sem oftast
verið f góðu skapi“
- Sumarspjall á léttu nótunum við Böðvar bóksala Sigurðsson
Þó að bærinn sé alltaf að breytast þá eru, að manni fínnst, fastir
punktar í tilverunni sem ekki hafa breyst í heilan mannsaldur. Ymis
gömul hús standa af sér hvers konar skipulagsbreytingar og ef vel
er að gáð þá eru í bæjarlífinu ákveðnar persónur sem hafa verið lengi
á sínum stað og fastir punktar í bænum. Manni fmnst að það eigi að
vera þannig eins og það hefur alltaf verið. Þessar persónur setja sinn
svip á bæjarbraginn, hver á sinn hátt.
Einn af þeim sem staðið hefur af sér hringiðu hvunndagsins svo lengi
sem maður man er Böðvar B. Sigurðsson, bóksali. Hann er einn af
sjálfsögðu punktunum í bænum. Hann hefur markað sín spor, ekki
síst með glaðværðinni. Maður vill ósjálfrátt ganga að honum vísum á
sínum stað, þó aldurinn sé farinn að færast yfir. Hann er enn í bóka-
búðinni. En hvað eru árin orðin mörg?
Þrír góðir gqflarar á spjalli, taliðfrá vinstri: Jón Kr., sem tók viðtalið,
Kristján Hannesson og Böðvar. Myndin er tekin í upphafi kynnisferðar
um Hafnaifjörð sl. sunnudag sem Félag aldraðra stóð fyrir.
- „Það eru orðin 53 ár í haust.
Fyrst verslaði ég á Strandgötu 3 í
hjarta bæjarins. Var þar í 45 ár en
svo hérna við Reykjavíkurveginn í
átta ár. Ég er sjálfúr orðinn 78 ára
og er enn á fullri ferð svona
nokkum vegin. Það má nefna það
að ég er fæddur á Suðugötu 15 í
húsinu sem nú er á móti Skattstof-
unni. Afi minn var nefnilega bak-
ari og bakaríið stóð þama við Suð-
urgötuna. Garðar Flygenring eign-
aðist svo bakaríið en enn síðar As-
mundur bakari, sem margir muna
eftir. Hann byggði bakaríið upp. I-
búðarhúsið við Suðurgötu var
skreytt með útskomum drekum og
öðm fíneríi. Þetta þótti flott og em
sumar skreytingamar meira að
segja komnar inn á Þjóðminjasafn,
eitthvað af þeim. Ég var að heyra
að það ætti að setja upp eftirlíking-
ar af þessu á húsið sem vafalaust
verða líka fínar.“
Hörkukaup í Rafha
- Fórstu strax að versla eftir
skólagöngu?
,,Það má segja það, ég ég hafi
byrjað fljótlega eftir Verslunar-
skólann. Ég útskrifaðist þaðan
1936 og fór þá að vinna hjá Guð-
mundi nokkrum Gamalíelssyni
bóksala og útgefanda. Hann var til
húsa í Lækjargötu 6 í Reykjavík.
Svo fór ég þaðan í Bókabúðina
Mími sem Finnur Einarsson
stjómaði en Mímir var hlutafélag
sem Helgi Hermann Eiríksson og
fleiri áttu. Ég var gerður þama að
gjaldkera á sínum túna og fékk
175 krónur á mánuði og það þótti
gott þá. Þama var ég í tvö ár en þá
fór ég í Ölgerð Egils Skallagríms-
sonar, þá kunnu ölgerð. Þama fékk
ég 225 krónur á mánuði. í ölgerð-
inni starfaði ég líka í tvö ár, en þá
gafst mér tækifæri að kaupa hluta-
bréf í Rafha og bytjaði að vinna
þar. Þama hóf ég störf og komst á
hörkulaun, 400 krónur á mánuði.
Þá nefhdist ég lagerstjóri. En ég
starfaði tiltölulega stutt í Rafha
samt sem áður. Mér líkaði þar ekki
að öllu leyti. Það var þá sem ég
hugsaði mér til hreyfings að
versla."
- Var það tilviljun að þú fórst að
versla?
,,Það var ekki tilviljun að ég fór í
bókaverslun því að ég var búinn að
vinna við bækur áður í Reykjavík.
Fyrstu tilþrifin í verslun á eigin
vegum vom á Hverfisgötu 34 þar
sem ég verslaði með tuskur og
bækur. Það er að segja, ég verslaði
með vefnaðarvörur, bækur og
reyndar ýmsar smávömr líka. Ég
keypti bækur og þartnig gat ég
smokrað mér inn í bókaviðskiptin
og fengið bóksöluleyfi. Ég byrjaði
því minn bóksölurekstur 1. desem-
ber 1941.“
Gaf út á annað
hundrað titla
- Vom bækumar köllun eða
hugsjón?
„Ekki get ég sagt það. Það var
ekki af því að ég væri neinn sér-
stakur bókamaður, en af því að ég
var búinn að vinna við bækumar
áður, þá þekkti ég svolítið til. Ég
vil að minnsta kosti ekki gera mik-
ið úr því að ég haft verið mikill
bókamaður. En svo get ég nefht
það, að strax eftir stríðið þá hellti
ég mér út í að gefa út og flytja inn
bamabækur. Ég flutti inn bækur í
um 20 ár í stómm stfl, sennilega
gefið út hátt á annað hundrað titla
á tímabili. Þetta gekk mjög vel.
Bækumar vom þýddar en prentað-
ar úti í Þýskalandi. Þær vom vel úr
garði gerðar og með litmyndum
sem var þá nýlunda."
- Gaman væri að vita núna, hvað
þú ert búinn að selja margar bækur
á 53 ámm?
„Því verður víst aldrei svarað,
en það er vafalaust orðinn dágóður
stafli, yrðu líklega margir metrar í
bókahillum."
- Þá komum við að lífínu og til-
verunni. Hefur glaðværðin alltaf
fylgt þér?
,Já, nema þegar ég heft verið í
fylu. En ég vona að það sannist á
mér að það komi ekki alltof oft
fýrir.“
- Skyldi það ekki vera mann-
bætandi að geta látið liggja sæmi-
lega á sér oftast nær? Skyldi það
ekki bara vera hollt og heilsubæt-
andi? Ég spyr bara af því að það er
alltaf verið að tala um holla lifnað-
arhætti.
„Jú, ég held að það hljóti að hafa
mikið að segja. Ef maður er fýlu-
púki í raun og vem þá held ég að
það sé erfitt að leika glaðværð.
Kannski öfugt líka. Það er erfitt að
vera grafalvarlegur og gera sér upp
virðuleika ef það era ærsl inni fýr-
ir. En ég held að það sé mannbæt-
andi að geta verið í góðu skapi
sem oftast, ekki síst þegar árin fær-
ast yfir.“
- Þú hefur komið við bæjarlífið
á fleiri sviðum en að selja bækur.
Þú hefur líka verið í alls konar fé-
lagsstússi?
,Já ég var á sínum tíma í
karlkómum Þrestir og síðar í Víði-
staðakómum. Reyndar syng ég
enn stöku sinnum með eldri Þröst-
um. Svo var ég um árabil í hesta-
mennsku og hafði gaman af. Það
var skemmtilegt tímabil. Ég átti
um tíma ágætis fola, kynbótafola,
og átti reyndar upp í átta hross á
tímabili. Það fór oft mikill tími í
þetta en það var gaman að því. En
nú er ég hættur öllu hrossastússi.
Ég er orðinn værari.
Mikill dellukarl
Ég má ekki gleyma ámnum
þegar ég var strákur en þá var ég
svolítið í íþróttum. Þá var ég í
Haukum því að FH var ekki einu
sinni til þá. Við spiluðum hand-
bolta en aðalkeppninauturinn var
Þjálfi, félag sem Hallsteinn Hin-
riksson var með. Þá var keppt á
útiskemmtunum á Víðistaðatúni.
Þá vom mörkin einföld, bara tvær
mjóar stengur og trolltvinni fýrir
ofan á milli stanganna, ekkert net
svo að erfitt gat verið að sjá hvort
að boltinn fór í mark eða ekki. Ég
man að einu sinni töpuðum við
með einu marki, þegar boltinn fór
hárfínt yfir eins og Siggi bróðir og
íþróttafréttamaður hefði orðað
það. Það var samt dæmt á okkur
mark.
Jbsndum aj-nj-i^id-
íncjum og öcíxum
uidiízijitamÍDnnum og
(jsíunnuxum hjoa'iL-
ijódiim (izitu
jjóda^liátLdaxízucSjux
SPARISJÓÐURINN
SPARISJÓÐUR HAFNARIJARÐAR
Royal
skyndibúðingur
6