Fjarðarpósturinn - 10.11.1994, Blaðsíða 2
2 FJARÐARPÓSTURINN
STJÖRNUSPÁ
Gildir frá fimmtudegi 10. nóvember til
miðvikudags 16. nóvember.
Vatnsberinn (20. jan. - 18. feb.)
Þetta er hentug vika til að framkvæma
ýmsa hluti sem varða viðskipti og fjármál.
Þiggðu samt ráð frá þér eldri og reyndari
manneskju. Það gæti leynst eitthvað væn-
legt í bréfahrúgunni svo skoðaðu vel
póstinn þinn. Það fer ekki mikið fyrir
frækorni.
Fiskarnir (19. feb. - 20. mars)
Tíminn flýgur áfram hjá fiskunum og um
að gera að nýta hann vel. Þú ert
sannkallaður velunnari og gleðigjafi þeirra
sem neikvæðir eru. Efasemd og óöryggi eru
þínir verstu óvinir. Þú veist þú býrð yfir
mögnuðum krafti, svo trúðu og treystu á
þína eigin getu.
Hrúturinn (21. mars - 19. apr.)
Einhver sem stóð þér næst þegar erfiðir
tímar herjuðu á, hér áður fyrr, kemur inn í
líf þitt á ný. Þú ert lukkunnar pamfíll og ef
þú stefnir að þínu takmarki af einlægni,
kemstu í höfn án þess að hafa mikið fyrir
því. Sumum finnst þú hafir einum of mikið
af því "góða".
Nautið (20. apr. - 20. maí)
Komdu einhverjum á óvart núna um helgi-
na. Það gleður ekki bara viðkomandi heldur
gefur það þér innri vellíðan. Mikið ertu
leyndardómsfull(ur) og dreyminn. Margur
vildi fá að vita hvað þú ert að bralla en
hverjum kemur það annars við?
Tvíburinn (21. mai - 20. júní)
Þú hefur alveg efni á að láta fara vel um þig
þessa helgi. Njóttu þess. Eftir helgina er
ráðlegast að fara í gegnum reikningana og
borga sem mest af þeim. Aðili í hrútsmerk-
inu kemur við sögu og hvetur þig áfram að
settu marki. Svífðu á tónum hörpunnar.
Krabbinn (21. júní - 22. júlí)
Þú verður hrókur alls fagnaðar í veislu á
fimmtudagskvöldið. Ferðalag er í vændum,
þessa viku, og kemur margt á óvart í þeirri
ferð. Láttu ekki hömlur liðins tíma eyðileg-
gja fyrir þér spor framtíðarinnar. Allt bíður
síns tíma.
Ljónið (23. júlí - 22. ágúst)
Þér leiðist þetta venjulega dagsdaglega
amstur. Ábyrgð þín og skyldustörf hverfa
ekkert frá þér. Svo illu er best af lokið.
Kynntu þér nýja stefnu. Leitaðu hiklaust á
önnur svið, fjármálasviðið gæti verið hep-
pilegt. Þú færð punkta sem styðja þína
hugmynd.
Meyjan (23. ágúst - 22. sept.)
Þér hættir til að vorkenna þeim sem eiga
það kannski alls ekki skilið. Sumir man-
neskjur eru bara fæddar nöldurskjóður. Þú
ert mjög drífandi og afkastamikil(l) þessa
viku og eirir ekki lengi í sömu sporum.
Gleymdu samt ekki litlu hlutunum.
Vogin (23. sept. - 22. okt.)
Helgin nýtist þér best í að ganga frá
ókláruðum málum svo taktu daginn snem-
ma. Peningar streyma inn og kominn tími
til, eftir allt erfiðið. Nú er þér óhætt að
breyta og bæta. Hafðu í huga, þú tapar engu
við að deila þínu kærasta með þínum
kærustu.
Sporðdrekinn (23. okt. - 21. nóv.)
Þínir nánust, ástvinir og ættingjar eiga allan
þinn tíma þessa viku. Ástin blómstrar og
nýir straumar fríska upp á stöðnuð sam-
bönd. Þótt grái hversdagsleikinn sé ekkert
annað en bara vaninn, þarf hann ekki að
vera leiðinlegur. Málaðu lífið í lit.
Bogamaðurinn (22. nóv. - 21. des.)
Það fer mikið í taugamar á þér hvað þú
þarft oft að vinna verkin aftur eftir aðra.
Hverjum er það að kenna? Stundum verður
maður að sætta sig við það sem maður fær
ekki breytt. Leggðu áherslu, þessa viku, á
þitt eigið hugarástand gagnvart eigin lífi og
hamingju.
Steingeitin (22. des. - 19. jan.)
Líttu nú í eigin barm og virtu þig að
verðleikum. Þú eyðir allt of miklum tíma
og orku í að reyna flytja fjöll. Láttu af
þráhyggjunni og einbeittu þér, þess í stað,
að öllu því mögulega í kring um þig. Þú
getur auðveldlega búið til jólakort úr
vetrarríkinu.
MUNIÐ AÐ BROSA
Nemendur Fiskvinnsluskólans reiðir menntamálaráðherra
Skólinn á fylli-
lega rétt á sér
-segir Jón Arason einn nemendanna
Jón Arason: "Það sem okkur nemendunum hefur sviðið mest undan
eru yfirlýsingar forráðmanna í menntamálaráðuneytinu..."
Nemendur Fiskvinnsluskólans
eru reiðir út í Ólaf G. Einarsson
menntamálaráðherra þar sem
hann hefur ekki svarað ítrekuðum
beiðnum þeirra um að koma í
heimsókn og kynna sér af eign
raun starfsemi skólans. Einn
þeirra, Jón Arason, segir að skól-
inn eigi fyllilega rétt á sér og að á-
kvörðun ráðherra um að loka skól-
anum í eitt ár sé ekki vel ígrunduð.
"Það sem okkur nemendunt hefur
sviðið einna mest undan eru yfir-
lýsingar forráðamanna í mennta-
málaráðuneytinu um að skólinn sé
óhæf stofnun án þess að þeir viti í
raun hvað þeir eru að tala um,"
segir Jón.
Jón Arason er fæddur og uppalinn
á Eyri við Skötufjörð í Isafjarðar-
djúpi og hann hefur stundað sjó-
mennsku alla sína tíð, eða frá 13 ára
aldri. Mest hefur hann verið á bátum
frá Þorlákshöfn þar sem hann er bú-
settur nú.
"Eg hef mest verið á bátum, með-
al annars sem skipstjóri, en það er
stöðugt verið að þrengja að bátaflot-
anum og því fór ég í fyrrahaust að
svipast um eftir vinnu í landi," segir
Jón. "Eg ákvað að innrita mig í Fisk-
vinnsluskólann frekar en Stýri-
mannaskólann þvf ég taldi að með
því ætti ég meiri möguleika á vinnu í
landi."
‘Jón mun útskrifast frá Fisk-
vinnsluskólanum í næsta mánuði sem
fiskiðnaðarmaður. "Eg tel að ég haft
lært mjög mikið á því að vera í skól-
anum og ég fæ ekki séð hvað er
svona ómögulegt við þennan skóla
þótt endalaust megi ræða um hvað
mætti betur fara. Hér læra menn
hvemig þeir eiga að stjóma dagleg-
um þáttum í fiskvinnslu og að um-
gangast og stjóma fólki í þeirri at-
vinnugrein. Ég fæ ekki betur séð en
skólinn skili því hlutverki með ágæt-
um
I máli Jóns kemur fram að hann
telji að Fiskvinnsluskólinn eigi fylli-
lega rétt á sér en þurfi að aðlagst
breyttum aðstæðum. "Það er hins-
vegar spuming hve miklum skaða
menntamálaráðherra hefur valdið
skólanum með yfirlýsingum sínum
því hver vill ráða fólk frá skóla sem
talinn er óhæfur af æðstu forráða-
mönnum hans," segir Jón.
"Það má nefna að nú em frysti-
skipin að auglýsa eftir fólki sem lok-
ið hefur gæðastjómunamámskeiðum
frá skólanum og raunar er það sett
sem skilyrði að viðkomandi hafi lok-
ið námi frá skólanum. Ef áform
menntamálaráðherra ná hinsvegar
fram að ganga og skólastarfið leggist
af héma næsta árið er hætta á ferðum.
Sú hætta að innan fárra ára verði ekki
til fólk sem getur gengið í þessi störf.
Þá á ég við að þótt þær hugmyndir
sem nú eru í gangi um að stofna sér-
staka sjávarútvegsbraut með þátttöku
Fiskvinnsluskólans nái fram að
ganga tekur það þrjú ár að ljúka námi
frá þessari braut. Og ef skólinn er
ekki starfræktur á meðan mun mynd-
ast gat þar sem engir ftskiðnaðar-
menn era útskrifaðir þessi þrjú ár."
KOMPAN
Kapallinn gekk
ekki upp
Uppstilling í stjórn Samtaka
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð-
inu (SSH) bögglaðist verulega/yr-
ir mönnum þegar Steinunn V. Ósk-
arsdóttir sætti sig ekki við að verða
ritari stjórnarinnar. Samkomulag
var um að Valgerður Sigurðardóttir
einn bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði yrði vara-
formaður, Steinunn ritari og Lauf-
ey Jóhannsdóttir úr Garðabæ tæki
sæti gjaldkera. Með þessunt hætti
yrði jafnvægi milli hægri og vinstri
flokka í stjórninni en Sigurður
Geirdal er fonnaður SSH.
Þegar ganga átti frá málinu á
stjómarfundi í síðustu viku kom í
Ijós að Steinunn gerði kröfu um að
fá varaformannsembættið. Vísaði
hún til þess að í síðustu stjóm
hefðu bæði formaður og varafor-
maður komið úr sama flokki þ.e.
Sjálfstæðisflokkunum. Hinsvegar
ber að geta þess að þá átti flokkur-
inn sjö menn af tólf í stjóminni. Nú
hinsvegar er stjómin skipuð fimm
frá Sjálfstæðisflokk, fimnt frá
vinstri flokkunum og tveir teljast
óháðir.
Ekki tókst að ganga frá skipun í
stjórnina af þessum sökum en ann-
ar fundur hefur verið boðaður á
morgun, föstudag, og þar á endan-
lega að skipa stjórnina.
Reikningur fyrir
bókhaldsvinnu
Eitt sem vekur verulega athygli í
skýrslu bæjarlögmanns og bæjar-
endurskoðenda um fjárreiður
Listahátíðar Hafnarfjarðar hf. er
reikningur forráðamanna Listahá-
tíðar fyrir bókhaldsvinnu. Sem
kunnugt er af fréttum er bókhald
Listahátíðar eitt hrikalegt klúður
frá upphafi til enda. Það hefur hins-
vegar ekki hindrað þá Sverri Ólafs-
smi, Gunnar Gunnarsson og Öm
Ólafsson í því að senda inn og fá
borgaðann reikning þann 13. júní
s.l. fyrir "listræna ráðgjöf og vinnu
við frágang bókhaldsgagna'' upp á
tæplega 115 þúsund kr..
Þess má og geta að listræn ráð-
gjöf þessara manna kostaði bæjar-
sjóðs alls tæplega 1,3 milljónir
króna.
GAFIARI VIKUNNAR
Fæðingardagur? 26. ágúst 1960.
Fæðingarstaður? Sólvangur,
Hafnarfirði.
Fjölskylduhagir? Maki, Hjördís
Ólöf Jónsdóttir. Börn, Helena,
Ómar og Sigurður.
Bifreið? Lada Samara. (Sem
Rússarnir hafa mikinn áhuga á)
Starf? Starfsmaður ÍSAL.
Helsti veikleiki? Góður matur.
Helsti kostur? Allt of margir til
að telja upp hér.
Uppáhaldsmatur? Skerpukjöt og
annar Færeyskur matur.
Versti matur? Hjörtu og lifur.
Uppáhaldstónlist? Engin sérstök.
Uppáhaldsíþróttamaður? M.
Jordan.
Hvaða stjórnmálamanni hefur
þú mestar mætur á? Alls engum.
Uppáhaldssjónvarpsefnið?
Fræðsluþættir.
Leiðinlegasta sjónvarpsefnið?
Sápuþættir.
Uppáhalds útvarps-og sjón-
varpsmaður? Enginn sérstakur.
Uppáhaldsleikari? Hafnfirðing-
arnir, Laddi og Siggi Sigurjóns.
Besta kvikmynd sem þú hefur
séð? Papilon.
Hvað gerir þú í frístundum þín-
um? Ymislegt t.d. horfi á imbann,
fer í golf og borða.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á? Get ekki gert upp á
milli.
Hvað metur þú mest í fari ann-
arra? Heiðarleika og trygglyndi.
Hvað metur þú síst í fari ann-
arra? Illgimi.
Hvaða persónu langar þig mest
til að hitta? Enga sérstaka.
Hvaða námsefni líkar þér verst í
skóla? Vélritun.
Hvað myndir þú vilja í afmælis-
gjöf? Nýja gúmmískó. (Það er
komið gat á þá gömlu)
Hvað myndir þú gera ef þú ynn-
ir 2 millj. í happadrætti? Losa
mig við smá ánauð bankans og
kaupa bland í poka.
Hvað veitir þér mesta afslöpp-
un? Borða fyrir framan sjónvarp-
ið.
Hvaða sérsvið myndir þú velja,
ef þú værir í spurningakeppni?
Mannkynssögu.
Hvað myndir þú gera ef þú vær-
ir bæjarstjóri í einn dag? Ráfa
um og gera ekki neitt.
Uppáhalds Hafnarfjarðar-
brandarinn þinn? Hvað kallast
gáfaður maður í Hafnarfirði? Svar:
Gestur.